Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
www.ullarkistan.is
Jólagjöf sem vermir
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006
Kids Basic
treyja
4190,- stk
.
Kids Basic
buxur
4190,- stk
.
Ridder tre
yja
4490,- stk
.
Ridder bu
xur
4490,- stk
.
Dökkblá treyja7490,- stk.
Dökkbláar buxur7490,- stk.
Treyja
með b
lúndu
7490
,- stk.
Buxur
með b
lúndu
7490
,- stk.
Hlýr og notalegur
ullarfatnaður
úr 100%Merino ull
á góðu verði
Sy ru sson Hönnunar hús
Síðumúla 33
Íslandsklukka
9.900,-
Púðar
14.990,-
Ljósaker
Stórt 32.500,-
Ullarteppi
22.500,-
Aðventukerti 4 stk
5.900,-
Ljósaker
Lítið 6.900,-
Kökudiskur
8.900,-
Jólatré
Frá 5.900,-
Hreindýr
8.900,- kr. stk.
Garðveislupúði
10.900,-
Lita bollar
4.490,-
Svart/hvítar skálar
Frá 8.490,-
Hangover
29.900,-
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á Facebook
Ermalausir
toppar
Litir: Rautt, kóngablátt & svart
Str. 36–52
Tryggvagötu 18 - 552 0160
Pelsar
Stuttir og síðir
Meyjarnar
Austurveri | Háaleitisbraut 68 | sími 553 3305
Sparitoppar - pils
buxur - peysur
Fjórmenningarnir í Aserta-málinu
svokallaða voru sýknaðir fyrir Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær, en þeir
áttu að hafa brotið gegn fjármagns-
höftunum með ólögmætum gjald-
eyrisviðskiptum. Málið höfðaði sér-
stakur saksóknari gegn Karli Löve
Jóhannessyni, Gísla Reynissyni,
Markúsi Mána Michaelssyni Maute
og Ólafi Sigmundssyni. Greiðist all-
ur sakarkostnaður úr ríkissjóði, þar
með talin málsvarnarlaun verjenda
sem nema samtals um 24 milljónum
króna. Fjórmenningunum var gefið
að sök að hafa brotið gegn lögum
um gjaldeyrismál og er óumdeilt að
ákærðu öfluðu sér ekki leyfis frá
Seðlabankanum til að hafa milli-
göngu um gjaldeyrisviðskipti og
höfðu ekki aðra heimild til að stunda
slíka starfsemi hérlendis. Í dómnum
segir einnig að það sé ekki útskýrt
sérstaklega í lögunum hvað felist í
því að hafa „milligöngu“ um
gjaldeyrisviðskipti. Mennirnir fjórir
áttu í gjaldeyris-
viðskiptum í
nafni sænska fé-
lagsins Aserta
AB með því að
kaupa íslenskar
krónur af erlend-
um fjármálafyr-
irtækjum fyrir
erlendan gjald-
eyri sem mót-
aðilar þeirra
höfðu lagt inn á gjaldeyrisreikning á
nafni félagsins í banka í Svíþjóð.
Héraðsdómur Reykjaness segir við-
skiptin ekki hafa farið fram hér-
lendis. „Sá þáttur í viðskiptum við
mótaðilana að flytja krónurnar til
Íslands telst til fjármagnshreyfinga í
skilningi laga um gjaldeyrismál sem
engar teljandi skorður voru reistar
við fram til þess að gjaldeyrishöftum
var komið á og voru ekki refsiverð-
ar á þeim tíma sem hér skiptir máli.“
ash@mbl.is
Aserta-fjórmenning-
ar sýknaðir í héraði
Sýknaðir Héraðs-
dómur Reykjaness.
Viðskiptin fóru ekki fram hér á landi
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
Bifreiðastöð Reykjavíkur hefur látið
þróa nýtt leigubílaapp sem tekið
verður í notkun í byrjun næsta árs.
Með appinu er hægt að panta bíl
með einum smelli auk þess sem
hægt er að greiða með appinu.
Appið hefur verið í þróun hjá hug-
búnaðarfyrirtækinu Reontech í tvö
ár en Guðmundur Börkur Thoraren-
sen, framkvæmdastjóri BSR, segir
leit að góðu kerfi hafa staðið yfir í
tuttugu ár. Nú sé það komið í prufu-
ferli hjá fyrirtækinu og verður að-
gengilegt viðskiptavinum í byrjun
næsta árs í gegnum App Store fyrir
iPhone-síma og Play Store fyrir
Android-síma.
Í appinu verður hægt að sjá hvar
bíllinn er staddur og áætlaðan
komutíma hans en viðskiptavinir fá
síðan skilaboð þegar bíllinn er mætt-
ur á svæðið. Þá er hægt að láta ým-
iss konar sérþarfir ráða för og verð-
ur til dæmis hægt að biðja
sérstaklega um lítinn bíl, stóran bíl,
reyklausan bíl eða bíl þar sem
hundar eru velkomnir um borð.
Ennþá verður hægt að greiða með
reiðufé og korti en einnig verður
hægt að greiða með appinu. Þá geta
farþegar skipt fargjaldinu sín á milli
og hver greitt á sinn máta.
Gefa bílstjóranum einkunn
Að ferðinni lokinni fá farþegar
skilaboð þar sem nafn og númer
leigubílstjórans kemur fram. Er þá
síðar hægt að biðja um sama bíl-
stjóra auk þess sem auðveldara
verður að hafa samband við hann ef
eitthvað gleymist til dæmis í bílnum.
Þá geta viðskiptavinir loks gefið bíl-
stjóranum einkunn kjósi þeir að
gera svo.
Appið gerir pöntunarkerfi BSR
einnig auðveldara að því leyti að
pantanir fara beint til leigubílstjór-
anna og þarf miðstöðin því ekki að
vinna úr þeim. Gæti þetta því sparað
nokkurn tíma og gert þjónustuna
skilvirkari.
Nokkur umræða hefur verið um
leigubílaþjónustu Uber eftir að
greint var frá því að nægilega mörg-
um undirskriftum hefði verið safnað
á vefsíðu leigubílaþjónustunnar til
þess að fyrirtækið geti hafið starf-
semi í Reykjavík.
Guðmundur segir appið henta bet-
ur en Uber fyrir íslenskan markað.
Aðspurður hvort appið geri BSR
samkeppnishæfari á markaðnum
komi Uber til landsins, segir Guð-
mundur kerfi BSR henta mun betur
fyrir íslenskan markað þar sem leyfi
þurfi fyrir leigubílaakstri.
Morgunblaðið/Ómar
Leigubílar BSR App leigubílastöðv-
arinnar hefur verið í þróun í tvö ár.
Fyrsta íslenska
leigubílaappið
Panta bíl og borga með einum smelli
- með morgunkaffinu