Fréttablaðið - 13.05.2015, Side 6
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
RÚSSLAND Tvö hundruð og tuttugu
rússneskir hermenn féllu í tveimur
bardögum í Austur-Úkraínu sam-
kvæmt skýrslu sem unnin var af
rússnesku stjórnarandstöðunni sem
birtist í gær.
Í skýrslunni má finna upplýsingar
sem teknar voru saman af stjórnar-
andstæðingnum Boris Nemtsov, sem
skotinn var til bana í Moskvu síðast-
liðinn febrúar.
Skýrslan sem heitir „Stríð Pútíns“
hefur verið gefin út á nýjum rúss-
neskum vefmiðli.
Ilya Yashin, einn bandamanna
Nemtsovs, lagði lokahönd á skýrsl-
una. Yashin sagði skýrsluna vera
unna af „sönnum þjóðernissinna
sem er andvígur einangrunarstefnu
forsetans Pútíns“. Fram koma upp-
lýsingar um hvernig 150 rússnesk-
ir hermenn voru drepnir í lykil-
bardaga í ágúst 2014 við smábæinn
Ilovaisk í Donetsk-héraði í Úkraínu.
Þá segir að nýlega hafi 70 rúss-
neskir hermenn fallið í bardaga um
bæinn Debaltseve, sem stuðnings-
menn rússneskra uppreisnarmanna
náðu á sitt vald eftir að vopnahlé var
undir ritað.
„Allar vangaveltur um rússnesk
afskipti eru viðkvæmar í Moskvu
og leitin að prentsmiðju sem fékkst
til að prenta skýrsluna hefur reynst
erfið,“ sagði Yashin.
Á sama degi og skýrsla stjórnar-
andstæðinganna var birt funduðu
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
John Kerry, og forseti Rússlands.
Þetta var fyrsta heimsókn Kerrys
til Rússlands eftir að átök í Úkraínu
hófust árið 2014. - ngy
Skýrsla sem hefur að geyma upplýsingar frá stjórnarandstæðingnum Boris Nemtsov var gefin út í gær:
Rússneska stjórnarandstaðan gefur út skýrslu
BANDAMAÐUR NEMTSOVS Hundrað
og fimmtíu rússneskir hermenn voru
drepnir í bardaga í Úkraínu í ágúst
2014.
SVONA ERUM VIÐ
73-74 fullorðin pör mynda hafarnar-
stofninn á Íslandi (2014).
DÓMSMÁL Tryggingamiðstöðin
á að greiða Ásgeiri Guðmunds-
syni, sem flaug á rafmagnslínu
í Vopnafirði, fullar slysabætur
en ekki aðeins þriðjung. Þetta er
niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur.
Lítilli eins hreyfils Cessna-
flugvél var 2. júlí 2009 flogið á
rafmagnslínu sem strengd var
yfir Selá í Vopnafirði og var í
12,5 metra hæð þar sem vélin
lenti á honum. Í slysinu lést Haf-
þór Hafsteinsson, sem þá var
stjórnarformaður Avion Air craft
Trading.
Ásgeiri var haldið sofandi í
öndunarvél í tíu daga. Hann var
síðar metinn með 66,5 prósent
örorku og ófær um að taka upp
starf sitt sem atvinnuflugmaður.
Tryggingamiðstöðin neitaði að
greiða Ásgeiri slysabætur með
„vísan til þess að hann hafi sem
flugmaður vélarinnar TF-GUN
sýnt af sér stórkostlegt gáleysi
þegar flugvélinni hafi verið flog-
ið á rafmagnslínu rétt yfir jörðu
þannig að hún brotlenti“, eins og
segir í dómi héraðsdóms. Sam-
kvæmt niðurstöðu úrskurðar-
nefndar í vátryggingamálum
greiddi TM þó manninum þriðj-
ung slysabótanna áður en málið
endaði í dómsal.
Í skýrslu Rannsóknarnefnd-
ar flugslysa er gengið út frá því
að Ásgeir hafi verið flugmaður
Cessna-vélarinnar þegar hún
fórst. Í stefnu Ásgeirs segir hins
vegar að það sé óupplýst hvort
hann hafi stýrt flugvélinni þegar
henni var flogið á rafmagnslín-
una. Þótt ekki leiki vafi á því að
hann hafi verið skráður flug-
maður vélarinnar í þessari ferð,
hafi Hafþór einnig verið flug-
maður og getað stýrt vélinni úr
farþegasætinu. Þar sem Ásgeir
muni ekkert eftir aðdraganda
slyssins og Hafþór sé látinn sé
ekki hægt að fullyrða hvor hafi
stýrt flugvélinni.
Héraðsdómur tekur undir þetta
og segir Tryggingamiðstöðina
ekki hafa axlað sönnunarbyrði
sína um að það hafi í reynd verið
Ásgeir sem flaug vélinni.
„Ekkert verður fullyrt um það
hver hafi stýrt vélinni á þeirri
stundu, þótt skýrar vísbending-
ar séu fyrir hendi um að það hafi
verið stefnandi [Ásgeir], sem til-
kynnt hafði um sjálfan sig sem
flugmann vélarinnar,“ segir í
dóminum sem jafnframt hafn-
ar því sem Tryggingamiðstöðin
hélt fram að um „stórkostlegt
gáleysi“ hafi verið að ræða.
Mennirnir tveir höfðu verið í
heimsókn í veiðihúsi við Selá og
voru að fljúga þar yfir í kveðju-
skyni á leið sinni frá Vopna-
fjarðarflugvelli og suður þegar
véli rakst á raflínuna sem hékk í
tveimur staurum sem 378 metr-
ar eru á milli. Þetta lágflug segir
dómurinn hafa verið gáleysislegt
og ámælisvert.
„Þegar litið er til þess hvern-
ig slysið bar að, í ljósi þess sem
fyrr segir um legu raflínunnar,
aðstæðna á vettvangi og atvika
að öðru leyti, verður þó ekki fall-
ist á það með stefnda [TM] að í
háttsemi stefnanda [Ásgeirs]
hafi, eins og á stóð, falist slíkt
gáleysi að bótaréttur hans verði
Ósannað hvor flaug í
Vopnafjarðarslysinu
Héraðsdómur Reykjavíkur segir ósannað hvor mannanna tveggja í flugvél, sem
fórst við Selá í Vopnafirði í júlí 2009, flaug vélinni. Þótt flugið hafi verið ámælis-
vert beri Tryggingamiðstöðinni að greiða manninum sem lifði bætur.
Ekkert verður fullyrt
um það hver hafi stýrt
vélinni á þeirri stundu.
Héraðsdómur Reykjavíkur.
HAFÞÓR
HAFSTEINSSON
ÁSGEIR
GUÐMUNDSSON
SLYS Einn maður er látinn og annar
lífshættulega slasaður eftir að fjög-
urra sæta Cessna-vél flaug á raf-
línur rétt við veiðihúsið Hvamms-
gerði við Selá í Vopnafirði.
„Það er ekkert sem bendir til
bilunar í vél. Mennirnir hafa lík-
lega misreiknað flughæðina,“ segir
Björn Sigurbjörnsson slökkviliðs-
stjóri á Vopnafirði.
Hann segir að vélin hafi verið
nýtekin á loft frá flugvellinum á
Vopnafirði, en veiðihúsið er tólf til
þrettán kílómetra norður af þorp-
inu.
Gestir í veiðihúsinu urðu vitni
að slysinu og Baldur Friðriksson
læknir á Vopnafirði segir að svo
virðist sem mennirnir hafi verið að
taka lítinn hring á leið sinni suður.
„Það er ólíklegt að þeir hafi verið
að reyna að lenda. Þarna er engin
flugbraut, enginn bali eða tún eða
neitt,“ segir Baldur. Mennirnir hafi
sér virst vera á miðjum aldri.
Baldur segir að banaslys séu
ávallt mikið áfall, en ekki síst í litlu
þorpi þar sem langt er í stórar heil-
brigðisstofnanir og engin teymi til
staðar til að bregðast við áföllum.
„Ef tveir slasast er það hópslys hjá
okkur,“ segir hann. Presturinn á
staðnum hafi veitt fólki áfallahjálp.
Vélin hafði lent á Vopnafjarðar-
flugvelli klukkan 14.35 og flug-
áætlun gerði ráð fyrir að hún
færi þaðan aftur um klukkan 16.
Slysið varð síðan rétt eftir klukkan
16, en til stóð að lenda vélinni á
Tungubakka flugvelli í Mosfellsbæ
klukkan 18 í gær.
Sjúkraflug kom frá Akureyri og
sótti þann sem lifði af. Flogið var
með hann til Reykjavíkur á sjöunda
tímanum.
Á Landspítala var ekki frekari
upplýsingar að fá á tíunda tímanum
í gærkvöldi en þær að maðurinn
væri lífshættulega slasaður.
Hjördís Guðmundsdóttir hjá Flug-
stoðum, sem reka flesta flugvelli
landsins, segir að flugáætlun vélar-
innar og annað sem viðkomi Flug-
stoðum hafi allt verið með eðlilegu
móti.
Hvorugur mannanna mun hafa
verið frá Vopnafirði. - kóþ
Maður látinn eftir að vél
var flogið á línu við Selá
Einn er látinn og annar lífshættulega slasaður eftir að lítil Cessna-vél flaug á raflínu í gær við Selá í Vopna-
firði. Flugmaður mun hafa misreiknað flughæð vélarinnar. Læknir segir þetta mikið áfall í litlu þorpi.
Vopnafjörður
Vop
nafj
örð
urSlysstaður
Se
lá
FLUGSLYS VIÐ SELÁ
Fréttablaðið 3. júlí 2009
skertur á grundvelli laga um
vátryggingasamninga vegna
stórkostlegs gáleysis við stjórn
flugvélar,“ segir dómurinn, sem
leggur fyrir Tryggingamið-
stöðina að greiða Ásgeiri með
vöxtum það sem á vantar upp á
tæplega 8,5 milljóna króna slysa-
bætur. gar@frettabladid.is
Lítill hringur sem floginn var til að
kveðja félaga í veiðihúsi endaði
hörmulega.
Fyrsta opinbera heimsókn Frakklands-
forseta til Kúbu í meira en öld
SÖGULEG HEIMSÓKN François Hollande, forseti Frakklands, fór í opinbera heim-
sókn til Kúbu en hann er fyrsti franski forsetinn sem þangað fer í meira en öld.
Hollande er einnig fyrsti vestræni þjóðarleiðtoginn sem heimsækir kommúnistaeyj-
una síðan sættir voru tilkynntar milli stjórnvalda í Havana og Washington í Banda-
ríkjunum í desember. Þeir Raul Castro, forseti Kúbu, og Hollande hittust í gær en
Hollande hitti einnig bróður Rauls, Fidel Castro, en þeir funduðu í um klukkustund.
Á fundi í Háskólanum í Havana sagði Hollande að hann myndi berjast fyrir því að
þær aðgerðir sem hafa skaðað þróun Kúbu yrðu afnumdar og vísaði þar til við-
skiptahindrana Bandaríkjanna sem enn eru í gildi þrátt fyrir að samskipti milli Kúbu
og Bandaríkjanna hafi skánað undanfarna mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
8
-9
5
5
C
1
6
3
8
-9
4
2
0
1
6
3
8
-9
2
E
4
1
6
3
8
-9
1
A
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K