Morgunblaðið - 03.12.2014, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra hefur friðlýst sal
skemmtistaðarins Nasa við Austur-
völl, að tillögu Minjastofnunar.
Þrátt fyrir friðlýsinguna segir það
ekkert til um hvort dansað verði aft-
ur í salnum. „Minjastofnun getur
ekki sagt hvaða starfsemi fer þarna
fram. En það er mikilvægt að salur-
inn verði gerður upp og honum feng-
ið eitthvert hlutverk,“ segir Pétur
Ármannsson, arkitekt og starfs-
maður Minjastofnunar, en hann kom
að gerð tillögunnar.
Í tillögunni segir að friðlýsing taki
til innviða, rýmisskipunar og varð-
veittra hluta af upprunalegum inn-
réttingum í sal Nasa í bakálmu frið-
lýsts húss við Thorvaldsensstræti 2.
Ráðherra fer með friðlýsingarvald
og friðlýsti Sigmundur Davíð alls
fimm byggingar í lok síðasta mán-
aðar, meðal annars salinn á Nasa.
„Salurinn er að erlendri fyrir-
mynd, frá stríðsárunum og er ein-
stakur hér á landi. Það var mat okk-
ar hjá Minjastofnun að menningar-
sögulegt gildi salarins hefði verið
vanmetið. Hann er hluti af menning-
arlegu lífi miðborgarinnar enda hef-
ur fjöldi listasamkoma farið þarna
fram,“ segir Pétur.
Friðlýsing,
en óvíst
með dans
Forsætisráðherra
friðlýsti salinn á Nasa
Morgunblaðið/Ernir
Stuð Frá tónleikum í sal Nasa þar
sem dansinn dunaði í mörg ár.
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn var í
fyrradag og í tilefni þess afhentu
starfsmenn MAC fyrir hönd The
MAC Aids fund, peningastyrk að
upphæð tvær milljónir til HIV Ís-
land. Í tilkynningu segir að styrkur
úr sjóðnum hafi verið eyrnamerktur
forvarnarstarfi í 9. og 10. bekkjum í
grunnskólum á landinu öllu. For-
varnarfræðsla sé mikilvæg til að
fræða unga fólkið um sjúkdóminn og
forðast þannig fordóma í garð HIV-
smitaðra og koma í veg fyrir út-
breiðslu sjúkdómsins.
The MAC Aids fund er annar
stærsti sjóður sinnar tegundar í
heiminum í dag og stendur sjóðurinn
saman af sölu varalita og glossa sem
bera heitið Viva Glam. Hver einasta
króna af sölu Viva Glam rennur í
The MAC Aids Fund. Sjóðurinn var
stofnaður árið 1994 og hafa safnast í
hann 355 milljónir dollara frá upp-
hafi. Yfir 40 milljón manns lifa við
HIV-smit eða alnæmi í heiminum og
rúmlega 5.000 manns deyja á degi
hverjum.
The MAC Aids fund er frum-
kvöðull í vinnu á svæðum sem hafa
til þessa notið lítils stuðnings. Sjóð-
urinn styður mörg ólík samtök um
allan heim, sem bjóða upp á margs
konar þjónustu til þeirra sem þjást
beint eða óbeint af sjúkdómnum,
segir í tilkynningu.
Afhentu
styrk til
HIV Ísland
Gleði Ánægja var á afhendingunni.
Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið
neyðarsöfnun á vetrarfatnaði sem
verður komið til úkraínskra flótta-
manna í Hvíta-Rússlandi.
Hvetur Rauði krossinn alla sem
hafa tök á því til að leggja söfnuninni
lið með hvers kyns prjónafatnaði,
vetrarfatnaði og skóm, eða hlýjum
teppum. Sóst er eftir fötum fyrir alla
aldurshópa og bæði kyn.
Merkja þarf fatapoka sem ætlaðir
eru úkraínskum flóttamönnum,
„Úkraína“, áður en þeim er komið
fyrir í fatagámum Rauða krossins
eða grenndargámum. Einnig er tek-
ið við fatnaði í miðstöð fatasöfnunar
Rauða krossins í Skútuvogi 1 í
Reykjavík.
Hátt í 750 þúsund Úkraínumenn
hafa þurft að yfirgefa heimili sín
vegna stjórnmálaástandsins í Úkra-
ínu. Hluti þeirra hefur freistað þess
að sækja um pólitískt hæli í Hvíta-
Rússlandi en þar hefur Rauði kross-
inn á Íslandi stutt mannúðarverk-
efni um nokkurra ára skeið. Eitt
þeirra er fatasöfnun, þar sem hlýj-
um vetrarfatnaði er safnað og dreift
til þeirra sem á þurfa að halda.
Í tilkynningu frá Rauða kross-
inum segir, að vetrarhörkurnar í
Hvíta-Rússlandi geti verið einkar
harðar og húsin mörg illa kynt. Mik-
ilvægt sé að átta sig strax á erfiðum
aðstæðum úkraínskra flóttamanna í
Hvíta-Rússlandi, sem þurftu að yf-
irgefa heimili sín vegna stríðsátaka,
margir hverjir allslausir og illa bún-
ir.
Fatasöfnun fyrir flóttafólk
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fatasöfnun Gámar Rauða krossins
eru m.a. í móttökustöðvum Sorpu.
Rauði krossinn safnar vetrarfatnaði fyrir Úkraínumenn