Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Page 77
„Hve líf sem friðar nýtur andar rótt“ felur í sér hið ósegjanlega, það sem aðeins verður skynjað en ekki skýrt. Þögnina í „Nafnlausu ljóði“ vil ég samt túlka á annan hátt. Hún er raunveruleikinn sjálfur, án hennar ekkert sagt, enginn lifandi skáldskapur. En máttug af sjálfri sér einni er þögnin í ljóðinu ekki; það ég sem talar í lokin er ekki aðeins hún, tvípunkturinn vísar líka aftur fyrir sig. Allt þar til ljóðmælandi spyr: „Hver ert þú?“ og nemur svar þagnarinnar er það „veikasta sögnin að elska“ sem lesandi ætlar að gefi skáldinu mál; skáld- skapur verður til við að elska í þögn, í ást á því lífi sem er lifað og er annað en skáldskapur — eða hið þögla form hans. — Veikasta sögnin er aldrei nefnd, hún brennur aðeins á vörum; hún býr að baki orðunum og gefur þeim merkingu. Þannig ber hún í sér nokkuð af eðli bæði þeirra og þagnarinnar og upphefur andstæðu þeirra, sameinar líf og skáldskap. Af sama toga eru hugmyndir ýmissa annarra módernista. Danska skáldið Paul la Cour segir:6 Ljóðið er aðeins þögn. . . . hátterni okkar hvern dag, sérhver athöfn okkar móta Ijóð okkar. Þau verða ekki gerð af bókstöfum, heldur lífi. Tign er yfir tindum og ró Sannleikur skáldskapar hvorki má né getur verið sannleikurinn eini; skáld- skapur er túlkun á raunveruleika. Oft er til hægðarauka við það miðað að maðurinn hafi skilið sig frá náttúrunni þegar hæfnin til að tala tungumál þroskaðist með honum. Svo mikilvægt er tungumálið af því að það er táknkerfi, ein margslungnasta og jafnframt þarflegasta mynd víðtæks mann- legs táknunarhæfis; á táknum byggir maðurinn alla hugsun sína. Táknunar- hæfið gerir manninum kleift að komast til skilnings á veruleikanum, með táknbundinni hugsun. Kannski er einmitt réttara að segja að skilningsþörfin í félagi við táknunarhæfið geri manninn að manni. Annar skilningur á heiminum en táknrænn er manninum ekki tiltækur. Og tákn eru annað en það sem þau vísa til, veruleiki um veruleika. Maðurinn túlkar eða skilur þá raunveruleikann, gefur honum merkingu, með öðru en því sem raunveru- leikinn er sjálfur — mannlegur veruleiki er annarlegur. Því er það að menn skynja heiminn á mannkynsfalt ólíka og sérstaka vegu. Vatn kann að eiga sér sannan og einn veruleika óháðan manninum en hann getur maðurinn aðeins nálgast með táknum, sönnum en aldrei einsömum. Samkvæmt framangreindum skilningi getur skáldskapur ekki verið bein mynd raunveruleikans, eins og hann; skáldskapur er túlkun á honum í margræðri táknmynd. Hann m. a. s. beinlínis virkjar til hins ýtrasta táknlegt 475
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.