Morgunblaðið - 03.12.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Styrmir Gunnarsson skrifar áEvrópuvaktina:
Finnland er aðverða „hinn
sjúki maður Evr-
ópu“, eins og það er
orðað í Financial
Times.
Yfirstandandi ár er hið þriðja íröðinni, þegar kemur að
minnkandi vergri landsframleiðslu.
Verði hagvöxtur í Finnlandi ánæsta ári verður hann vart
sjáanlegur, segir blaðið.
Þingkosningar fara fram í aprílnk.
FT segir að staðan í Finnlandikippi stoðunum undan kenn-
ingum um að vandi evrusvæðisins
væri bundinn við Suður-Evrópu en í
norðri væru ríkin, sem stæðu sig
efnahagslega.
Alexander Stubb, forsætisráð-herra Finnlands, hefur líkt
ástandinu í Finnlandi við hinn
týnda áratug Japana.
Hér á Íslandi hefur Finnlandiverið hampað undanfarin ár
sem lýsandi dæmi um kosti þess að
taka upp evru.
En fleira kemur til sögunnar enevran.
Fall Nokia kemur við sögu svoog lægð í pappírsframleiðslu.
Efnahagsvandamál Rússa skipta
máli vegna þess að Rússar eru
mikilvægasta viðskiptaþjóð Finna.
Opinbera kerfið í Finnlandi tekur
til sín um 57,8% af vergri lands-
framleiðslu.
Alexander Stubb
Frændi vor leggst
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 8 rigning
Nuuk -5 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 0 alskýjað
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 0 snjókoma
Brussel 1 súld
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 3 upplýsingar bárust ek
London 7 skúrir
París 2 súld
Amsterdam 2 þoka
Hamborg -2 alskýjað
Berlín -2 alskýjað
Vín 2 skúrir
Moskva -10 þoka
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg -21 léttskýjað
Montreal -12 léttskýjað
New York 3 alskýjað
Chicago -1 léttskýjað
Orlando 25 skýjað
3 up lýsingar bárust ekki
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:52 15:45
ÍSAFJÖRÐUR 11:28 15:18
SIGLUFJÖRÐUR 11:13 14:59
DJÚPIVOGUR 10:28 15:07
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„ÍR gerði samning við borgina í upp-
hafi þessa árs. Hluti af því var að hér
yrði lagður fyrsti félagsvöllurinn fyrir
frjálsar íþróttir í borginni,“ segir
Haukur Þór Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri ÍR. Borgarráð sam-
þykkti nýverið að hafinn yrði undir-
búningur að hönnun frjáls-
íþróttavallar ÍR í Suður-Mjódd og
útboðsgögn undirbúin með það að
markmiði að hefja framkvæmdir á
næsta ári. Borgarráð samþykkti jafn-
framt að 50 milljónum kr. yrði varið í
framkvæmdaáætlun 2015 vegna
verkefnisins. Völlurinn verður lagður
vestur af aðalknattspyrnuvelli félags-
ins og mun hann uppfylla allar kröfur
Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins fyr-
ir félagsvöll.
„Ég held að það geti allir verið sam-
mála um það að það er mikil þörf fyrir
svona völl hérna í Reykjavík. Það er
vissulega ágætis völlur í Laugardaln-
um en aðgengi að honum er orðið svo
rosalega takmarkað,“ segir hann og
bætir við að völlurinn sé gerður fyrir
frjálsar íþróttir í heild sinni í borginni
og hann muni verða opinn öllum
frjálsíþróttamönnum Reykjavíkur.
Frjálsíþróttavöllur lagður í Breiðholti
Svæði ÍR í Suður-Mjódd mun uppfylla
kröfur Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins
Morgunblaðið/RAX
Mjódd Fyrsti félagsvöllurinn fyrir
frjálsar íþróttir lagður í Reykjavík.
Ársþing Sjómannasambands Ís-
lands verður haldið á Grand Hótel
Reykjavík á morgun og föstudag og
þá tilkynnir Sæv-
ar Gunnarsson að
hann ætli ekki að
gefa áfram kost á
sér sem formaður
sambandsins.
Eyjafréttir
greindu frá því
fyrir skömmu að
þar sem Sævar
ætlaði ekki að
halda áfram í for-
ystu fyrir Sjó-
mannasambandið hefði Valmundur
Valmundsson, gjaldkeri þess og for-
maður Sjómannafélagsins Jötuns í
Vestmannaeyjum, ákveðið að gefa
kost á sér í embætti formanns.
Sævar segir að á stjórnarfundi
hafi verið ákveðið að hann segði frá
framgangi málsins á ársþinginu.
„Ég ætla að standa við það,“ segir
hann, en neitar ekki fréttum þess
efnis að hann ætli að stíga til hliðar
eftir að hafa gegnt formennsku í 20
ár og einn mánuð.
Tvö stórmál
Áður en Sævar var kjörinn for-
maður Sjómannasambands Íslands
1994 var hann formaður Sjómanna-
og vélstjórafélags Grindavíkur í 15
ár. Hann segir að tvö stórmál þarfn-
ist úrlausnar í kjarasamningum sjó-
manna við útvegsmenn. Krafa út-
gerðarmanna hafi verið um háar
fjárhæðir til að borga veiðileyfagjöld
og hækkaðan olíukostnað.
„Nú hafa veiðileyfagjöld lækkað
um 50% og olían líka en krafan
stendur,“ segir hann og áréttar að
veiðileyfagjöld eigi ekki að koma
niður á kjörum sjómanna. Hann
bætir við að ástandið varðandi verð-
myndun á fiski sé óleyst og þar sé
sama stríð og verið hafi um aldamót.
Færri slys
Sævar segist vera einna stoltastur
af því hvað gengið hafi vel með
Slysavarnaskóla sjómanna, þar sem
Sjómannasamband Íslands hafi átt
hlut að máli í um tvo áratugi. Tekist
hafi að ná niður slysatíðni og dauðs-
föllum úti á sjó og það sé einkar
ánægjulegt. Námskeið fyrir ófag-
lært fólk hafi líka verið af hinu góða.
„Mér finnst það segja sína sögu
um að ég hafi gert eitthvað rétt að
ég hef aldrei fengið mótframboð,
hvorki í Grindavík né hjá Sjómanna-
sambandinu,“ segir Sævar sem leit-
ar nú á önnur mið. steinthor@mbl.is
Sævar
Gunnarsson
Breytingar hjá Sjó-
mannasambandinu
Sævar hættir sem formaður
Hverfisgata 4
101 Reykjavík
s: 537 4007
info@hverfisgalleri.is
www.hverfisgalleri.is
opið 11-17 þri-fös & 13-16 lau
Georg Guðni
Jeanine Cohen
Guðjón Ketilsson
Kristinn E. Hrafnsson
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
Magnús Kjartansson
Harpa Árnadóttir
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
Hildur Bjarnadóttir
Sigurður Árni Sigurðsson
Hrafnhildur Arnardóttir
Tumi Magnússon