Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
BEST OF PROVENCE GJAFAKASSI
Jólatilboð: 8.990 kr.
Andvirði: 12.220 kr.
Ilmpoki 35 g - 1.160 kr. | Fótakrem 75 ml - 2.640 kr. *
Shea Butter varasalvi 4,5 g - 1.280 kr. | Sturtuolía 250 ml - 2.850 kr.
Handkrem 150 ml - 3.630 kr. | Ilmsápa 100 g - 660 kr.
SVÍFÐU INN Í
JÓLAHÁTÍÐINA
*E
kk
is
el
t
íl
au
sa
sö
lu
.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir við nýtt Auðbrekku-
svæði gætu hafist haustið 2015 og er
á þessu stigi miðað við að um þús-
und íbúar geti búið í um 400 nýjum
íbúðum í hverfinu. Þar er nú ýmiss
konar atvinnurekstur, þar með talið
veitingastaðir,
bifreiðaverkstæði
og verslanir. Fá
svæði á höfuð-
borgarsvæðinu
liggja betur við
samgöngum.
Efnt var til
hugmyndasam-
keppni á vegum
Kópavogsbæjar
og Lundar fast-
eignafélags ehf.
um framtíðarmökuleika Auðbrekku-
svæðisins, milli Hamraborgar og
Nýbýlavegar.
Samkvæmt Creditinfo á Grétar
Hannesson lögmaður 100% hlut í
Lundi fasteignafélagi.
Tillögur bárust frá sex arkitekta-
stofum og urðu ASK arkitektar
hlutskarpastir. Teikningarnar hér
eru hluti af þeirri vinningstillögu.
Skipulagsyfirvöld eiga eftir að út-
færa hugmyndina frekar, eins og
rakið er í samtali við Birgi Hlyn
Sigurðsson, skipulagsstjóra Kópa-
vogs, í greininni hér fyrir neðan.
Framkvæmdir hefjist í vor
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að nú þurfi að fara
að vinna skipulag sem grundvallast
á þessum hugmyndum. „Ég myndi
vilja sjá framkvæmdir hefjast með
vorinu. Mér finnst þetta góð lausn
fyrir þetta svæði, en að auki mun
skipulagið búa að hugmyndum sem
komu fram hjá öðrum arkitektum,
sem geta líka nýst í deiliskipulagi.
Með þennan grunn og hinar tillög-
urnar í farteskinu er ég sannfærður
um að útkoman verður virkilega
gott skipulag,“ segir Ármann sem
telur raunhæft að uppbyggingunni
ljúki undir lok þessa áratugar.
Spurður hvernig hinar tillögurnar
verði hugsanlega nýttar við gerð
deiliskipulags segir Ármann að í
einni tillögunni hafi komið fram
mjög góð tenging við Hamraborg-
ina, sem að hans mati er betri en
lagt er til í vinningstillögunni.
„Þannig að jafnvel þótt þessi tillaga
verði grunnurinn getum við nýtt
okkur slíkar útfærslur. Svæðið sem
lá hugmyndasamkeppninni til
grundvallar náði aðeins upp að
Hamraborginni og kom ein arki-
tektastofan með útfærslu á því
hvernig tengja megi núverandi
verslunar- og íbúðargötu, sem
Hamraborgin vissulega er, við nýtt
skipulag á Auðbrekkusvæðinu. Bíla-
stæðum er breytt og gerðar
ákveðnar skipulagsbreytingar þann-
ig að samfellan milli Hamraborgar
og svæðisins verður miklu meiri.“
Í nýsamþykktu Aðalskipulagi
Kópavogs 2012-2024 er Auðbrekku-
svæðið skilgreint sem þróunarsvæði
og skal byggðin mótast í takt við
þróun húsnæðismarkaðarins og
breyttar áherslur í þjóðfélaginu,
m.a. varðandi þéttingu byggðar.
Mikil lofthæð í sumum íbúðum
Ármann segir íbúðirnar í hverfinu
munu verða meðalstórar og að hluti
þeirra verði í fyrrverandi atvinnu-
húsnæði, þar sem lofthæð er mikil,
líkt og þekkist í erlendum borgum.
„Þetta er hugsað sem blönduð
byggð. Mörg fyrirtæki á svæðinu,
þar með talin bifreiðaverkstæði,
geta verið þar áfram. Skipulags-
deild Kópavogs á eftir að útfæra
betur hvernig þessi sambúð íbúða
og atvinnuhúsnæðis getur gengið
upp.“
Ætlað barnafólki
Spurður hvort meðalaldur íbúa
verði í efri kantinum, eins og í nýja
Lundarhverfinu í Kópavogi, hinum
megin við Nýbýlaveginn, segir Ár-
mann að Auðbrekkusvæðið verði
ætlað yngra barnafólki.
„Ég sé fyrir mér að þarna verði
meðalstórar íbúðir á meðalverði og
að sú uppbygging sem þarna verður
muni tengjast Kópavogsskóla og því
skólahverfi. Mig langar til að sjá
barnafólk í íbúðunum, þannig að
nýting á skólum og íþróttamann-
virkjum sem fyrir eru verði enn
betri.“
Hamraborgin í andlitslyftingu
Ármann segir jafnframt fyrirhug-
að að breyta ásýnd Hamraborgar
með notkun nýrra yfirborðsefna í
götur og gönguleiðir, „þannig að
það verði meiri göngugötustemning
í Hamraborg án þess að umferðin sé
útilokuð. Von mín er sú að þetta geti
farið að gerast tiltölulega hratt og
orðið að veruleika innan ekki of
langs tíma,“ segir Ármann sem
horfir í þessu efni til næstu ára.
Spurður um kostnað bæjarins
vegna endurgerðar Auðbrekku-
svæðisins segir Ármann að gatna-
gerðargjöld muni mæta þeim kostn-
aði að mestu leyti, auk þess sem
framtíðartekjur munu aukast með
nýjum íbúum og fleiri fasteignum.
Uppbyggingin sé hluti af þeirri
stefnu að þétta byggðina.
„Við þurfum ekki að kosta miklu
til í leikskóla, götur og aðra innviði.
Þá gerir þessi uppbygging okkur
kleift að bæta reksturinn og gera
Kópavog að enn þá hagkvæmari
rekstrareiningu. Sem síðan verður
til þess að bæta þjónustu við íbúana
enn frekar,“ segir Ármann.
Auðbrekkan endurbyggð
Tölvuteikning/ASK arkitektar
Drög Svona sjá arkitektarnir fyrir sér að hverfið muni líta út eftir að framkvæmdum lýkur. Hönnunin er í vinnslu.
ASK arkitektar urðu hlutskarpastir í hugmyndasamkeppni um endurgerð gróins hverfis í Kópavogi
Gert ráð fyrir 400 nýjum íbúðum Bæjarstjóri Kópavogs væntir þess að framkvæmdir hefjist 2015
Ljósmynd/Kópavogsbær
Auðbrekka úr lofti Lundarhverfið er til vinstri á myndinni.
Ármann Kr.
Ólafsson
Á annan tug milljarða
» Gjarnan er miðað við að nú
kosti um 350 þúsund krónur
að byggja einn fermetra af nýju
íbúðarhúsnæði.
» Miðað við að 400 íbúðir rísi í
Auðbrekku, sem eru 90 fer-
metrar að meðaltali, kostar
12,6 milljarða að byggja þær.
» Þá má reikna með nokkrum
milljörðum í annan kostnað.
séu aðeins hugmyndir á þessu stigi.
„Þetta er útspil af hálfu ASK arki-
tekta um hvernig svæðið Auð-
brekka/Nýbýlavegur getur fengið
nýtt hlutverk. Það felst fyrst og
fremst í því að þarna verður um
blandaða landnotkun að ræða,
þ.e.a.s. íbúðir í bland við atvinnu-
starfsemi, verslun, þjónustu og létt-
an iðnað. Það er ekkert hróflað við
gatnakerfinu. Við tökum auðar lóðir
og byggjum á þeim. Síðan erum við
með möguleika á að byggja ofan á
eitthvað af þessum gömlu húsum til
Birgir Hlynur Sigurðsson, skipu-
lagsstjóri Kópavogs, segir hugmynd
ASK arkitekta að endurnýjun Auð-
brekkusvæðisins geta falið í sér upp-
byggingu á um 400 íbúðum.
Eins og rakið er í grein hér fyrir
ofan er skipulagið á hugmyndastigi
og er nú gengið út
frá því að meðal-
stærð íbúða verði
um 90 fermetrar.
Hæðarmunur er
á svæðinu sem
mun nýtast við
gerð bílakjallara.
Aðeins lítill hluti
bílastæða verður
ofanjarðar.
Hér fyrir ofan
má sjá loftmynd
af Auðbrekkusvæðinu eins og það
lítur nú nokkurn veginn út. Hægra
megin á myndinni fyrir miðju eru
gömul íbúðarhús við trjálund. Þau
munu víkja og hafa skemmur hægra
megin við húsin þegar verið rifnar á
gömlu Krókslóðinni.
Birgir Hlynur segir flest hin húsin
munu verða áfram og verður byggt
við þau eins og sýnt er hér fyrir ofan.
Á myndinni er búið að teikna þrjá
turna. Birgir Hlynur segir þá 6-10
hæða en leggur áherslu á að þetta
að gæða þau nýju lífi,“ segir hann.
Spurður hvenær ákvarðanir verða
teknar varðandi skipulagið kveðst
Birgir Hlynur horfa til vorsins.
„Það verður hugsanlega á miðju
næsta ári. Við sjáum fyrir okkur að
efna til samráðsfundar með íbúum
og hagsmunaaðilum í janúar. Við
sjáum líka fyrir okkur að stofnuð
verði hagsmunasamtök íbúa og
fyrirtækja á svæðinu sem myndu
leggja okkur lið við að þróa hug-
myndina á næsta stig – að vinna
skipulag út frá henni,“ segir Birgir.
Byggt verður á auðum
lóðum og við gömul hús
Skipulagsstjóri segir hugmyndina snúast um endurnýjun
Birgir Hlynur
Sigurðsson
Tölvuteikning/Ask arkitektar
Í vinnslu Hér má sjá drög að því hvernig gata í nýja hverfinu gæti litið út.