Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Blaðsíða 106

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Blaðsíða 106
Paul Mattick Lenínisminn og verkalýðshreyfing vesturlanda SÍÐARI HLUTI Þriðja alþjóðasambandið Rússneska byltingin var afurð fyrri heimsstyrjaldarinnar. Lenín taldi að án styrjaldarinnar hefði byltingin „ef til vill ekki orðið fyrr en mörgum áramg- um síðar“. En Rússland var sá hlekkur í keðju heimsvaldastefnunnar sem var „veikastur og þar með sá sem úrslitum réði“ og varð því útgangspunktur heims- byltingarinnar gegn heimsvaldasinnuðu auðskipulagi. Marx og Engels álitu heimsvaldastefnuna ekki fara með neitt sérstakt hlutverk í því að hrinda af stað öreigabyltingunni. Að mati þeirra myndu mótsagnir háþróaðs auðskipulags knýja fram byltingu, þótt þeir teldu möguleika á því að bylting í Rússlandi gæti leitt til byltingar í allri Evrópu. Lenín taldi heimsvaldastefnuna vera orðna að lífsnauðsyn fyrir auðskipulag- ið. Því ættu allar þjóðir, án tillits til þróunarstigs þeirra, heima í þeirri bylt- ingarhreyfingu sem beindist gegn heims- valdastefnunni. Byldngin yrði því ekki aðeins í Rússlandi, heldur um allan heim alþýðubylting, þar sem verkamenn og bændur skiptu meginmáli. Því mátti skilja heimsbyltinguna sem stækkaða eftirlíkingu af rússnesku byldngunni, þannig að reynslan af rússnesku bylting- unni varpaði ljósi á vandamál heims- byltingarinnar. I samræmi við það nefndi Stalín lenínismann „marxismann á tímaskeiði heimsvaldastefnunnar". Sá árangur, sem náðst hafði í Rúss- landi, gerði Lenín enn vissari í sinni sök um að skipulagsreglur bolsévika væru óhjákvæmilegar. Þær áttu líka að vera grundvöllur þess nýja alþjóðasambands sem stofna átti. Það hafði legið ljóst fyrir þegar frá stríðsbyrjun að mynda yrði byltingarsinnað alþjóðasamband gegn 2. alþjóðasambandinu, sem orðið var pólitískt gjaldþrota. Hið nýja sam- band skyldi tengja saman þá andstöðu gegn þjóðrembu sósíaldemókrata, sem var að myndast í öllum löndum. Bylt- ingin í Rússlandi flýtti fyrir myndun alþjóðasambandsins, en setti það undir valdboð byltingarinnar og þar með, þeg- ar öllu var á botninn hvolft, undir yfir- ráð þess bolsévikaflokks sem orðinn var að ríkisvaldi. Frá upphafi var það verk- efni alþjóðasambandsins að verja rúss- nesku byltinguna, hvort sem það átti að gerast með því að breiða hana út til annarra landa eða með því að verja Rússland gegn árásum alþjóðlegrar borg- arastéttar. Hinn byltingarsinnaði hluti sósíal- ískrar hreyfingar fagnaði rússnesku bylt- ingunni hvarvetna. Þann fögnuð mátti ekki einungis merkja hjá vinstra armi 92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.