Morgunblaðið - 03.12.2014, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Ókunnugt fólk bauð Rögnu íbúðir
2. Úrskurðaður látinn í Keflavík
3. Börnum ruglað á fæðingardeild
4. Mummi aftur kominn á götuna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarvefurinn The Line of Best
Fit, sem þykir með þeim áhrifameiri í
heiminum, hefur birt lista yfir 50
hljómplötur sem gefnar voru út á
árinu og eru í sérstöku uppáhaldi hjá
ritstjórninni. Á listanum eru tvær ís-
lenskar, annars vegar Silkidrangar
hljómsveitarinnar Samaris og In the
Silence með Ásgeiri. Myndin var tek-
in á tónleikum Samaris á Iceland
Airwaves í síðasta mánuði.
Morgunblaðið/Eggert
Samaris og Ásgeir á
lista Line of Best Fit
Tríó Tómasar R.
Einarssonar heldur
tónleika með söng-
konunni Sigríði
Thorlacius á Björtu-
loftum í Hörpu í
kvöld kl. 21, á veg-
um Jazzklúbbsins
Múlans. Auk Tóm-
asar leika í tríóinu þeir Gunnar Gunn-
arsson og Sigtryggur Baldursson.
Flutt verða lög eftir Tómas af nýjustu
plötu hans Mannabörn, auk annarra.
Tríó Tómasar og Sig-
ríður á Björtuloftum
Sálumessa Mozarts verður flutt í
Langholtskirkju eftir miðnætti á
morgun, kl. 00.30, af sinfóníu-
hljómsveit, Óperukórnum í Reykjavík
og fjórum söngvurum. Stjórnandi er
Garðar Cortes og munu dóttir hans
og sonur, Nanna María og Garðar
Thor, syngja í messunni með Hönnu
Dóru
Sturlu-
dóttur og
Kristni
Sig-
munds-
syni.
Sálumessa með
úrvalssöngvurum
Á fimmtudag Suðvestlæg átt, 5-10 m/s, skýjað með köflum og
dálítil él, en yfirleitt þurrt austanlands. Frost víða 1 til 10 stig.
Á föstudag Norðlæg átt, 8-13 m/s og dálítil él norðan- og austan-
lands, en annars hægari og bjart. Frost 2 til 12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 og víða dálítil él, þurrt og
bjart að mestu norðaustantil. Hiti kringum frostmark.
VEÐUR
„Við sögðum það strax þeg-
ar hann sagði að hann væri
jafnvel hættur í landsliðinu
að ef hann spilaði vel með
sínu liði þá gæti hann spilað
aftur með landsliðinu,“
sagði Heimir Hallgrímsson
landsliðsþjálfari meðal ann-
ars þegar Morgunblaðið
ræddi við hann um möguleg
félagaskipti Eiðs Smára
Guðjohnsen til Bolton. Allar
líkur eru á að Eiður sé að
ganga til liðs við félagið. »1
Gæti spilað aftur
með landsliðinu
Kvennalandsliðið í handknattleik
spilar mikilvægan leik í undankeppni
heimsmeistaramótsins í Laugardals-
höllinni í kvöld þegar það mætir
Makedóníu. Íslenska liðið þarf eitt
stig út úr tveimur leikjum á móti
Makedóníu til að tryggja sér sæti í
umspili um sæti í úrslitakeppni HM
en þjóðirnar eigast aftur við í Skopje
á laugardaginn. »4
Mikilvægur leikur hjá
stelpunum í kvöld
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Magnús Jónsson hefur kennt á
námskeiðum um Íslendingasögur
hjá Endurmenntunarstofnun Há-
skóla Íslands undanfarin 14 ár.
Hann tók við af Jóni Böðvarssyni
og var honum áður til aðstoðar
um árabil, meðal annars í ferðum
á söguslóðir, en er nú hættur og
var honum sérstaklega þakkað
fyrir góð störf í Salnum í Kópa-
vogi í gær. „Maður þarf að þekkja
sinn vitjunartíma,“ segir hann
kankvís og bætir við að nú taki
eitthvað annað skemmtilegt við.
Helsta markmið námskeiðanna
hefur verið að láta þátttakendur
njóta sagnanna. „Ég hef reynt að
skyggnast inn í þetta samfélag
eins og hægt er út frá sagnfræði-
legum, félagsfræðilegum og
mannfræðilegum sjónarhornum,“
segir Magnús. Ég hef líka reynt
að rýna í þessar sögur út frá bók-
menntalegum forsendum og borið
sögurnar og persónur í þeim sam-
an við aðrar frásagnir og heim-
ildir.“
Njáll, Gísli og Grettir
Magnús vill ekki gera upp á
milli sagnanna. „Mér finnst alltaf
skemmtilegust sú saga sem ég er
með hverju sinni,“ segir hann.
„En Njála er náttúrlega einstök
og eins hefur verið gríðarlega
gaman að fara í gegnum Gísla
sögu Súrssonar og Grettis sögu.
Og svo má lengi telja.“
Magnús segir að þótt menn lesi
og túlki sögurnar með misjöfnum
hætti séu þær alltaf þær sömu.
„Fólk hefur alltaf áhuga á að
finna ákveðnar hliðstæður úr sög-
unum við nútímann og það er af-
skaplega auðvelt, hvort sem rætt
er um Sturlungu og Sturlungaöld
eða Bandamannasögu og banka-
kerfið, svo dæmi séu tekin. Og
ekki má gleyma húmornum.“
Að loknu hverju námskeiði hef-
ur Magnús yfirleitt boðið upp á
ferðir á söguslóðir, bæði innan-
lands og utan. Hann hefur nánast
farið um alla Evrópu og austur-
hluta Kanada og Grænlands með
hópa og nær eingöngu með Íslend-
ingasögurnar að leiðarljósi. „Þær
hafa verið okkar helsta ferða-
handbók,“ segir hann. Síðasta
námskeið hans var um Orkney-
ingasögu og verður hann með
ferðir á slóðir sögunnar í vor og
næsta haust. „Ég held að fólk
hafi verið mjög ánægt með
þetta, en það er kominn tími á
mig og ég er mjög ánægður með
að fá Ármann Jakobsson til þess
að halda kyndlinum áfram á
lofti.“
Sagnaþulur stígur til hliðar
Magnús Jóns-
son, sérfræðingur
í Íslendingasögum
Morgunblaðið/Kristinn
Salurinn Magnús Jónsson afhenti Ármanni Jakobssyni kennaraprikið góða í gær og óskaði honum velfarnaðar sem
eftirmanni við námskeiðahaldið, en Ármann ætlar að taka fyrir Egils sögu í janúar og hlakkar til.
Óbilandi áhugi á Íslendinga-
sögum leiddi Magnús Jónsson út
á kennslubrautina við Endur-
menntun Háskóla Íslands. Hann
hefur haldið 62 námskeið og
undanfarin misseri verið með
þrjá hópa í gangi í hverri viku,
alls um 270 manns, en 4.725
skráningar hafa samtals verið á
námskeiðin.
Sami kjarni fólks hefur mætt á
námskeiðin ár eftir ár. Yfirleitt
hefur Magnús kennt eina sögu á
önn, en stundum hefur hann tek-
ið þær fyrir á tveimur önnum, til
dæmis Njálu og Landnámu. Í öðr-
um tilfellum hefur hann kennt
tvær til þrjár styttri sögur á
sömu önninni.
Ármann Jakobsson, prófessor í
íslenskum bókmenntum fyrri alda
við Háskóla Íslands, tekur við af
Magnúsi og byrjar hann með Eg-
ils sögu eftir áramót.
Aðstoðarkennarar hans verða
Kolfinna Jónatansdóttir og Þór-
dís Edda Jóhannesdóttir, doktors-
nemar í íslenskum bókmenntum.
Ármann tekur við af Magnúsi
VINSÆL ENDURMENNTUNARNÁMSKEIÐ
Íslandsmeistarar KR hafa byrjað leik-
tíðina í Dominos-deild karla á því að
vinna alla átta leiki sína, rétt
eins og í fyrra. Það má
meðal annars þakka
Michael Craion, „skrímsl-
inu“ í teignum, eins og
Helgi Már Magnússon,
liðsfélagi
hans, lýsir
honum,
en Cra-
ion hef-
ur skar-
að fram
úr í vet-
ur. » 2
Fullkomin byrjun með
„skrímsli“ í teignum