Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
Innigallar
fyrir konur á öllum aldri
Margir litir
Stærðir S-XXXXL
Verið velkomin
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Velúrgallar
Tax free af öllum
snyrtivörum, ilmum og
gjafakössum fyrir dömur
og herra í desember
HEILSA OG LÍFSTÍLL
SÉRBLAÐ
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn
19. desember
Í blaðinu verður
kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í
boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak
og lífstílsbreytingu á
nýju ári.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út
sérblað um
heilsu og lífstíl
laugardaginn
3. janúar
Hinir árlegu jólasveinaleikar Vatns-
endaskóla í Kópavogi voru haldnir í
Kórnum í gær. Í ár verður skólinn
10 ára en leikarnir hafa verið hluti af
starfsemi hans frá upphafi.
Guðrún Soffía Jónasdóttir, skóla-
stjóri Vatnsendaskóla, segir alla 540
nemendur skólans taka þátt í jóla-
leikunum sem beðið er eftir á hverju
ári með mikilli tilhlökkun. Leiða
leikarnir til aukinnar samstöðu og
vináttu meðal nemenda en í hverju
liði eru oftast börn af hverju aldurs-
stigi. „Krakkarnir verða að vinna
saman til þess að leysa þrautirnar.
Gefin eru stig fyrir liðsheild og er
mikilvægt að allir meðlimir hvers
liðs séu virkir og taki þátt í leik-
unum,“ segir Guðrún Soffía.
Liðin heita eftir jólasveinum
Öllum nemendum grunnskólans
er skipt í lið sem heita eftir þekktum
eða óþekktum jólasveinum og keppa
liðin sín á milli í ýmsum hefð-
bundnum og óhefðbundnum grein-
um. Keppt er í hlaupi, klifri, stíg-
vélasparki, baunapokakasti og
fótbolta, og í hugarleikjum líkt og
spurningakeppnum og öðru sem
reynir á almenna kunnáttu kepp-
enda og kunnáttu er tengist jól-
unum. Guðrún Soffía segir marga
nemendur hafa mikið keppnisskap
sem gerir leikana enn skemmtilegri.
Minnist hún þess þegar til stóð að
jólaleikarnir yrðu aðeins fyrir yngri
bekki. „Efstu bekkirnir komu og
kvörtuðu. Það kom ekki annað til
greina en að allir nemendur skólans
myndu taka þátt.“
Hurðaskellir stóð uppi sem sigur-
vegari í ár og fá meðlimir liðsins af-
hentan bikar í dag. Í öðru sæti kom
Skreppur og í því þriðja Þvöru-
sleikir. benedikta@mbl.is
Sparkað Margir nemendur klæða sig í jólasveina- og -sveinkubúning í tilefni dagsins, sem setur svip á leikana.
Liðsheild Gefin eru stig fyrir liðsheild og er því mikilvægt að allir meðlimir liðanna taki virkan þátt í leikunum.
Morgunblaðið/Þórður
Hugarleikir Liðin verða að leysa hinar ýmsu þrautir sem reyna á hugann.
Keppnisskap á
jólasveinaleikum