Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundurinn Steinunn Jóhannesdóttir hefur rannsakað líf hjónanna Hallgríms og Guðríðar í nokkra áratugi. Hér
er hún á jólasýningu Þjóðminjasafnsins á Torginu en sýningin byggist á bók hennar Jólin hans Hallgríms.
„Þegar ég var beðin um að skrifa
Heim Guðríðar fór ég á bólakaf of-
an í söguna sjálf og hóf mína eigin
rannsóknarvinnu,“ segir hún.
Leikritið Heimur Guðríðar var
skrifað sérstaklega fyrir Kirkju-
listahátíð í Hallgrímskirkju árið
1995 og var sýnt víða fram til árs-
ins 2000.
Jóladagatal fyrri tíma
Í ár eru 400 ár liðin frá fæð-
ingu Hallgríms og fannst Stein-
unni það vel við hæfi að kynna
þennan merka mann fyrir íslensk-
um börnum með því að skrifa um
hann barnabók. „Þannig að þau fái
endurnýjaða tengingu og for-
sendur til að skilja hvernig stend-
ur á þessu gríðarlega minnismerki
um hann hér á Skólavörðuholtinu,“
segir Steinunn og vísar þar til
Hallgrímskirkju. Hún hefur á und-
anförnum vikum lesið upp úr
bókinni fyrir börn og þá sem
muna gömlu jólin.
Hún fór meðal annars á
söguslóðirnar í Skagafirði og
heimsótti þar alla skólana.
„Í samstarfi við tón-
menntakennara setti ég
saman dálitla dagskrá því
það er merkileg tengitaug á
milli Hallgríms sem barns
og íslenskra skólabarna
núna. Tengingin er í gegn-
um jólakvæðið Nóttin var
sú ágæt ein, Vöggukvæðið,
sem er einn af okkar ynd-
islegustu jólasálmum,“ segir
Steinunn og vísar þar til
kvæðis Einars Sigurðssonar
sem fjallað var um hér að
ofan. „Þetta kvæði ómar
undir í allri sögunni. Ég hef
sagt krökkunum frá því að
mamma hans Hallgríms hafi
notað þetta kvæði sem upp-
runalega er tuttugu og átta erindi,
eins og við notum jóladagatalið.
Við opnum einn glugga á dag og
börnin litlu í Gröf lærðu eina vísu
á dag í þessu jólakvæði,“ segir
hún. Þegar kvæðið var komið gátu
jólin komið.
Að ýmsu þarf að huga fyrir
jólin, bæði í nútíð og fortíð. „Það
þarf að taka til og alltaf þarf að
hugsa um skepnurnar á bænum og
sinna öllu þessu sem við erum enn
að gera: Laga fötin, útbúa ný,
þrífa, fara í jólabað og svo verður
að lokum heilagt og jólin koma í
hjartað á börnunum. Það er boð-
skapurinn í þessu gamla kvæði í
Vísnabók Guðbrands,“ segir Stein-
unn og vísar þar til vögguljóðsins.
Kraftaverk jólanna
Steinunn hefur að undanförnu
heimsótt hina ýmsu grunnskóla og
kynnt Hallgrím fyrir börnunum.
Tónmenntakennararnir hafa tekið
þátt í undirbúningi heimsókn-
arinnar með því að kenna þeim
nokkur erindi úr kvæði Einars
Sigurðssonar. „Svo syngjum við
kvæðið saman. Þetta hefur alltaf
verið sungið en þó við vitum ekki
lengur hvernig lagið hafi verið þá
er þetta víkivaki,“ segir hún.
Í sögu Steinunnar um Hall-
grím er bæði nýfætt barn og ný-
borið lamb og hafa sum börnin
sem Steinunn hefur lesið fyrir sagt
að það lambið sé „Jesúlamb“ því
það fæddist á jólum. Einkum og
sér í lagi höfðu börnin í Skagafirði
eitthvað að segja um lambsfæð-
ingar á þessum árstíma. „Krakk-
arnir í Skagafirði sögðu mér alls
konar kraftaverkasögur því það er
mjög óvenjulegt, eins og fólk veit,
að lömb fæðist rétt fyrir jólin og
ekki heppilegt í myrkri og kulda.
Börnin í sveitinni vita að lömbin
fæðast á vorin. Þau gátu samt sagt
slíkar sögur af sínum bæjum. Einn
strákurinn sagði að á sínum bæ
hefði lamb fæðst klukkan sex hinn
24. desember,“ segir Steinunn Jó-
hannesdóttir, höfundur bókarinnar
Jólin hans Hallgríms. Það er því
ljóst að kraftaverk á borð við
lambsfæðingar á jólum eiga sér
líka stað á okkar tímum og hvaða
tími ársins er betri fyrir krafta-
verk en einmitt sjálf jólin!
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
Söngfuglarnir Ragnheiður
Gröndal, Svavar Knútur og
Kristjana Stefánsdóttir syngja
á tvennum tónleikum í Fríkirkj-
unni í Reykjavík í kvöld. Saman
skipa þau söngtríóið Eitthvað
fallegt. Fyrri tónleikarnir hefj-
ast klukkan 20 og þeir seinni
klukkan 22.30 og rennur hluti
ágóðans til góðgerðarmála.
Eitthvað fallegt syngja með-
al annars lagið Hin fyrstu jól
eftir Ingibjörgu Þorbergs við
texta Kristjáns frá Djúpalæk.
Lögin Hin fyrstu jól og
Klukknahljóð voru á 45-
snúninga plötu sem kom út
hjá Íslenskum tónum árið
1964.
Eitthvað fallegt í Fríkirkjunni
Morgunblaðið/Ómar
Tríó Ragnheiður Gröndal tilheyrir tríóinu.
Tríó söngfugla með tvenna
jólatónleika í kvöld
Presturinn og skáldið Hall-
grímur Pétursson fæddist í
Gröf á Höfðaströnd árið
1614 og lést 1674. Hann
gekk í latínuskólann á
Hólum en fór svo utan til
náms. Hallgrímur var
höfuðskáld sinnar tíðar
og jafnframt eitt helsta
trúarskáld Íslendinga. Ár-
ið 1666 komu út Passíu-
sálmar Hallgríms og er
píslarsaga Krists rakin
og túlkuð í fimmtíu
sálmum. Fjölmörg kvæði
eru þekkt eftir Hallgrím
og má þar til dæmis
nefna heimsádeiluna
Aldarhátt, Heilræðavísur,
Rímur af Lykla-Pétri og
Megellónu, Þráðarleggs-
vísur, Króka-Refs rímur,
Flærðarsennu og Öl-
erindi.
Hallgrímur
Pétursson
SÁLMAR OG HEIMSÁDEILA
Ég er af þeirri óræðu kynslóð sem
stundum er nefnd aldamótakynslóðin
– við erum ca. sá hópur fólks sem
fæddist milli 1980 og 2000 plús mínus
fáein ár. Eitt sem mér finnst stund-
um gaman og áhugavert að pæla í er
samband okkar – þessarar kynslóðar
– við leiðindi og tekst oftar en ekki að
hugsa mig að þeirri niðurstöðu að
viðhorf okkar og reynsla af leiðindum
sé annars eðlis en eldri kynslóða.
Okkur leiðist í stuttu máli aldrei.
Hvert og eitt okkar gengur með lítið
tæki í vasanum sem býður upp á sér-
sniðinn og ómótstæðilegan afþrey-
ingarheim fyrir okkur á hvaða tíma
sólarhringsins sem er. Tannlækna-
biðstofur, flughafnir, umferðar-
teppur – það skiptir ekki máli. Leið-
indi þessara aðstæðna bíta ekki á
okkur.
Efist einhver um þessa litlu grein-
ingu bendi ég viðkomandi á að líta til
þess hvernig fyrirtæki og stjórn-
málaflokkar markaðssetja sig gagn-
vart þessari kynslóð. Fyrsta sönn-
unargagnið er Wow Air, fyrsta
skemmtilega flugfélagið í heim-
inum. Flugfélag sem hagar sér
eins og flippaði vinur þinn á
djamminu sem vill dansa uppi
á borði og labba yfir bíla. Meira
að segja símsvari flugfélagsins
segir manni brandara.
Nova byggir á sam-
bærilegri hugmynda-
fræði, ofurhresst og
nútímalegt fjar-
skiptafyrirtæki sem
grínar með frægu
fólki á Snapchat.
Þetta er allt svo
fokk fyndið! Um
daginn sá ég líka að
strætó er allt í einu
orðinn „skemmti-
legri“ ferðamáti. Þá
er Björt framtíð –
Wow Air stjórnmálanna
– flokkur sem gefur í
skyn að pólitík eigi að vera jákvæð,
átakalaus og skemmtileg (en er í
raun, sýnist mér, alls ekki jafnfrjáls-
lyndur og kátur og hann þykist vera).
Allt þetta miðar að því að höfða til
sama þjóðfélagshópsins. Haldi ein-
hver að ég hafi eitthvað á móti þess-
ari þróun, þá er það rangt. Ég styð
öll fyrirtæki sem reyna eitthvað nýtt
og ég skynja að eru ekki afturhalds-
söm í hjarta sínu. Ég er í raun fylgj-
andi öllu sem er hresst og skemmti-
legt og fær mig um stund til að
gleyma því að Ísland er samfélag í
bakkgír og að 70% þjóðarinnar gætu
alveg eins verið frá annarri plánetu
en ég hvað afstöðu og viðhorf varðar.
En leiðindi held ég hins vegar að
séu ómissandi þáttur mannlegrar til-
veru og er tilbúinn til að verja þá
afstöðu að fólk læri sjaldan meira
um sjálft sig og hugsanir sínar
en þegar því leiðist. Málið er
bara að það er svo fjandi erfitt
að leiðast. Það er öhhm… svo
leiðinlegt. Við verðum hins
vegar af dýrmætri
reynslu ef okkur
leiðist aldrei.
En hey, óþarfi
að setja upp
skeifu hérna. Mark-
aðurinn mun á end-
anum kveikja á
þessu og byrja
að selja okkur
leiðindi á þeim
forsendum að
þau séu spenn-
andi og öðruvísi.
» Flugfélag sem hagarsér eins og flippaði
vinur þinn á djamminu
sem vill dansa uppi á borði
og labba yfir bíla.
Heimur Halldórs Armands
@HalldorArmand
Eva
Borðlampar
Fullt verð: 8.900 kr.
Jólaverð:
6.200 kr.
Gigaset
Símtæki
A510
Fáanlegt í hvítu og svörtu.
Vel upplýstur skjár með
stórum stöfum.
Fullt verð: 9.670 kr.
Jólaverð:
8.220 kr.
BOSCH
Hrærivél
MUM 4405
Hrærir, hnoðar
og þeytir.
Fullt verð: 25.900 kr.
Jólaverð:
18.900 kr.
SIEMENS
Þvottavél
WM 12E267DN
Tekur mest 7 kg,
vindur upp í
1200 sn./mín.
Orkuflokkur A+++.
Hraðkerfi 15 mín.
Með íslensku
stjórnborði og
íslenskum leiðarvísi.
Fullt verð án
vörugjalda: 103.900 kr.
Jólaverð:
96.900 kr.
Jólin 2014
Hágæða vörur
og fyrsta flokks
þjónusta.
Jólabæklingurinn er kominn út.