Morgunblaðið - 03.12.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Hvað klikkaði?
Stundum tökum við rangar ákvarðanir og gerum mistök.
Þó mistök séu auðvitað leiðinleg meðan á þeim stendur er
lærdómurinn sem af þeim hlýst afar mikilvægur.
Mánudaginn 8. desember kl. 13.00–14.30
í sal Arion banka, Borgartúni 19
Skráning og nánari upplýsingar á imark.is
Örfyrirlestrar
um klúður
í markaðsmálum
Fyrirlesarar:
Þorvaldur Sverrisson,
stefnumótunarstjóri á auglýsinga-
stofunni Jónsson & Le'macks, fjallar um
markaðssetningu á fólki í fyrirlestrinum
Aldrei syngja.
Birna Ósk Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu-
sviðs hjá Símanum, flytur fyrirlesturinn
Allir tilbúnir – nema viðskiptavinurinn.
Sigtryggur Baldursson,
framkvæmdastjóri ÚTÓN, fjallar um
markaðssetningu íslenskra tónlistar-
manna erlendis í fyrirlestrinum
Útflutningur tónlistar.
Gísli Brynjólfsson, framkvæmdastjóri
Hvíta hússins, flytur fyrirlesturinn
Castro, Hvíta og brjáluðu kaþólikkarnir.
Sigmar Vilhjálmsson, veitingamaður,
flytur fyrirlesturinn Hvað var ég að pæla?
um það sem klikkaði í Miklagarði.
Fundarstjóri:
Þóra Tómasdóttir, stofnandi Festival of
Failure sem er óður til hugmynda og
vettvangur fyrir ógleymanleg mistök.
Þóra Þorvaldur Birna Sigtryggur Gísli Sigmar
AFP
Hermenn í hátíðarbúningum ganga fylktu liði í Bang-
kok til að æfa hersýningu í tilefni af 87 ára afmæli kon-
ungs Taílands, Bhumibol Adulyadej, á föstudaginn
kemur. Hann hefur ríkt lengur en nokkur annar kon-
ungur í heiminum og nýtur mikillar virðingar í ríki
sínu, er nánast tignaður sem hálfguð.
Hátíð fer í hönd í Taílandi
Sænskur sérfræðingur í baráttunni
gegn hryðjuverkum, Magnus Rans-
torp, telur að skotárás stuðnings-
manna Ríkis íslams, samtaka íslam-
ista, á starfsmann dansks matvæla-
fyrirtækis í Sádi-Arabíu geti verið
upphafið að hrinu árása á Dani.
Samtök íslamistanna hafa birt
myndskeið þar sem stuðningsmenn
þeirra sjást skjóta á bíl Danans í
árás sem gerð var 22. nóvember.
Daninn særðist en er á batavegi.
Myndskeiðinu fylgdi yfirlýsing þar
sem leiðtogi samtakanna, Abu Bakr
al-Baghdadi, hvetur stuðningsmenn
þeirra til árása á Vesturlandabúa.
Ranstorp telur að hætta sé á fleiri
árásum á Dani í Mið-Austurlöndum,
m.a. vegna teikninga af Múhameð
spámanni sem danska blaðið Jyl-
lands-Posten birti árið 2005. „Dan-
mörk er mjög þekkt meðal íslamist-
anna vegna teikninganna í
Jyllands-Posten og er þess vegna
táknrænt skotmark,“ hefur frétta-
vefur Politiken eftir Ranstorp.
„Danir hafa því táknræna þýðingu
fyrir íslamistana og þetta getur verið
viðvörun frá samtökunum um að
Danir séu ekki öruggir.“ bogi@mbl.is
Óttast árásir íslamista á Dani
Stuðningsmenn Ríkis íslams réðust á Dana í Sádi-Arabíu
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Matvælaáætlun Samein-
uðu þjóðanna (WFP) hef-
ur þurft að stöðva mat-
vælaaðstoð við rúmlega
1,7 milljónir sýrlenskra
flóttamanna í grannríkj-
um Sýrlands vegna fjár-
skorts. Stofnunin sagði
þetta nauðsynlegt vegna
þess að ríki heims hefðu
ekki orðið við beiðni
hennar um framlög að
andvirðri 64 milljóna
Bandaríkjadala, jafnvirði
7,9 milljarða króna, til að
aðstoða flóttafólkið í des-
ember.
Um það bil 3,2 milljónir Sýrlend-
inga hafa flúið til annarra landa og
7,2 milljónir flóttamanna til viðbót-
ar eru enn í Sýrlandi, samkvæmt
skrám Sameinuðu þjóðanna. Mat-
vælaáætlun SÞ hefur nú þegar
þurft að minnka matarskammta
flóttafólks í Sýrlandi vegna fjár-
skortsins.
Milljónir manna þurfa hjálp
Talið er að um 4,25 milljónir
manna þurfi á matvælaaðstoð að
halda innan landamæra Sýrlands.
Matvælaáætlunin hefur einnig séð
sýrlenskum flóttamönnum í grann-
ríkjunum fyrir matarmiðum sem
þeir geta notað til að kaupa mat-
væli í verslunum. Nú hefur stofn-
unin þurft að stöðva þá aðstoð
vegna fjárskortsins.
„Þetta hefði ekki getað komið á
verri tíma,“ sagði Antonio Guterres,
flóttamannafulltrúi Sameinuðu
þjóðanna. „Ég brýni fyrir alþjóða-
samfélaginu að styðja WFP núna,
að afstýra því að flóttafólkið svelti.“
Embættismenn Matvælaáætlun-
ar Sameinuðu þjóðanna segja að
fjárskorturinn komi meðal annars
niður á börnum í Líbanon og Jórd-
aníu sem þurfi að þrauka harðan
vetur í tjöldum, án vetrarfatnaðar.
Guterres sagði að tugir þúsunda
fjölskyldna væru algerlega háðir al-
þjóðlegri matvælaaðstoð.
Ertharin Cousin, framkvæmda-
stjóri Matvælaáætlunar SÞ, sagði
að líf og heilsa meira en 1,7 millj-
óna flóttamanna væri í hættu ef
ekki fengist nægilegt fé til að hefja
matvælaaðstoðina að nýju. Hún
bætti við að neyðin meðal flótta-
fólksins gæti valdið aukinni spennu
og grafið undan friði í grannríkj-
unum. „Þessi lönd hafa þegar þurft
að axla þungar byrðar vegna neyð-
arástandsins.“
Matarhjálp hætt
vegna fjárskorts
Illa hefur gengið að fá fé til að hjálpa
flóttamönnum í grannríkjum Sýrlands
AFP
Stríðsböl Læknir saumar sár á höfði pilts sem
særðist í loftárás í Sýrlandi á dögunum.
Þingmenn Svíþjóðardemókratanna
tilkynntu síðdegis í gær að þeir
hygðust greiða atkvæði gegn fjár-
lagafrumvarpi minnihlutastjórnar
Jafnaðarmannaflokksins og Um-
hverfisflokksins. Mattias Karlsson,
starfandi leiðtogi Svíþjóðardemó-
kratanna, sagði á blaðamannafundi í
gær að flokkurinn hygðist styðja
fjárlagafrumvarp mið- og hægri-
flokkanna sem voru við völd á síðasta
kjörtímabili en biðu ósigur í þing-
kosningunum í september.
Þar með fella Svíþjóðardemókrat-
arnir minnihlutastjórnina. Að sögn
Dagens Nyheter er þetta í fyrsta
skipti í nútímasögu Svíþjóðar sem
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar er
fellt.
Samið við borgaralega flokka?
Svíþjóðardemókratarnir komust í
oddastöðu á sænska þinginu í kosn-
ingunum í september. Mattias
Karlsson sagði að Stefan Löfven,
forsætisráðherra Svíþjóðar, gæti
sjálfum sér um kennt þar sem hann
hefði ákveðið að sniðganga þriðja
stærsta flokkinn á þinginu. Karlsson
lagði áherslu á að nauðsynlegt væri
að breyta stefn-
unni í málefnum
innflytjenda
vegna mikillar
fjölgunar þeirra
og sagði að kostn-
aðurinn vegna
hennar væri
meiri en gert
væri ráð fyrir í
stjórnarfrum-
varpinu.
Áður hafði Löfven sagt að stjórnin
myndi segja af sér ef þingið sam-
þykkir fjárlagafrumvarp mið- og
hægriflokkanna. „Ég ætla ekki að
fylgja eftir fjárlögum annarra. Það
væri heimskulegt,“ sagði Löfven í
viðtali við Dagens Nyheter í gær.
Löfven sagði að ef til vill yrði efnt
til kosninga vegna fjárlagadeilunnar.
Hugsanlegt er þó einnig að minni-
hlutastjórnin segi af sér til að forseti
þingsins geti hafið viðræður um
myndun nýrrar ríkisstjórnar. Lík-
legra er þó að hann reyni að semja
við einn eða fleiri borgaralega flokka
um nýtt fjárlagafrumvarp, hugsan-
lega með það fyrir augum að mynda
stærri samsteypustjórn. bogi@mbl.is
Ætla að fella
ríkisstjórn
Svíþjóðar
Svíþjóðardemókratar styðja fjár-
lagafrumvarp stjórnarandstöðunnar
Stefan Löfven