Fréttablaðið - 13.05.2015, Side 18
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Alþingi hefur nú til umfjöllunar tillögu
meirihluta atvinnuveganefndar sem gerir
ráð fyrir að færa virkjanahugmyndir við
Skrokköldu á Sprengisandi, Hagavatn
sunnan Langjökuls og í neðrihluta Þjórs-
ár í orkunýtingarflokk rammaáætlunar.
Þetta gefur orkufyrirtækjum skotleyfi
á umrædd landsvæði án þess að nokkur
þessara virkjana hafi hlotið fullnægjandi
málsmeðferð sem lög mæla fyrir um.
Ég spyr hvort fólk sætti sig við þetta og
telji vinnubrögð sem þessi líkleg til sátta
um orkunýtingu í landinu? Hvað segir
umhverfisráðherra? Hvað segir forstjóri
Landsvirkjunar? Hvað segir formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar? Hvað segir
þú lesandi góður?
Lög um rammaáætlun kveða á um
skýrt verklag. Umhverfisráðherra ber
að leggja tillögur um flokkun virkjana-
hugmynda fyrir Alþingi. Í þessu máli
hefur það ekki verið gert nema um eina
hugmynd í neðrihluta Þjórsár, Hvamms-
virkjun. Faghópar eiga að meta verðmæti
svæða og áhrif virkjana á þau, gefa þeim
stig og raða eftir verðmætum á þess-
um forsendum. Vorið 2013 tók ný verk-
efnisstjórn rammaáætlunar til starfa og
vinnur nú að 3. áfanga áætlunarinnar. Í
endurskoðun hennar á flokkun virkjana-
hugmynda í neðrihluta Þjórsár var engri
stigagjöf beitt og enginn samanburður
fékkst við aðrar virkjanahugmyndir. Fag-
hópar í núverandi áfanga hafa ekki enn
metið Skrokköldu- og Hagavatnsvirkjun
en vinnu þeirra ber lögum samkvæmt
að leggja til grundvallar mati verkefnis-
stjórnar á hverjum tíma. Alþingi getur
tæpast fært þessar virkjanahugmyndir
til án þess að þessi vinna hafi farið fram.
Áhöld eru því um hvort tillagan standist
hreinlega lög.
Burtséð frá lagalegum atriðum er ljóst
að verði tillaga meirihluta atvinnuvega-
nefndar að veruleika felur það í sér alvar-
legt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu
í landinu. Rammaáætlunarferlinu yrði
hreinlega kastað fyrir róða. Á nýafstöðn-
um aðalfundi Landverndar var skorað
á alþingismenn að fresta ákvörðun um
þessar fimm virkjanahugmyndir og fella
þær inn í niðurstöður 3. áfanga ramma-
áætlunar sem kunngerðar verða eftir ein-
ungis eitt ár. Þar með fengist raunveru-
legur samanburður virkjanahugmynda til
grundvallar flokkun þeirra í verndar- og
orkunýtingarflokk.
Nú dugar ekkert minna en að slá í
potta og pönnur á Austurvelli til vernd-
ar hálendinu og rammaáætlunarferlinu.
Skilaboð okkar eru skýr: Vér mótmælum
öll!
Mótmælum rofi á rammaáætlun!
UMHVERFIS-
MÁL
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
framkvæmdastjóri
Landverndar
Andlitskrem
fyrir þurra húð
Fæst í apótekum
· Engir parabenar
· Engin ilmefni
· Engin litarefni
Uppnefni og virkjanakostir
Þingstörf voru með hefðbundnu
sniði í gær. Minnihlutinn fór fram á
breytingu á dagskrá sem var felld,
ræddi fundarstjórn forseta í
dágóðan tíma og benti á að
ekki væri á þau hlustað.
Þó má með sanni segja að
stóra málið á þingi í gær
hafi verið uppnefni sem
Róbert Marshall skellti fram
í ræðustól þingsins. Upp-
nefnið fór fyrir brjóstið
á formanni þing-
flokks Sjálfstæðis-
flokksins svo hún
sá sig knúna til að
koma í ræðustól
og gagnrýna
munnsöfnuð
Róberts.
Friðjón og kommarnir
Í áranna rás hafa ýmis orð fallið
þingi sem hafa farið misvel í þjóð og
þingheim. Róbert notaði þó ekki orð
eins og „gunga“ og „drusla“ til að
lýsa hugsunum sínum í garð for-
manns atvinnuveganefndar. Það
sem fór svo fyrir brjóstið á
þingflokksformanninum
var einfalt. Í miðjum
ófriðnum á þingi um
rammaáætlun
og breytingu á
virkjanakostum
var Jón kall-
aður „Friðjón
Gunnarsson“.
Misbauð kímnigáfu hennar
„Það er þegar háttvirtur þingmaður
leyfir sér hér að kalla þingmenn
einhverjum nöfnum sem þeir ekki
heita,“ sagði Ragnheiður og var
mikið niðri fyrir.
Róbert taldi nú líklegt að þetta
myndi ekki raska svefni háttvirts
þingmanns Jóns Gunnarssonar
og benti á að hann hafi sjálfur
kallað hann kommúnista í
þrígang hér á árum áður. „En ég
bið hins vegar háttvirtan þing-
mann Ragnheiði Ríkharðsdóttur
afsökunar á því að hafa
misboðið kímnigáfu
hennar“ - saS
amtök atvinnulífsins kölluðu eftir því í Fréttablaðinu í
gær að verkalýðshreyfingin sameini sig í þeim kjara-
viðræðum sem í gangi eru þannig að þær nái bæði til
almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera. „Ég held að
svona snúin staða leysist aldrei öðruvísi en náist að eyða
ákveðinni tortryggni, sem ríkt hefur á milli aðila, með því að menn
komi þá bara sameiginlega að borðinu,“ sagði Þorsteinn Víglunds-
son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Fjármálaráðherra
hefur áður kallað eftir þjóðarsátt
Staðan er sú að 165 kjarasamningar eru lausir á þessu ári. Þeir
taka bæði til almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera. Ríkis-
sáttasemjari segist ekki muna
eftir öðru eins, tugir þúsunda
launþega séu í þeim félögum sem
hafa ákveðið að fara í verkfall eða
leitað heimilda til þess.
Borið er í bakkafullan lækinn
ef bent er á afleiðingar þessara
aðgerða sem nú þegar hafa gert
vart við sig. Fréttastofa Stöðvar
2 greindi í gær frá konu sem ekki
hafði komist í eftirlit vegna krabbameinsmeðferðar. Sögur í þessa
veru eru fleiri og þær eru átakanlegar. Mannslífin verða illa metin
til fjár. Fjárhagslegt tjón er samt sem áður einnig staðreynd og
verður meira eftir því sem verkfallsaðgerðirnar harðna.
Í gær var greint frá því að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
hafi fengið drög að tilboði sem félagið ætlar sér að liggja yfir í
viku. Boðað verkfall hjúkrunarfræðinga hefst svo þann 27. maí.
Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram tilboð til Starfsgreinasam-
bandsins, iðnaðarmanna, VR og Flóabandalagsins og BHM fékk
einnig óformlegt tilboð frá ríkinu í vikunni.
Flestir hafa samúð og skilning á kröfum verkalýðsfélaganna
þess efnis að lægstu laun séu hækkuð og að fólk geti framfleytt
sér á dagvinnulaunum. Samtök atvinnulífsins halda því fram að
slík krafa sé aldrei svo einföld. Hækkun lægstu launa sé ekki eina
krafan heldur hækkun yfir línuna – launaskrið. Nokkurs konar
höfrungahlaup sem endi með því að hækkanir eru orðnar inni-
stæðulausar og ábatinn af hærri launum verði að lokum enginn.
Það er ljóst að ástandið er orðið slíkt að harmakvein atvinnu-
rekenda með beiðni um sameinaðar kröfur verkalýðsfélaganna er
ekki að ástæðulausu. Það sér hver maður að 40 mál á borði ríkis-
sáttasemjara er vægast sagt meira en góðu hófi gegnir. Hvaða
verkalýðsforingi ætlar að verða fyrstur til að semja og bera slíkan
samning undir félagsmenn sína og eiga á hættu að næsta félag nái
betri samningum en hann? Það vill enginn ganga frá samningum
af ótta við að aðrir muni beita ýtrustu úrræðum til að fá meira.
Staðan er snúin og kallað hefur verið á aðkomu ríkisins. Í Frétta-
blaðinu í gær sagði Þorsteinn að ríkið hefði nú þegar lýst vilja til að
koma að lausn, svo sem með skattkerfisbreytingum og breytingum
á húsnæðismarkaði.
Einhver þarf að höggva á þennan rembihnút. Pressan hefur
verið á atvinnurekendum og stjórnvöldum hingað til. Nú er komið
að verkalýðshreyfingunni að stíga skref í átt til sáttar og reyna
að liðka fyrir lausn. Sé sameining viðræðnanna lausnin verður að
sameina þær. Það er ábyrgðarhluti að gera það ekki.
Leita þarf allra ráða til að leysa vandann:
Sameina þarf
kjaraviðræður
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
7
-B
C
1
C
1
6
3
7
-B
A
E
0
1
6
3
7
-B
9
A
4
1
6
3
7
-B
8
6
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K