Morgunblaðið - 03.12.2014, Blaðsíða 11
AFP
Hjálparstarf Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk berst um víða veröld gegn þeim vágesti sem ebólan er.
öflug og skipuð traustum mannskap
og flestir íbúa þekkja eitthvað til
samtakanna. Þá er samhjálpin í
þessum löndum yfirleitt mjög sterk.
Aðstæður hafa einfaldlega krafist
þess að fólk í þessum löndum standi
saman að lausn verkefna,“ segir
Hlín.
Á síðast ári, 2013, var Hlín á
vegum Alþjóða Rauða krossins í
Níger og Kamerún við undirbúnings
verkefnis Global Fund. Í krafti þess
skuldbundu ríkisstjórnir víða um
heim sig til þess að leggja baráttunni
gegn malaríu, alnæmi og berklum
lið. Það verkefni stendur enn, þó að
kólerufaraldurinn og mótleikir gegn
honum séu jafnan efst á baugi.
Raunhæft að útrýma
kólerunni
„Stundum er sagt að kóleran sé
eins og kreppan: komi á sjö ára
fresti. Sjálfsagt er sannleikskorn í
því,“ segir Hlín. „Með meira hrein-
læti mætti þó ná miklum árangri. En
þá þarf fólk að hafa aðgang að hreinu
vatni og fólk þarf að vita mikilvægi
þess að vernda mat frá flugum og
óhreinindum, þvo hendur og gæta
allmens hreinlætis. Og dropinn holar
steininn og við verðum að vænta ár-
angurs. Í mörgum ríkjum hefur það
markmið verið sett að kóleru skuli
hafa verið útrýmt árið 2020 sem ætti
að vera vel raunhæft í ákveðnum til-
vikum. En fórnirnar eru miklar. Árið
2012 smituðust meira en 30 þúsund
manns af kóleu í Síerra Leóne og Gí-
neu og þar af létust 3,7% þjóðarinnar
af völdum sóttarinnar, að stórum
hluta fólk sem hefði mátt bjarga með
skjótum og einföldum aðgerðum.“
Með ebólunni sló nokkuð í bak-
segl hjálparstarfs í Afríku. Hlín var
nýkominn til Síerra Leóne snemma
á þessu ári þegar henni bárust skila-
boð frá samstarfsmanni Rauða
krossins í Gíneu um að torkenni-
legur faraldur hefði komið upp þar í
landi og fjöldi fólks væri látinn.
Fljótlega skýrðist hvers kyns sóttin
væri, það er ebólan. Faraldurinn
kom fyrst upp í suðausturhluta Gí-
neu, sem liggur að landamærum
Síerra Leóne og Líberíu. Þar sem
landamæri ríkja á þessum slóðum
eru óskýr og fólk mikið á ferðinni
varð útbreiðsla sjúkdómsins hröð.
„Þegar komið var fram í maí
versnaði ástandið í Síerra Leóne og
Líberíu og nú eru ebólutilfellin þess-
um löndum orðið miklu fleiri en í Gí-
neu,“ útskýrir Hlín. Hún segir hjálp-
arstarfið í þessum löndum ganga út
á að koma hinum sjúku sem fyrst í
einangrun í stöðvum sem komið hafi
verið upp á vegum samtakanna
Læknar án landamæra og nú Rauða
krossins. Árangur af starfi þeirra sé
ágætur – svo langt sem það nái. Al-
mennt sé ekki auðvelt að veita við-
eigandi þjónustu þar sem einn til
tveir læknar sinni 200 til 300 þúsund
manns.
Tortryggnin vinnur
gegn okkur
„Jarðneskar leifar látinna eru
sýklagildra og smithættan mikil. Í
Gíneu er nú svo komið að sjálfboða-
liðar Rauða krossins sjá um greftrun
97% allra sem látast af völdum eból-
unnar. Og við sjáum að starfið ber
árangur, en tortryggni fólksins í
þessum löndum vinnur gegn okkur.
Fáfræði og trú á hindurvitni ráða því
að sumir telja sjúkdóminn vera sótt
hvíta mannsins, sem sæki hinn sjúka
sem svo ekki á afturkvæmt. Sjálf-
boðaliðar hafa oft verið grýttir, tekn-
ir höndum og ógnað. En allt þokast
samt í rétta átt og stuðningur úr
sjóði Evrópuráðins, það er ECHO –
European commission for humanit-
arian aid and civil protection hafa
nýst vel, rétt eins og frjáls framlög
almennings,“ segir Hlín sem nú er
komin í friðarhöfn heima á Íslandi.
Útilokar ekki að fara í fleiri verkefni
á vegum Rauða krossins á næstu
misserum, þótt starfsaldursreglur
ráði því að aðkoma hennar þá verði
eitthvað önnur en verið hefur til
þessa.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Ítölsku hljóðfæraleikararnir Danilo
Cartia og Letizia Sampaolo efna til
tónleika í Bíó Paradís í kvöld. Tví-
menningarnir hafa verið framarlega í
bluegrass-tónlistarsenunni í heima-
landi sínu síðasta áratuginn. Þau
spila á ýmis hljóðfæri og má þar
nefna banjó og gítar auk annarra
strengjahljóðfæra.
Tvíeykið Brynja og Ósk kemur einn-
ig fram á tónleikunum en þær flytja
frumsamda gítartónlist auk þess að
syngja. Brynja hefur meðal annars
ferðast mikið um Evrópu með tónlist
sína en Ósk hefur oft verið í hennar
samfylgd. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20 í kvöld en Bíó Paradís stendur
við Hverfisgötu 54. Fyrir þá sem ekki
þekkja til, þá er bluegrass-tónlistar-
stefna undirtegund kántrítónlistar
sem hefur hingað til mest verið áber-
andi í Banadríkjunum. Hún á þó ræt-
ur sínar að rekja til þjóðlagatónlistar
í Skotlandi og Englandi.
Boðið upp á Bluegrass-tónlist í kvöld
Morgunblaðið/Golli
Tónleikar Bíó Paradís stendur við Hverfisgötu 54 en þar mun bluegrass-
tónlistin óma í kvöld. Danilo Cartia og Letizia Sampaolo munu þá koma fram.
Ítalska tvíeykið Danilo Cartia og
Letizia Sampaolo í Bíó Paradís
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Desembertilboð
– á völdum postulínsborðbúnaði,
glösum og hnífapörum
Komdu
í verslu
n RV
og sjáð
u glæsil
egt
úrval af
borðbún
aði
RV
2014/11
Verslun RV er opin virka daga kl 8-18 og laugardaga kl 10 -16
Tryggir fullkomna mælingu á margskiptu gleri
Skjár sem sýnir þér nýju gleraugun frá öllum hliðum
Fljótlegt og einfalt ferli
Skilar þér fullkomnu gleri fyrir þína sjón
BYLTINGARKENND NÝJUNG
í mælingum á margskiptum glerjum
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18 LAUGARDAGA 11:00- 14:00
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 18 ÁR
Við kaup á nýjum
Essilor glerjum*
færðu önnur frítt með.
*Á við um öll venjuleg og margskipt gler. Gildir til 20. desember.