Morgunblaðið - 03.12.2014, Side 27
uppliðum margvísleg ævintýri.“
Að loknu BA-náminu fór Birna til
Miami í Flórída og lék með Barry
University, en lærði jafnframt undir-
stöðuatriðin í ljósmyndun og mynd-
vinnslu, aflaði sér köfunarréttinda og
fór til Bonaire undan ströndum Vene-
súela til að kafa og taka neðansjávar-
ljósmyndir.
Úr knattspyrnu í útivist
Birna sneri heim vorið 2001 eftir
fjögur viðburðarík ár og var þá búin
að fá nóg af knattspyrnunni. Hún
lagði takkaskóna á hilluna, reimaði á
sig gönguskóna og hélt upp á íslenskt
hálendi þar sem hún fann sér ný
ævintýri. Næstu sumur var hún leið-
sögumaður ferðamanna við Mývatn
og nágrenni og ökuleiðsögumaður
víðsvegar um landið ásamt því að
stunda útivistina af kappi sjálf.
Birna hélt svo til Spánar einn vetur
til þess að læra spænsku við háskól-
ann í Alicante, en haustið 2003 settist
hún aftur á skólabekk, nú í HR og
lauk þaðan MBA-prófi tveimur árum
síðar. Frá 2005 var hún verkefna-
stjóri á markaðssviði Símans og árið
2009 varð hún markaðsstjóri hjá kaf-
bátafyrirtækinu Hafmynd, seinna
Teledyne Gavia, íslensku fyrirtæki
sem þróar og framleiðir sjálfstýrða
kafbáta. Hún hefur síðan verið mark-
aðs- og verkefnastjóri hjá hugbúnað-
arfyrirtæki og hvataferðafyrirtæki.
Síðustu árin hefur hún þó helgað
sig að mestu börnunum sem fædd eru
í apríl 2011, en stúlkan fæddist með
hjartagalla og var mikið lasin fyrstu
tvö árin. „Það er svo magnað að sjá
hvað er hægt að gera í dag með að-
stoð læknavísindanna og það er alveg
ólýsanlegt að horfa upp á hvað lífs-
gæði hennar breyttust mikið við að
fara í hjartaþræðingu rétt fyrir
tveggja ára afmælið sitt,“ segir Birna
um dóttur sína, Alexöndru Líf. „Fyrir
það erum við afskaplega þakklátar,
því heilsan er það mikilvægasta sem
við eigum í þessu lífi.“
Þessa dagana starfar Birna María
með sambýliskonu sinni, Siggu Bein-
teins, að undirbúningi og framkvæmd
jólatónleika hennar sem nú verða
haldnir í sjötta sinn og í fyrsta sinn í
Eldborg í Hörpu. Uppselt er í Hörpu
en tónleikarnir verða einnig haldnir á
Akranesi þann 13.12. nk. Síðan eru
ýmis önnur verkefni sem bíða.
Fjölskylda
Maki Birnu Maríu er Sigríður M.
Beinteinsdóttir, f. 26.7. 1962, söng-
kona. Foreldrar hennar eru Bein-
teinn Ásgeirsson, f. 28.11. 1932, vegg-
fóðrara- og dúklagningarmeistari í
Kópavogi, og Svava Jóna Markús-
dóttir, f. 28.6. 1933, d. 20.1. 2007, hús-
freyja.
Börn Birnu Maríu og Sigríðar eru
Alexandra Líf Birnudóttir, f. 24.4.
2011, og Viktor Beinteinn Birnuson,
f. 24.4. 2011.
Systkini Birnu Maríu eru Viggó
Björnsson, f. 28.5. 1970, bílaréttinga-
maður í Garðabæ; Freyr Björnsson,
f. 13.12. 1976, bílasprautari og eigandi
Viking Prestige Body Repairs, Gold
Coast í Ástralíu; Árni Björnsson, f.
21.11. 1985, bifvélavirki og nemi í
kerfisfræði við HR, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Birnu Maríu eru Björn
Viggósson, f. 29.7. 1946, fram-
kvæmdastjóri, og Hallveig Björns-
dóttir, f. 8.3. 1945, sjúkraliði og hús-
freyja.
Úr frændgarði Birnu Maríu Björnsdóttur
Birna María
Björnsdóttir
Una Guðrún Einarsdóttir
húsfr. í Hraunfelli
Guðjón Árnason
b. í Hraunfelli
Kristrún Árný Guðjónsdóttir
húsfr. í Neskaupstað
Björn Ólafur Ingvarsson
útgerðarm. og skipstj. í Neskaupstað
Hallveig Björnsdóttir
sjúkraliði og húsfr. í Rvík
Margrét Guðmundína Finnsdóttir
húsfr. í Neskaupstað
Ingvar Pálmason
alþm. og útvegsb. á Ekru í
Norðfirði,
af Skeggstaðaætt
Fanney Kristín Ingvarsdóttir
húsfr. í Norðfirði
Sveinn E. Ingvarsson, forstjóri
Viðtækjaverslunar ríkisins
Andrés Fjeldsted Sveinsson
símamálafulltrúi
Ingvar Gíslason
alþm. og ritstj. í Rvík
Sigríður Bjarnadóttir
húsfr. í Sauðanesi, á Hnausum og víðar
Björn Kristófersson
b. að Holti í Hjaltabakkasókn
Ása Sigríður Björnsdóttir
húsfr. í Rvík
Viggó Einar Gíslason
vélstj. í Rvík
Björn Viggósson
framkv.st. í Rvík
Ástrós Jónasdóttir
húsfr. í Rvík
Gísli Guðmundsson
trésmiður í Rvík
Fjallageitin Birna María er mikið
fyrir fjallgöngur og aðra útivist.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Gunnlaugur Valgardsson Cla-essen yfirlæknir fæddist áSauðárkróki 3.12. 1881.
Hann var sonur Jean Valgards van
Deurs Claessens sem var verslunar-
stjóri á Hofsósi, kaupmaður á
Sauðárkróki og síðar landsféhirðir í
Reykjavík. Móðir Gunnlaugs var
Kristín Eggertsdóttir Claessen, f.
Briem, dóttir Eggerts Briem, sýslu-
manns á Reynistað, bróður Jóhönnu
Briem, ömmu Hannesar Hafstein,
skálds og ráðherra, og bróður Ólafs
Briem, föður Haraldar, langafa Dav-
íðs Oddssonar Morgunblaðs-
ritstjóra.
Meðal systkina Gunnlaugs voru
Eggert Claessen, lögmaður, banka-
stjóri og stjórnarformaður Eim-
skips; Ingibjörg, kona Jóns Þorláks-
sonar forsætisráðherra, og María
Kristín, móðir Gunnars Thoroddsen
forsætisráðherra.
Eiginkona Gunnlaugs var Þórdís
Björnsdóttir Claessen húsfreyja,
dóttir Björns Jónssonar, aðjunkts
við Lærða skólann í Reykjavík, og
k.h., Henriette Louise Hendriks-
dóttur Jensen húsfreyju. Dætur
þeirra voru Anna, löggiltur skjala-
þýðandi og dómtúlkur í ensku, í
Holte í Danmörku, og Þórdís, hús-
freyja í Lemvig á Jótlandi.
Gunnlaugur lauk stúdentsprófi
frá Lærða skólanum 1901, embætt-
isprófi í læknisfræði frá Hafnarhá-
skóla 1910, dr. med.-prófi frá Karol-
inska Institutet í Stokkhólmi 1928
og var viðurkenndur sérfræðingur í
geislalækningum af Læknafélagi Ís-
lands 1923. Hann fór auk þess fjölda
námsferða í geislalækningum, m.a.
til Stokkhólms, Lundúna og Kaup-
mannahafnar.
Gunnlaugur var brautryðjandi í
geislalækningum og röntgentækni
hér á landi, merkur vísindamaður á
því sviði og kennari í röntgen- og
ljóslækningum. Hann var starfandi
læknir hér á landi frá 1913-30, for-
stöðumaður Röntgenstofnunar HÍ
frá 1914 og radíumlækninga frá 1919
og yfirlæknir á röntgendeild Land-
spítalans frá 1931 og til æviloka.
Gunnlaugur lést 23.7. 1948.
Merkir Íslendingar
Gunnlaugur
Claessen
85 ára
Ásdís Sigríður
Þorsteinsdóttir
Erla Sigrún Sigurðardóttir
Gísli Hvanndal Jónsson
Guðjón Sveinbjörnsson
Kristín María
Hartmannsdóttir
80 ára
Ólafur Tryggvason Elíasson
Sigríður Jónsdóttir
75 ára
Hafsteinn Hafsteinsson
Perla Guðmundsdóttir
70 ára
Árni Friðrik Markússon
Elín Jónsdóttir
Grétar Guðmundsson
Ingimundur Axelsson
Jón Ívarsson
Linda Dionisio Caamic
Margrét A. Halldórsdóttir
Selma Hrólfdal Eyjólfsdóttir
60 ára
Bogi Eggertsson
Guðbjörg Sveinsdóttir
Kristinn Sigurður
Steinþórsson
Rudolf Jóhannsson
Sigrún Anna Jónsdóttir
Sigrún Jóhannesdóttir
Þorgeir Kolbeinsson
50 ára
Annie Teoda Manzo
Ásbjörg Björgvinsdóttir
Benedikt Guðni
Gunnarsson
Gróa Linddís Dal
Haraldsdóttir
Guðmundur Björgvin
Helgason
Guðríður Arney
Magnúsdóttir
Kristín Kristjánsdóttir
Sigurlaug Björg
Baldursdóttir
40 ára
Aðalheiður Gísladóttir
Ágúst Ársælsson
Árni Freyr Elíasson
Barbara Wójcik
Birkir Freyr Matthíasson
Björgvin Narfi Ásgeirsson
Egill Orri Hólmsteinsson
Einar Már Hólmsteinsson
Haraldur Unnar
Guðmundsson
Jónas Þór Jónasson
Jósep Benjamín Helgason
Lára Elín Guðbrandsdóttir
Úlfar Jacobsen
Þorleifur Jón Hreiðarsson
30 ára
Eiður Ottó Bjarnason
Flavia Beatrice Bon
Hjalti Ásgeirsson
Mikael Leó Brennan
Milosz Marek Hodun
Zoltan Rostas
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurður ólst upp
á Sauðárkróki, býr þar,
lauk stúdentsprófi frá
FNV og er verslunar-
maður hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga.
Maki: Saga Sjöfn Ragn-
arsdóttir, f. 1991, starfs-
maður hjá Loðskinni.
Foreldrar: Sigríður Krist-
ín Jónsdóttir, f. 1963,
sjúkraliði, og Gunnar Val-
garðsson, f. 1961, verk-
stjóri á bílaverkstæði. Þau
búa á Sauðárkróki.
Sigurður Birkir
Gunnarsson
30 ára Hildur býr í
Reykjanesbæ, lauk próf-
um frá Keili og stundar nú
nám í viðskiptafræði við
HR og starfar hjá UPS.
Maki: Aðalbjörn Heiðar
Þorsteinsson, f. 1980,
tölvu- og tæknifræðingur
hjá ITS.
Dætur: Alda Kristín, f.
2006, og Aþena Mist, f.
2013.
Foreldrar: Alda Sæunn
Björnsdóttir, f. 1952, og
Ríkarður Owen, f. 1947.
Hildur Margrét
Ríkarðsd. Owen
30 ára Sigurbjörn ólst
upp í Reykjavík, býr þar,
lauk prófi í læknisfræði
frá háskólanum í Dedre-
cen í Ungverjalandi og er
læknir við LSH.
Systkini: Magnús, f.
1991, og Guðmundur, f.
1994.
Foreldrar: Magnhildur
Sigurbjörnsdóttir, f. 1960,
viðskiptafræðingur, og
Þór Hauksson, f. 1959,
sóknarprestur í Árbæjar-
pestakalli.
Sigurbjörn Þór
Þórsson
415 4000