Fréttablaðið - 13.05.2015, Qupperneq 46
13. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
REST heilsurúm
Fyrir þínar
bestu stundir
MEIRA Á
dorma.is
COMFORT heilsurúm
LUXURY heilsurúm Nature’s Luxury dýna
með Classic botni
Stærð cm Dormaverð
120x200 129.900 kr.
140x200 155.900 kr.
160x200 169.900 kr.
180x200 189.900 kr.
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Góðar kantstyrkingar
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Steyptar kantstyrkingar
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Þrýstijöfnunar yfirdýna
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
Nature’s Comfot dýna
með Classic botni
Stærð cm Dormaverð
100x200 99.900 kr.
120x200 119.900 kr.
140x200 138.900 kr.
160x200 149.900 kr.
180x200 164.900 kr.
Nature’s Rest dýna
með Classic botni
Stærð cm Dormaverð
90x200 68.900 kr.
100x200 72.900 kr.
120x200 79.900 kr.
140x200 92.900 kr.
160x200 99.900 kr.
180x200 117.900 kr.
Bandaríski dansf lokkurinn
Bandaloop hefur sérhæft sig í
lóðréttum dansi þar sem samein-
ast danstækni, líkamlegur styrk-
ur, fimi og klifurtækni við undir-
leik tónlistar í magnaðri upplifun
fyrir áhorfendur. Í anda þeirrar
stefnu Listahátíðarinnar verður
settur upp sérstakur aðgengispall-
ur fyrir hreyfihamlaða á Ingólfs-
torgi og verður aðgengið að pall-
inum frá norðri og suðri en rétt að
hvetja alla til þess að mæta tíman-
lega og koma sér vel fyrir til þess
að njóta sýningar þessa óvenjulega
dansflokks.
Amelia Rudolph, listrænn
stjórnandi og stofnandi dans-
flokksins, hefur leitt danssýning-
ar fram yfir ystu brún skýjakljúfa,
stórbygginga og klettabjarga víða
um veröldina og í dag kl. 17.30
dansa þau sig fram af brúninni í
Aðalstræti 6 í hjarta Reykjavíkur.
Klifrandi dansari
„Ég hef verið að dansa meira
og minna alla mína tíð en fyrir
meira en tuttugu árum fór ég
að stunda klifur og þá fór ég að
pæla í lóðréttu rými sem mögu-
legu dansrými. Það var eigin-
lega upphafið að þessu,“ segir
Amelia Rudolph, hæglát og bros-
mild kona frá Kaliforníu sem
hefur farið um víða veröld með
dansflokkinn sinn. „Það má eigin-
lega segja að þetta bæti við þriðju
víddinni. Með þessu öðlumst við
ákveðið frelsi sem dansarar og
danshöfundar. Gerum hluti sem
væru útilokaðir á hefðbundnu
sviði en óneitanlega felur þetta
líka í sér takmarkanir því við
erum að sjálfsögðu bókstaflega
bundin við brúnina og þannig
með takamarkað rými. Við erum
ekki frjáls undan þyngdaraflinu
þó svo við ögrum því og leikum
okkur að möguleikum þess og
takmörkunum.“
Allt eftir aðstæðum
Allt frá upphafi hefur Banda-
loop-hópurinn vaxið þétt enda
eftir spurnin eftir svimandi glæsi-
legum sýningum flokksins mikil.
Amelia segist vera að mestu hætt
að finna til lofthræðslu eða sér-
stakrar spennu gagnvart svið-
inu en að hver og ein sýning hafi
sín sérkenni allt eftir aðstæðum
hverju sinni. „Já, það er mikilvægt
að taka tillit til aðstæðna hverju
sinni og við erum alltaf með ofur-
áherslu á öryggi dansaranna. Við
erum búin að vera lengi á leiðinni
til Íslands og því valdi ég þau þrjú
verk sem verða sýnd hér af kost-
gæfni og eftir aðstæðum. Það er
mikilvægt fyrir fólk að hafa í huga
að þetta er ekki loftfimleikasýn-
ing heldur dans, þó svo að upplif-
unin sé eflaust ansi svimandi fyrir
marga. Tónlistin er þannig ákveð-
inn þáttur af upplifuninni, einnig
búningarnir og stundum er lýs-
ingin það líka þó að hér sé of bjart
svona snemma vors til þess að lýsa
sýninguna.“
Símana í vasann
Þau í Bandaloop-hópnum eru
frumkvöðlar á þessu lóðrétta
sviði dansins en fleiri hafa reynd-
ar fylgt í kjölfarið. „Eftirspurnin
er mikil og ég fagna því að það
skuli fleiri vera að fást við þetta
svið. Við erum að auki með annan
hóp, eins konar B-dansflokk, þar
sem dansararnir eru þjálfað-
ir upp og auk þess þá gefur það
okkur möguleika á að stækka
sýningar þegar við á. Það er
líka mikilvægt að hafa í huga
að áhorfendur eru í raun hluti
af sýningunni. Við sem erum að
dansa skynjum upplifun þeirra
og finnum meira að segja fyrir
ákveðnum mun á áhorfendum
eftir því hvar við erum í heim-
inum. Við heyrum bæði andköf-
in og þagnirnar og finnum vel
þegar vel tekst til og við erum að
ná til fólksins. Ég vil líka hvetja
áhorfendur til þess að láta símana
ekki spilla fyrir sér upplifuninni.
Ekki horfa á sýninguna í gegnum
skjáinn þótt það sé gaman að taka
upp og setja á netið – gerið það
þá bara stutta stund, setjið svo
símann í vasann og njótið þess að
upplifa. Það er miklu skemmti-
legra þannig og það er nóg af
myndum af okkur á netinu.“
magnus@frettabladid.is
Á lóðréttu danssviði
Listahátíðin í Reykjavík, fyrri hluti, hefst í dag með magnaðri opnunarhátíð kl.
17.30 á Ingólfstorgi þar sem framhlið byggingarinnar í Aðalstræti 6 myndar
sviðið fyrir Ameliu Rudolph og dansarana hennar í Bandaloop.
ÓTTALAUS Amelia Rudolph er hætt að finna fyrir ótta þegar hún stígur fram á lóðrétta sviðið með dansflokkinn sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bandaloop-dansflokkurinn hefur frá 1991 sýnt víða um veröldina og notið
mikillar velgengni. Á meðal staða þar sem Bandaloop hefur komið fram
má nefna Kauphöllina í New York, Alþjóðlegu fjármálamiðstöðina í Seul í
S-Kóreu, Space Needle í Seattle, björg í Sierra Nevada-fjallgarðinum, Cen-
art í Mexíkóborg, á LIC-bygg-
ingunni í Nýju-Delí og svo
mætti lengi telja. Bandaloop
kemur einnig fram á hefð-
bundnu sviði bæði með og án
svifbúnaðar. Meginmarkmið
dansflokksins er að færa
dansinn til nýrra áhorfenda
með nýjum og spennandi
leiðum og heiðra með því
náttúru og samfélag.
Bandaloop
BANDALOOP Fjölmenni fylgdist með lokaæfingu dansflokksins í góða verðinu í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNING
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
8
-2
3
C
C
1
6
3
8
-2
2
9
0
1
6
3
8
-2
1
5
4
1
6
3
8
-2
0
1
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K