Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 41
stjórn UÍA (Ungmenna- og íþrótta- samband Austurlands), situr í rit- og menninganefnd UMFÍ, í stjórn Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Auk þess sinnir hún sjálfboðastarfi sem meðhjálpari við Fáskrúðsfjarð- arkirkju og er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum við að syngja með eldri borgurum einu sinni í viku. Listin að segja góðar sögur Þá hefur Berglind starfað sem sagnaþula í 25 ár. En hvað í ósköp- unum er sagnaþula, Berglind? „Sagnaþula eða -þulur er mann- eskja sem hefur áhuga á því og oft atvinnu af að segja fólki sögur, ein- staklingum eða hópum, eins og árshátíðargestum, Lionsklúbbum, saumaklúbbum eða börnum í barna- afmælum. Oft koma börnin fyrst upp í hug- ann þegar talað er um að segja sög- ur en staðreyndin er samt sú að fullorðnir vilja líka láta segja sér sögur. Þetta er því eins og hvert annað skemmtiatriði og í sjálfu sér ekkert ósvipað uppistandi eða ein- þáttungum með einum leikara. Hér er listin sú að segja athyglisverða sögu á skemmtilegan hátt með góð- um inngangi sem kallar á athyglina, hrynjandi, spennu og helst ein- hverri rúsinu í pylsuendanum.“ Og hefurðu nóg að gera í því að segja fullorðnu fólki sögur á Fá- skrúðsfirði? „Já, já. Það er alltaf töluverð eft- irspurn eftir sögum, ekki bara á Fá- skrúðsfirði heldur um allt Austur- land. Ég og tvær vinkonur mínar stofnuðum Félag sagnaþula árið 2004 sem lifir góðu lífi. Það eru haldin sagnakvöld á Fjörukránni í Hafnarfirði fyrsta þriðjudag í hverj- um mánuði og sífellt fleiri mæta á staðinn til að hlusta á sögur og segja sjálfir sögur. Ég hef farið á margar sagnahátíðir erlendis frá 2004. Oft eru haldnar keppnir milli sagnaþula og árið 2011 hlaut ég tit- ilinn besti sagnamaður Íslands í keppni sem fram fór í Hafnarfiði það árið.“ Fjölskylda Eiginmaður Berglindar er Hans Óli Rafnsson, f. 31.7. 1966, launa- fulltrúi og rafeindavirki. Foreldrar hans voru Rafn Valgeirsson f. 27.10. 1937, d. 16.11. 2014, vélstjóri, og Aðalheiður Karlsdóttir, f. 17.2. 1939, d. 29.3. 2011, húsfreyja. Börn Berglindar og Hans Óla eru Ellen Rós Hansdóttir, f. 12.2. 1991, háskólanemi í Reykjavík, og Unnar Ari Hansson, f. 27.11. 1997, mennta- skólanemi á Fáskrúðsfirði. Hálfbróðir Berglindar, samfeðra, er Róbert Birgir, f. 21.10. 1957, við- skiptafræðingur í Reykjavík. Alsystkini Berglindar eru Sigur- veig Rósa, f. 19.4. 1958, sundlaug- arvörður á Fáskrúðsfirði; Ævar Ingi, f. 27.8. 1959, framkvæmda- stjóri í Bandaríkjunum; Jóhanna María, f. 14.6. 1963, skólastjóri á Akureyri. Foreldrar Berglindar eru Agnar Jónsson, f. 17.6. 1939, vélvirki, bú- settur á Fáskrúðsfirði, og Hanna Gréta Halldórsdóttir, f. 13.10. 1939, ræstingastjóri á Akureyri. Sam- býliskona Agnars er Jóna Gunn- arsdóttir, f. 22.12. 1949. Úr frændgarði Berglindar Óskar Agnarsdóttur Berglind Ósk Agnarsdóttir Margrét Sigmundsdóttir húsfr. í Bolungavík Finnbogi Sigurðsson sjóm. í Bolungavík Sigurrós Finnbogadóttir húsfr. á Kópaskeri Halldór Ólafsson verkam. á Kópaskeri Hanna Greta Halldórsdóttir ræstingastj. á Akureyri Jóhanna María Ásgeirsdóttir húsfr. á Akureyri Ólafur Vigfús Árnason verkam. á Akureyri Eiríka Guðrún Þorkelsdóttir húsfr. á Eskifirð Aðalsteinn Jónsson (Alli ríki) forstj. og útgerðam. á Eskifirði Þórný Þórðardóttir húsfreyja í Rvík Þórður Þórðarson kaupm. í Rvík Jón Þórðarson endurskoðandi í Rvík Sigurveig Þ. Kristmannsdóttir húsfr. í Rvík Agnar Jónsson vélvirkjam. á Fáskrúðsfirði Jónína Jónsdóttir húsfr. í Vestamannaeyjum Kristmann A. Þorkelsson útgerðam. og kaupm. í Vestamannaeyjum Afmælisbarnið Berglind Ósk. ÍSLENDINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Alfreð Flóki fæddist við Óðins-götuna í Reykjavík 19.12.1938 og ólst þar upp til 12 ára aldurs en síðan við Bárugötuna. Hann var sonur Guðrúnar Guð- mundsdóttur og Alfreðs Nielsen. Alfreð Nielsen var danskur í föð- urætt, sonur Niels Christians Niel- sen sem vann hjá Sameinaða gufu- skipafélaginu, DFDS, en móðir hans hét Guðlaug Ólafsdóttir. Guðrún var af hinni frægu lista- mannaætt sem kennd er við Jötu í Ytrihreppi en meðal afkomenda það- an má nefna listamennina Einar Jónsson myndhöggvara, Hörð Bjarnason húsameistara, Nínu Tryggvadóttur, Gest Þorgrímsson, Jón Óskar Hafsteinsson, Eirík Smith og Sóleyju, dóttur hans. Flóki giftist Anette Bauder Jen- sen árið 1963 og eignuðust þau son- inn Axel Darra Flókason, f. 1964, eina barn Flóka. Flóki og Anette Bauder skildu en unnusta hans síð- ari árin var Ingibjörg Alfreðsdóttir. Flóki var í Austurbæjarskólanum, Miðbæjarskólanum og Gaggó Vest þar sem Jóhann Briem var teikni- kennari hans og hvatti hann mjög til dáða á listabrautinni. Hann stundaði nám við Handíða- og myndlistar- skólann í Reykjavík, við Kúnst- akademíuna í Kaupmannahöfn og lærði m.a. hjá Hjorth Nielsen pró- fessor. Að námi loknu hélt Flóki heim til Íslands en var mikið í Dan- mörku næstu árin og dvaldi tæpt ár í Bandaríkjunum. Flóki var undrabarn í myndlist, án efa fremsti teiknari þjóðarinnar og þótt víðar væri leitað. Mörg verka hans eru tilvísun í evrópskar hryll- ingsbókmenntir, súrrealískar blek- teikningar, hlaðnar táknhyggju, rómantík, sterkum kynórum og ang- ist undirvitundar. Í handbragði og stíl sótti hann mjög í súrrealisma og í symbólisma 19. aldar. Hann var hlédrægur en skemmtilegur og elskulegur í viðmóti og snillingur í tilsvörum við fjölmiðlafólk og menn- ingarvita. Um hann hafa komið út hefti eftir Jóhann Hjálmarsson, bók eftir Að- alstein Ingólfsson og endurminn- ingar eftir Nínu Björk Árnadóttur. Flóki lést 18.6. 1987. Merkir Íslendingar Alfreð Flóki 90 ára Gunnhildur Þ. Hjarðar 85 ára Guðný Anna Eyjólfsdóttir Magnúsína Sigurðardóttir María Guðvarðardóttir 80 ára Ólafur Guðmundsson Sigríður Ágústsdóttir Þórveig Kristjánsdóttir 75 ára Bergsteinn Pálsson Erna Sigþórsdóttir Gréta Geirsdóttir 70 ára Filip Woolford Guðrún Einarsdóttir Hólmfríður Jónsdóttir Jón Kristinsson Kolbrún Arngrímsdóttir Steinunn Þorbergsdóttir Þóra Gissurardóttir Þórður Búason Örlygur Þórðarson 60 ára Einar Karl Einarsson Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir Ingeborg Edda Graichen Ingileif Auðunsdóttir Jóna Elín Kristinsdóttir Jónas Þór Jónasson Jón Atli Sigurðsson Jón Einarsson Magnús Matthíasson Nína Kristín Sverrisdóttir Rósa Guðbjartsdóttir 50 ára Anna Sigurgeirsdóttir Elínbjörg Ingólfsdóttir Elín Guðmundsdóttir Gerður Ringsted Guðrún Ásta Lárusdóttir Hildur Björg Hannesdóttir Hildur Brynjólfsdóttir Hrönn Hreiðarsdóttir Kjartan Baldursson Magnea Kristín Helgadóttir María Jóhannesdóttir 40 ára Dagbjört Helga Guðmundsdóttir Guðmar Aubertsson Guðný Steinsdóttir Guðrún Helga Magnúsdóttir Halldór Þorsteinn Nikulásson Ingimundur Benjamín Óskarsson Sævar Pétursson Þorleifur Haraldsson 30 ára Andri Reyr Haraldsson Berglind Sveina Gísladóttir Ewa Bileviciene Gunnar Anton Njáll Gunnarsson Gunnlaugur Dan Sigurðsson Owen Douglas Fiene Til hamingju með daginn 30 ára Sædís ólst upp í Keflavík, býr á Egils- stöðum, lauk hússtjórn- arnámi og forvarnar- ráðgjöf og starfar við Bónus á Egilsstöðum. Systir: Snædís Bára, f. 1993, nemi í Reykja- nesbæ. Foreldrar: Þorsteinn Val- ur Baldvinsson Hjelm, f. 1957, starfar hjá Hnit, og Sigríður Björnsdóttir, f. 1958, hefur starfað við umönnun. Sædís Mjöll Þorsteinsdóttir 30 ára Eva Björk ólst upp í Birkihlíð í Skriðdal, býr í Kópavogi, lauk BEd-prófi frá HÍ, er ritari við bráða- móttökuna og söngkona. Maki: Ari Stígsson, f. 1984, kerfisstjóri hjá Optima. Foreldrar: Eyþór Hann- esson, f. 1955, ráðsmaður við Sjúkrahúsið á Egils- stöðum, og Hulda Svan- hildur Björnsdóttir, f. 1958, vinnur á meðferð- arheimilinu Laugalandi. Eva Björk Eyþórsdóttir 30 ára Ólafur býr í Hafn- arfirði, lauk verslunarprófi frá Bifröst og er svæðis- stjóri hjá Krónunni. Synir: Birkir Fannar, f. 2003, og Anton Breki, f. 2012. Systkini: Magnea Ólöf, f. 1972; Anna Sigríður, f. 1981, og Leifur Svein- björn, f. 1991. Foreldrar: Þórhallur Leifsson, f. 1948, og Svanhildur Kristín Rún- arsdóttir, f. 1960. Ólafur Rúnar Þórhallsson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.