Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Side 67
„I gegnum list að Ijóssins viskusal æ, lát mig skoða afl og anda þinn, sem ekki fjötrast má af neinu bandi! (B.G. 1:228) Maðurinn er hliðstæða við Guð. I honum býr óendanleikinn, bæði í hugsun og verknaði, hann einn hefur möguleika á að kynnast innsta eðli hlutanna og birta fullkomna mynd af heiminum. Það er Ijóst að ríkjandi þekkingarfræði hlýtur ævinlega að setja svipmót sitt á kenningar manna um list og listsköpun. Þetta kemur vel fram í skoðunum manna á eðli, uppruna og takmörkum þeirra hugmynda sem listaverk birta eða geta birt. Þannig eiga kenningar 18. aldar manna um listina sem beina speglun eða eftirlíkingu áþreifanlegra hluta og fyrirbæra sér eðlilegar forsendur í því áliti samtímans að reynslan ein sé uppspretta sannrar þekkingar og að maðurinn skynji einungis með líkamlegum skiln- ingarvitum. A sama hátt var eðlilegt að listfræðin tæki stakkaskiptum á 19. öld — köld eftirlíking viki fyrir óheftri tilfinningatjáningu — þegar þeirri skoðun tók á ný að vaxa fylgi að hugur mannsins sé af guðlegum uppruna og maðurinn bæði búi yfir mikilsverðri þekkingu við fæðingu og sé þar að auki sjálfur fær um að mynda þekkingu óháð reynslunni. Merki þessara viðhorfa sjáum við víða hjá Benedikt Gröndal, en hann leggur bæði mikla áherslu á andann og hina óskynjanlegu sál mannsins í allri heimsskoðun og metur list eftir frumleika hennar, þeir einir verðskulda tignarheitið skáld „sem framleiða sínar eigin hugsanir (Original) í skynjanlegri mynd“ (B.G. 111:30). Innsæið gegnir ákaflega mikilvægu hlutverki í rómantískri list. Ólíkt fyrri tíma hugmyndum er það ekki einungis liður í málskrúðs- eða mælskufræði skáldskapar, þ. e. til að sveipa hugmyndirnar töfrablæju glæsilegra en viðeigandi orða. Það hefur einnig veigamikið gildi í sjálfri þekkingaröflun eða þekkingarmyndun mannsins. Með innsæinu uppgötvar maðurinn áður óþekkta fleti tilverunnar, auk þess sem hann lyftir af þeirri hulu sem umlykur alla hluti og nálgast þar með kjarna eða innsta eðli þeirra. Innsæið fjarlægir okkur ekki frá raunveruleikanum, heldur gerir okkur kleift að kanna hann betur en áður, bæði náttúruna eins og hún birtist okkur og þann heim sem hún er táknmynd af. Eins stígum vér af myrkum moldar beð frá minnsta hlut, sem augað fær ei séð, í gegnum list að ljóssins vizkusal, þar lifir sá, er allt í engu fal. (B.G. 1:231) I þessu tilliti má greina tvær myndir innsæis eftir eðli þess og uppruna. Annars vegar höfum við innsæi af yfirskilvitlegu eða trúarlegu eðli, sem er 465
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.