Morgunblaðið - 03.12.2014, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Það var alveg ljóst frá þvísveinninn Sturla sonurminn fæddist að þar værienginn venjulegur maður
kominn í heiminn,“ (5) segir höfðing-
inn á Grund, Sighvatur Sturluson, í
upphafi Skálmaldar, nýrrar skáld-
sögu Einars Kárasonar. Sturla bjó
síðar á Sauðafelli og stefndi ótrauð-
ur að yfirráðum á Íslandi, og beitti
iðulega við það óvönduðum meðulum
eins og þekkt er úr Sturlungu. Í
þessari bók tekst Einar á við að lýsa
aðdraganda hinna miklu átaka sem
þar er fjallað um.
Einar hefur áður skrifað þrjár
vinsælar bækur þar sem hann segir
þá sögu á persónulegan og jafnframt
einfaldaðan hátt, með nútímalegu
málfari og frásagnarhætti, Óvina-
fagnað (2001), Ofsa (2008) og Skáld
(2012) en þessi nýja saga, Skálmöld,
gerist á undan hinum. Hér segir frá
stigvaxandi spennu milli Sturlunga
og Haukdæla, því þegar Sturla tók
Gissur Þorvaldsson höfðingja Hauk-
dæla höndum, og niðurlægði hann,
og hvernig Gissur brást síðan við, í
blóðugum átökunum sem þekkt eru
sem Örlygsstaðabardagi.
Í aðdraganda bardagans segir
kapellánn Guðmundar góða biskups
„að nú væri hin skarpa skálmöld
komin.“ (151)
Höfundur beitir samskonar frá-
sagnartækni í Skálmöld og fyrri
bókunum. Ólíkar persónur, höfð-
ingjar sem almúgafólk, segja frá í
stuttum og knöppum köflum; í
fyrstu persónu frásögn lýsa þær
fólki, andrúmslofti sem atburðum,
og með hröðum skiptingum milli
þeirra sem segja frá undirbyggir
höfundurinn atburðarás sögunnar
listavel. Sighvatur byrjar og er strax
látinn varpa upp
mynd af því sem
mun verða, með
því að lýsa hrifn-
ingu sinni á öðr-
um syni sínum,
Sturlu. Sturla
hefur orðið í
næsta kafla og
rifjar up atburði
úr bernsku, sem
varpa ljósi á karakter hans, metnað
en jafnframt kjarkleysi. Þá segir
Sighvatur aftur frá, því hvernig
hann hlóð undir Sturlu, svo kemur
að Steinvöru Sighvatsdóttur sem
lýsir sinni sýn á aðdáun föður þeirra
á Sturlu. Lesandinn er þar þegar
kominn á kaf í frásögnina, þegar höf-
undur sögunnar stígur óvænt fram
og ávarpar hann í kafla með yf-
irskriftina „Ek, árið 2014“. Þar út-
skýrir Einar hvað fyrir honum vaki
með ritun þessarar bókar og segir
að ekki eigi að skilja við hálfklárað
verk. Lesandinn fagnar því. Þessi
„Ek“ á eftir að fleyga frásögnina
tvisvar til, fyrst þar sem hann talar
um ólík tök þeirra Thors Vilhjálms-
sonar á Sturlu og loks þar sem hann
segir: „Og lýk ek þar að segja frá
Sturlungum.“ (184) Þar fljóta með
tveir kaflar úr fyrra hluta Óvina-
fagnaðar, til að draga nýja lesendur
þar inn og tengja, sem fer vel á. En
sama má ekki segja um þessi „póst-
módernísku“ inngrip í frásögnina;
skýringar höfundar hefðu betur átt
heima í hefðbundnum inngangi eða
eftirmála. Sagan þurfti ekki á þeim
að halda með þessum hætti.
Því sagan er æsispennandi og að-
alpersónurnar lifna á síðunum; mikil
er reiði Gissurar Þorvaldssonar þeg-
ar hann hefur verið niðurlægður af
Sturlu. „Það sem ég hef mátt kyngja
miklu,“ segir Gissur. (152) Eftir að
bónda í Fljótstungu dreymir fyrir
mannslátum og mófuglar virðast
þagna einn af öðrum, spyr Sig-
hvatur, skiljanlega, hvaða óvætti
þeir Sturlungar höfðu vakið upp. Og
Tumi sonur hans lýsir því átak-
anlega hve grimmilega hann var
leikinn.
Þeir sem hafa lesið fyrri bækur
höfundarins um efnið mega til með
að lesa þessa. Og þeir sem hafa ekki
lesið hinar ættu að byrja á Skálmöld.
Hér eru hinir miklu atburðir, valda-
barátta og átök Sturlungu sett í rétt
samhengi og það sem eftir kemur
verður enn skiljanlegra fyrir vikið. Í
framhaldinu væri rétt að gefa allar
fjórar bækurnar út sem eitt verk og
myndi sagan þá eflaust rata til enn
fleiri lesenda, sem væri verðugt, því
hér er sagnaarfurinn framreiddur af
list sagnamannsins, á persónulegan
og áhugaverðan hátt, og spennu-
þrungnir atburðirnir lifna á síð-
unum.
Morgunblaðið/Ómar
Sturlungasaga Einar Kárason vinnur með Sturlungu á áhugaverðan hátt.
Nú er hin skarpa
skálmöld komin
Skáldsaga
Skálmöld bbbbn
Eftir Einar Kárason.
Mál & menning, 2014. 192 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Heimildarmyndin Biophilia Live
sem fjallar um tónleika Bjarkar
sem haldnir voru í kjölfar áttundu
hljóðversskífu hennar Biophiliu, er
komin út á mynddiski á vegum út-
gáfunnar One Little Indian. Myndin
kemur út á DVD og Blueray-formi
og fylgir með m.k. aukaefni sem
tekið var upp á meðan Biophilia var
sýnd í Miraikan-safninu í Japan, að
því er fram kemur í tilkynningu.
Myndin skjalfestir flutning Bio-
philu-tónleikanna í Alexandra Pa-
lace í London og eru höfundar
hennar Nick Fenton og Peter
Strickland. Myndin innifelur einnig
vísindi og náttúruleg fyrirbæri sem
eru innblástur texta og tónlistar
Biophiliu, eins og því er lýst í til-
kynningu og segir þar að þessi
óendanlega skapandi ferð kynni af-
rakstur vinnu sem sé ein frumleg-
asta tónlistartilraun okkar kyn-
slóðar. Útgáfan inniheldur einnig
plötuna á geisladiski og er platan
ennfremur fáanleg á vínylformi.
Ljósmynd/Saga sig
Lofsungin Björk á Biophiliu-tónleikum. Biophiliu-verkefni Bjarkar hefur hlotið mikið lof
og umfjöllun víða, líkt og heimildarmyndin Biophilia Live sem nú er komin út á diski.
Biophilia Live gefin út á mynddiski
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Lau 17/1 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Lau 3/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Sun 4/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Lau 10/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 13:00 Sun 11/1 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 6/12 kl. 20:00 Lau 27/12 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00
Sun 7/12 kl. 20:00 Fös 9/1 kl. 20:00
Lau 13/12 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fim 4/12 kl. 20:00 20.k. Fös 12/12 kl. 20:00 Lau 20/12 kl. 20:00 aukas.
Fös 5/12 kl. 20:00 21.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 6/12 kl. 20:00 22.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 7/12 kl. 20:00 23.k. Fös 19/12 kl. 20:00 aukas.
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (Litla sviðið)
Mið 3/12 kl. 20:00 3.k. Fös 12/12 kl. 20:00 7.k. Sun 28/12 kl. 20:00
Fim 4/12 kl. 20:00 4.k. Sun 14/12 kl. 18:00
aukasýning
Mán 29/12 kl. 20:00
Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k.
Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Sun 28/12 kl. 18:00
aukasýning
Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun!
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Lau 13/12 kl. 13:00 aukas. Lau 20/12 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Lau 13/12 kl. 15:00 Lau 20/12 kl. 15:00 aukas.
Sun 7/12 kl. 13:00 aukas. Sun 14/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 15:00 Sun 14/12 kl. 15:00 aukas. Sun 21/12 kl. 15:00 aukas.
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Ævintýrið um Augastein (Aðalsalur)
Lau 6/12 kl. 17:00 Sun 7/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 14:00
MP5 (Aðalsalur)
Fös 5/12 kl. 20:00 Fös 12/12 kl. 20:00 Mán 15/12 kl. 20:00
Útlenski drengurinn (Aðalsalur)
Fim 4/12 kl. 20:00 Lau 6/12 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Sun 7/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 15:00
Lísa og Lísa (Aðalsalur)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
Aðventa (Aðalsalur)
Sun 7/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00