Fréttablaðið - 13.05.2015, Side 4
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
NOKKRAR STÆRÐIR TENGDAR VERKFALLSAÐGERÐUM OG KJARABARÁTTU
VERKALÝÐSBARÁTTAN
Fréttablaðið leitar að sögum sem tengjast verkfallsaðgerðum. Láttu okkur endilega vita af skemmtilegum,
eða miður skemmtilegum, sögum með því að senda okkur póst á ritstjorn@frettabladid.is.
Ein hliðaráhrif yfirstandandi verkfalla á Gunnar Baldvin
Björgvinsson, læknakandídat á lokaári við Landspítalann,
reyndust nokkuð óvænt. Myndir sem ljósmyndari Morgun-
blaðsins tók af honum (og fleirum) í læknaverkfallinu
hafa nefnilega birst á síðum blaðsins, og í það minnsta
tvisvar á forsíðu, auk birtinga á vef blaðsins.
„Það mætti kannski kalla mig verkfallskandídat miðað
við hvað blaðið hefur birt af mér margar myndir,“ segir
hann, en þegar myndirnar voru teknar starfaði hann á
bráðamóttökunni. „En ég bað svo sem ekki um að verða
einhver verkfallsstrákur, eða andlit heilbrigðisstétta í
verkfalli.“
Áhrif verkfallanna nú merkir Gunnar hins vegar eins og
annað heilbrigðisstarfsfólk og segir alvarleg.
„Læknaverkfallið var slæmt en röskunin af þessu er
líklega meiri,“ segir hann.
Núna starfar Gunnar Baldvin á Landakoti og sér
daglega hvernig rannsóknir tefjast vegna þess að sýni
og blóðprufur fást ekki greind nema með undanþágum í
bráðatilvikum og sama á við um röntgenmyndatöku. Þá
liggur hún niðri á Landakoti, þannig að fara þarf með fólk
á milli sjúkrahúsbygginga í bráðatil-
vikum til myndatökunnar, sem sé
aukaálag.
Gunnar segir ljóst að ástandið sé
líka til þess fallið að auka fólki kvíða.
„Sé fólk með fullum sönsum þá gerir
það það, en þegar þú ert kominn
á öldrunar- og endurhæfingar-
spítala þá er allur gangur á
því,“ bætir hann við. „En
vissulega geta komið
upp bráðatilvik hér. Og
ef setja þarf fólk strax
í röntgen þá er það
bara sjúkrabíll og mikil
röskun fyrir eldra
fólk. Ástandið bitnar
kannski mest á þeim
sem síst mega við því,
það er að segja eldra
fólkinu.“ - óká
REYNSLUSÖGUR ÁHRIF YFIRSTANDANDI VERKFALLSAÐGERÐA
Forsíðukandídat á Landakotsspítala
BANDALAG HÁSKÓLAMANNA (BHM)
Ótímabundið verkfall hjá hluta aðildarfélaga | Stendur enn yfir
Í DAG ER 37. DAGUR Í VERKFALLI FIMM ÞEIRRA:
1 Félag geislafræðinga Hefur meðal annars áhrif á starfsemi Landspítal-
ans. Ekki er hægt að framkvæma margvíslegar rannsóknir sem krefjast
röntgenmyndatöku.
2 Félag lífeindafræðinga Áhrif á framkvæmd rannsókna á Landspítal-
anum. Lífeindafræðingar starfa á rannsóknastofum sjúkrahúsa og
fyrirtækja í erfðagreiningu og lyfjaiðnaði, auk stofnana sem þjóna land-
búnaði.
3 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Landspítala Koma að frumu- og
sameindalíffræði, eðlis- og efnafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, erfðafræði og
líftækni, örveru- og veirufræði, ónæmisfræði, blóðbankafræði, vefjafræði,
meinafræði, faralds fræði, tölfræði og kerfislíffræði.
4 Ljósmæðrafélag Íslands á Landspítala | ÞRI., MIÐ. OG FIM.
Raskar starfi kvennadeildar, en undanþágur hafa verið veittar, svo sem
vegna keisaraskurðaðgerða.
5 Stéttarfélag lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu Ekki er hægt að ganga frá alls kyns opinberum skiptum, gjald-
þrota- eða skiptum dánarbúa, skilnuðum, hjónavígslum og fleiri hlutum.
● Ljósmæðrafélag Íslands á Sjúkrahúsinu á Akureyri Ótímabundið
verkfall hófst 9. apríl. Verkfall á mánudögum og fimmtudögum. Aðgerðir
eru því á 35. degi.
VERKFALL HJÁ EFTIRTÖLDUM FÉLÖGUM FRÁ 20. APRÍL
1 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Matvælastofnun Meðal annars
áhrif á eftirlit með plöntu heilbrigði, matvælaöryggi og neytendavernd.
2 Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði á Mat-
vælastofnun Raskar margvíslegu eftirliti og rannsóknum.
3 Dýralæknafélag Íslands Stórfelld áhrif á matvælaframleiðslu. Uppáskrift
dýralækna og eftirlit þarf við slátrun og einnig vegna innflutnings.
Í PÍPUNUM: SGS Verkfall 19.-20. maí og ótímabundin vinnustöðvun frá 26.
maí. Hjúkrunarfræðingar Ótímabundið verkfall hefst 27. maí. VR, LÍV og
Flóabandalag 28.-29. maí er verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum, 30.-31. maí
er verkfall á hótelum, gisti- og baðstöðum, 31. maí-1. júní er verkfall í flugaf-
greiðslu, 2.-3. júní er verkfall hjá skipafélögum og í matvöruverslunum, 4.-5. júní
er verkfall hjá olíufélögum, 6. júní hefst ótímabundið verkfall félagsmanna.
VERKFALLSAÐGERÐIR Í GANGI
KVENNADEILD LANDSPÍTALANS Ljósmæður á Landspítalanum eru í verkfalli á þriðju-
dögum, miðvikudögum og fimmtudögum, en bráðatilvikum er sinnt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJARAMÁL Fulltrúar nær allra stóru
stéttarfélaganna sem í vinnudeilum
eiga funduðu með viðsemjendum
sínum í Karphúsinu í gær.
„Við hittum ríkið og lögðum
fram okkar viðbrögð við hluta af
því sem það setti fram,“ segir Páll
Halldórsson, formaður samninga-
nefndar Bandalags háskólamanna,
en í röðum hans félagsmanna eru
þeir sem lengst hafa verið í verk-
falli, frá 7. apríl.
Núna segir Páll að samninga-
nefnd ríkisins fari yfir það sem
BHM hafi haft fram að færa, án
þess að fara nánar út í hvað fari
mönnum á milli við samningaborð-
ið. Hann neitar því þó ekki að enn
beri heilmikið í milli deiluaðila. „En
viðræður eru í það minnsta í gangi
og það er meira en hefur verið hægt
að segja um nokkurn tíma. Að því
leytinu til eru fréttirnar jákvæðar.“
Páll segir hins vegar ekki í kort-
unum að lagt verði fram tilboð til
allra stéttarfélaga, hvort heldur
sem um er að ræða á opinbera eða
almenna vinnumarkaðnum. „Það
mun ekki leysa þetta starf. Þetta
er svo mismunandi að ekki verður
búin til nein lausn fyrir almenna og
opinbera markaðinn, alla vega ekki
fyrir okkur. Ég held að það sé bara
of flókið mál.“
Næsti fundur í kjaradeilu BHM
og ríkisins segir Páll að sé boðaður
á föstudag.
Þá virðist hreyfing á viðræð-
um á almenna markaðnum, þótt
að sögn Sigurðar Bessasonar, for-
manns Eflingar og talsmanns Flóa-
bandalagsins, sé enn talsvert langt
í land áður en kjarasamningar
nást. Flóabandalagið og VR, ásamt
LÍV (Landssambandi íslenzkra
verzlunar manna) funduðu með
samninganefnd Samtaka atvinnu-
lífsins (SA) í gærmorgun. Eftir
þann fund sagði Ólafía B. Rafns-
dóttir, formaður VR, að hreyfing
væri komin á mál.
„Það er í sjálfu sér bara ánægju-
efni að menn skuli vera sestir niður
og taka þessa umræðu en ég held að
menn eigi töluvert langt í land áður
en menn hafa hér einhvern mótaðan
kjarasamning á borðinu. Þetta eru
eingöngu fyrstu skref sem menn
eru að taka,“ segir Sigurður við
fréttastofu í gær. Flóabandalagið
leggist nú yfir útreikninga á þeim
hugmyndum sem SA hafi haft fram
að færa á fundinum. Þar til því sé
lokið geti hann lítið tjáð sig um til-
lögurnar, en næsti fundur í deilunni
er árdegis í dag.
„Það er mjög lítið að frétta,“
sagði svo Drífa Snædal, fram-
kvæmdastjóri Starfsgreinasam-
bandsins (SGS), eftir fund samn-
inganefndar með SA síðdegis í
gær. „Þetta voru mest vangaveltur
og lítið sem hönd á festir.“ Hún seg-
ist telja að SA viðri svipaðar hug-
myndir við SGS og Flóabandalag-
ið. Ekki hafði verið settur tími fyrir
næsta samningafund í deilunni og
átti Drífa frekar von á að ríkissátta-
semjari myndi boða til hans. Næstu
verkfallsaðgerðir SGS eru boðaðar
19. og 20. þessa mánaðar.
olikr@frettabladid.is
Legið yfir tillögum
á öllum vígstöðvum
Fundað var í kjaradeilum allra stóru stéttarfélaganna bæði á almenna og opinbera
vinnumarkaðnum í Karphúsinu í gær. Ljóst er að enn ber mikið í milli og samn-
ingar ekki í augsýn. Hreyfing er samt á viðræðum og nýjar hugmyndir á borðinu.
Í HÉRAÐSDÓMI Umtalsverð harka er í kjaradeilum og verkfallsaðgerðir í gangi. Hér
mæta Páll Halldórsson og félagar hans í BHM í Félagsdóm um helgina þar sem hluti
aðgerða háskólamenntaðra var sleginn af. RÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SIGURÐUR
BESSASON
DRÍFA
SNÆDAL
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Markísur
Aukahlutirí mikluúrvali
5.700 svín
EÐA AFURÐIR ÞEIRRA
hafa ekki ratað í verslanir og á borð
landsmanna miðað við framleiðsl-
una í mars og að verkfall dýralækna
hefur nú staðið í
ÞRJÁR VIKUR.
35.000 kr.
VERÐUR
LÁGMARKSHÆKKUN
í launatöflu samkvæmt kröfugerð
Flóabandalagsins, en að því standa
Efling stéttarfélag, verkalýðsfélagið
Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavíkur og
nágrennis.
8 DAGA
TEKUR AÐ KJÓSA
um verkfallsboðun VR, LÍV og Flóa-
bandalagsins. Kosning um aðgerðir
hófst í gær og lýkur 19. þessa mánaðar.
19
37 sáttamál
HAFA RATAÐ Á BORÐ RÍKISSÁTTASEMJARA
á þessu ári. Þremur er lokið og eitt var sameinað
öðru máli á vegum AFL starfsgreinafélags. Eftir standa 33 mál.
138 KJARASAMNINGAR
ERU LAUSIR ÞAÐ SEM AF ER ÁRI
eftir því sem lesa má úr gögnum á vef Ríkissáttasemjara. Frá júní og út árið
bætast um 18 samningar við.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
8
-0
1
3
C
1
6
3
8
-0
0
0
0
1
6
3
7
-F
E
C
4
1
6
3
7
-F
D
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K