Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Qupperneq 125
þrúgandi einsemd. Tilvera Valda er
nöturleg og einsemd hans fullkomin.
Sagan segir lítt af hans fyrri dögum en
nóg til þess að forsaga geggjunarinnar er
skýr. Togstreitu milli veruleikans, þar
sem hann rekur sjoppu ásamt móður
sinni og hans innri heims, heims vísinda-
skáldsagna lyktar með sigri sagnanna og
skilin verða fullkomin. Valdi er gjörsam-
lega einangraður frá öðrum, sem hann
virðist reyndar einnig hafa verið meðan
hann rak sjoppuna á Terra. Munurinn er
sá að nú er hann beinlínis í andstöðu við
umhverfið, — aðrir eru fjandsamlegir
Marsbúar en hann einn — jarðarbúi.
Þetta er saga manns sem stígur skrefið til
fulls. Að þessu leytinu til er Gaga alvar-
legs eðlis, saga hins einmana manns sem
fer yfirum með hörmulegum afleið-
ingum.
Þó er Gaga barmafull af kómík. Vanga-
veltur og fjarstæðukennd túlkun Valda á
atburðum og persónum er fyndin og
Olafi tekst sérlega vel upp í lýsingum
sínum á hegðun og orðræðum hans. I
þessari sögu kemur enn einu sinni fram
hæfileiki hans til þess að búa til persónur
sem eru í senn hlægilegar og grátlegar.
Sá hæfileiki kom vel fram í hans fyrstu
bók, Milljón prósent menn, og nægir þar
að nefna grátbroslegar persónur Engil-
berts heildsala og Gríms í Teppahöll-
inni. Það mætti nefna atvik úr Gaga þar
sem Valdi hringir tilviljanakennt um
miðja nótt til þess að tala við einhvern
Marsbúann. Konan sem svarar heldur að
hann sé fyrrverandi unnusti sinn og sam-
ræðurnar verða einkennilegar. Konan er
farin að ræða þeirra fyrri mál af heift og
sárindum en Valdi mistúlkar að sjálf-
sögðu flest það sem við hann er sagt og
skýtur inn fáránlegum athugasemdum:
Viltu ekki neitt sérstakt, hvæsti
Umsagnir um bœkur
röddin, hvað um mig, hvað held-
urðu að ég hafi gengið í gegnum,
hvernig vogarðu þér að tala við
mig, ógeðið þitt, ég vil fá að vera í
friði fyrir þér, snökti röddin, þú
getur ekki leyft þér að tala svona
við mig, það ætti að drepa þig, en
á ég að segja þér eitt, sagði röddin
ákveðin, ég hef alltaf vitað að þú
ert hræddur, hræddur, þú ert
skræfa, skræfa . . .
— Höfin eru þornuð, hér er nóg
pláss, hvíslaði Geimfarinn.
— Hvað?
— Ég sagði höfin eru þornuð,
það er nóg pláss á Mars.
I slíkum senum tekst Olafi hvað best
upp. Hann er næmur á fyndni og stíllega
er sagan velheppnað verk. Stíllinn er
gagnorður en hnyttinn og beinskeyttur
um leið. Frásögnin er slípuð og á það
sérstaklega við um samræðurnar sem
eins og áður sagði eru brenndar marki
bilunar geimfarans Valda. Það er ekki
mikið um tilþrif í stíl enda sagan ekki
þannig að mikið rúm sé til slíks, — þó
bregður þeim fyrir inná milli:
Grá dúfa kom inn til lendingar og
dró upp vængina og skjögraði á
fluginu. Hún settist á trjágrein og
greinin vaggaði undir henni. Hún
hoppaði á nýja grein og snjórinn
sáldraðist niður í flygsum. Dúfan
réri á greininni, hún reigði nefið í
kalda goluna og hagræddi óað-
finnanlegum vængjum.
Gaga er stutt saga en hnitmiðuð og
hún er áleitin saga. Olafur Gunnarsson
hefur sýnt að honum lætur vel að skrifa
sögur sem vega salt gamans og alvöru.
Hann er með efnilegri sagnaskáldum
okkar og Gaga sýnir að hann er óragur
523