Morgunblaðið - 03.12.2014, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 03.12.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014 fi p y j g p C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa mauki Bruchetta íreymeð tv ðlatu hangikjöti, bal- samrau og piparrótarsósu heBruc ta með hráskinku, balsam rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g meti Krabba a- s a l ðboferskum kryddjurtum í brau Bruchetta rðameð Miðja hafs-tapende aRisa- rækj spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is Möndlu Mix og Kasjú Kurl er ekki bara hollt snakk. Líka gott í salatið. Hollt og gott frá Yndisauka. Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum, Melabúðinni, Fjarðarkaup, Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna Akureyri. SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Landfylling við aðalhafnargarðinn á Akranesi er til skoðunar hjá Faxa- flóahöfnum og Akranesbæ vegna áforma HB Granda um að reisa þar byggingar undir fiskvinnslu og tengda útgerðarstarfsemi. Bæjarráð Akraness fjallaði nýver- ið um erindi Faxaflóahafna um land- fyllinguna og vísaði því til umsagnar skipulags- og umhverfisráðs og til starfshóps vegna Breiðar og hafnar- svæðisins. Vakti bæjarráð jafnframt athygli á mikilvægi þess að greina áhrif landfyllingar á fjöruna við Langasand. Stærð landfyllingarinnar er allt að 70 þúsund fermetrar og áætlaður framkvæmdakostnaður er 1,7 til 2,1 milljarður króna. Landfyllingin er nokkuð minni en gert er ráð fyrir í núverandi deiliskipulagi Akraness. Um nokkurra ára skeið hefur landfylling á þessum stað verið til skoðunar. Siglingastofnun skilaði af sér skýrslu í mars árið 2009, að beiðni Faxaflóahafna, þar sem gerð var úttekt á ýmsum þáttum undir- búnings fyrir þróun hafnar og hafn- arlands á Akranesi. Það var síðan í haust að HB Grandi kynnti hug- myndir sínar á fundi hafnarstjórnar Faxaflóahafna um starfsemi á land- fyllingunni og núverandi hafnar- svæði. Er þar m.a. gert ráð fyrir nýju frystihúsi og byggingum undir vinnslu á bolfiski og uppsjávarfiski. Fer líklega í umhverfismat Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa- flóahafna, segir að ef niðurstaða Akranesbæjar um skipulagsþáttinn verði jákvæð verði málið tekið til formlegrar afgreiðslu hjá Faxaflóa- höfnum. „Að því gefnu að öllum lítist vel á þetta þá getur þetta jafnvel orðið sameiginlegt verkefni okkar, HB Granda og bæjarins,“ segir Gísli. Hann bendir á að landfylling og aukin starfsemi við höfnina geti skil- að Faxaflóahöfnum auknum tekjum til framtíðar og því sé um spennandi verkefni að ræða. Gísli bætir þó við að ekki sé um endanlegar eða fullkláraðar hug- myndir að ræða. Tæknilega geti þetta þó gengið upp en sökum um- fangs fyllingarinnar þurfi væntan- lega að fara með framkvæmdina í umhverfismat, bæði vegna efnistöku og fyllingar. Efnistaka yrði gríðar- leg, eða um 900 þúsund rúmmetrar, þar af tæplega 500 þúsund rúmmetr- ar af fyllingarefni og 130 þúsund af völdu grjóti. Nokkrar efnisnámur í nágrenni Akraness hafa verið skoð- aðar, en reiknað hefur verið með að fyllingarefni verði flutt sjóleiðina. Efnistaka er einna helst talin fýsileg við Kirkjuból og Ytri-Hólma. Grund- artangi og Galtarvík hafa einnig komið til greina. Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, segir fyrirtækið hafa viljað leggja fram sínar hugmyndir um hvernig best væri að byggja upp aukna starfsemi á Akranesi í fram- tíðinni, í góðu samstarfi við Akra- nesbæ og Faxaflóahafnir. Miðað við áform um aukna fisk- vinnslu á Akranesi segir Vilhjálmur ljóst að þörf sé á betri hafnar- aðstöðu. „Við sjáum fyrir okkur betri aðstöðu fyrir bolfiskvinnsluna. Það er óhagræði að vera með hana í ökufæri frá löndunarstað og hagræði að breyta því í lyftarafæri eins og í Reykjavík. Við höfum aukið þorsk- vinnsluna verulega á Skaganum. Hún var um 2.000 tonn á ári fyrir nokkrum misserum en stefnir í 6.500 tonn í ár. Einnig fer að koma að því að huga að frystigeymslu á Akranesi og okkar framtíðaráform ganga út á að flytja starfsemina sem mest á einn stað,“ segir Vil- hjálmur en HB Grandi hef- ur eignast fiskvinnslufyr- irtækin Norðanfisk og Vigni G. Jónsson hf. á Akranesi auk fisk- þurrkunar sem áður var í eigu Lauga- fisks. Landfylling fyrir tvo milljarða  HB Grandi áformar aukna starfsemi á Akranesi með landfyllingu við höfnina  Til umfjöllunar hjá Akranesbæ og Faxaflóahöfnum  Ný frystigeymsla yrði reist og vinnsla á uppsjávar- og bolfiski Morgunblaðið/Árni Sæberg Akranes Yfirlitsmynd yfir hafnarsvæðið á Akranesi. Landfyllingin kæmi hægra megin á myndinni, frá skerinu að hafnargarðinum langa. Heimild: Vegagerðin/FaxaflóahafnirGrunnkort/Loftmyndir ehf. Landfylling á Akranesi vegna áforma HB Granda Landfyllingarsvæði 60 til 70.000m2 Brimvarnargarður Byggingar í dag Nýjar byggingar „Fyrstu viðbrögð eru mjög já- kvæð,“ segir Regína Ásvalds- dóttir, bæjarstjóri á Akranesi, um áform HB Granda við hafn- arsvæðið. Hún segir málið á fyrstu stigum og eftir sé undir- búningsvinna í skipulagsmálum og viðræður við Faxaflóahafnir og HB Granda. Málið verði fyrst rætt í starfshópi um hafnar- svæðið og Breiðina og síðan í skipulags- og umhverfisráði. „Við viljum líka fá mæl- ingar á áhrifum fram- kvæmdanna á Langa- sand, sem er perlan okkar Skagamanna, og munum ekki aðhaf- ast neitt sem gæti breytt aðstreymi í fjör- unni,“ segir Regína. Jákvæð viðbrögð AKRANESBÆR Regína Ásvaldsdóttir Nýverið voru unnar skemmdir á bif- reið lögregluvarðstjóra á Þórshöfn þar sem hún stóð utan við lögreglu- stöðina. Bifreiðin var rispuð og í lakkið rispuð orð sem að mati lög- reglu eru greinilega ætluð til að vega að honum og starfi hans. Lögreglan á Húsavík biður þá sem búa yfir upplýsingum um málið og vita hver eða hverjir voru að verki að hafa samband við lögregluna. Skemmdir unnar á bíl varðstjóra Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur samþykkt beiðni Íslandspósts um heimild til að loka póst- afgreiðslu í Sandgerði. Í staðinn ætlar Íslandspóstur að nota póstbíl til að sinna þjónustu við íbúa bæjar- félagsins. Það er mat stofnunarinnar að sú þjónusta sem Íslandspóstur áætlar að komi í stað póstafgreiðslu full- nægi kröfum laga um póstþjónustu, sem og skyldum sem hvíla á fyrir- tækinu sem alþjónustuveitanda. Póstbíll í stað af- greiðslu í Sandgerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.