Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
Jólin eru haldin hátíðleg hér álandi og svo að segja allir taka
þátt í hátíðahöldunum. Öllum er
kunnugt um það hvers vegna jólin
eru haldin hátíðleg og hverju er ver-
ið að fagna, en samt
sem áður hefur það
orðið svo í seinni tíð
að fáeinir stjórn-
málamenn, aðallega í
borgarstjórn, mega
ekki til þess hugsa að
æska landsins fái að
kynnast grundvelli
jólahátíðarinnar.
Í borgarstjórnspunnust um þetta
allnokkrar umræður í
vikunni þar sem fram
kom að einhverjir
borgarfulltrúanna
vildu forða börnunum
frá þeirri hættu að heimsækja
kirkjur, aðrir fóru með löndum í mál-
flutningi sínum og sögðu heimsókn-
irnar „á gráu svæði“, en fulltrúar
minnihlutans í Framsóknarflokki og
Sjálfstæðisflokki töluðu máli kirkju-
heimsókna.
Kjartan Magnússon sagði mál-flutning fulltrúa meirihlutans
um að einhverjar kirkjuheimsóknir
væru „á gráu svæði“ hefði orðið til
þess að skólastjórnendur vissu ekki
hvað þeim væri heimilt í þessum efn-
um og bað hann borgarstjóra að
skera úr um vafaatriðin.
Dagur B. Eggertsson talaði lengien sagði fátt sem talist gat svar
við spurningu Kjartans eða gagnlegt
í umræðunni.
Hann lét á hinn bóginn þau orðfalla að reglurnar, sem félagar
hans reyna að nota til að hindra
börn í að heimsækja kirkjur, væru
farsælar og þörfnuðust ekki endur-
skoðunar. Þær væru þó ekki ein-
hverjar „gulltöflur sem við höfum
sótt af einhverju fjalli“.
Kjartan
Magnússon
Gullkorn
borgarstjóra
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
„Íslendingar eru mjög íhaldssamir á jólamat en við finn-
um að nautakjöt er að verða vinsælla á hátíðardiski
landsmanna. Nautakjöt hefur ekki haft þann sess áður en
það er að breytast og við finnum það,“ segir Baldur Helgi
Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúa-
bænda.
Töluvert vantar upp á að framleiðsla á íslensku nauta-
kjöti anni eftirspurn og segir Baldur að tvennt komi þar
til. „Ég held að túrisminn vegi svolítið þungt þar annars
vegar og svo er mikill samdráttur í slátrun á kúm,“ segir
hann og bendir á að innflutningur á nautakjöti hafi verið
meiri á þessu ári en áður.
Hann segir að þeir erlendu gestir sem hingað koma
þekki nautakjöt og séu vanir að borða og panta sér slíkt.
„Neysla á því stendur ferðamanninum nær. Samdrátt-
urinn í slátrun á kúm er út af þessari miklu neysluaukn-
ingu á mjólk og þá draga bændur úr slátrun til að anna
eftirspurn. Úr kúm kemur mikill hluti af hakki í ham-
borgara og fleira. Það er búið að fjölga kúm um hartnær
10% á síðustu 18 mánuðum og það kemur fram á kjöt-
mörkuðum.“
Hann segir að kúabændur séu meðvitaðir um að ís-
lenskt nautakjöt sé vinsælt á veitingastöðum en það sé
ekki auðvelt að anna eftirspurninni, framleiðsluferlið á
nauti sé mjög langt – rúmir 30 mánuðir. benedikt@mbl.is
Mikið flutt inn af erlendu
nautakjöti fyrir jólin
Innlendir kúabændur anna ekki eftirspurn eftir nautakjöti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsælt Töluvert vantar upp á að íslenskt nautakjöt
anni eftirspurn og því er það flutt inn.
Hæstiréttur stað-
festi í gær dóm
Héraðsdóms
Reykjavíkur sem
féll á síðasta ári í
meiðyrðamáli
sem Egill Ein-
arsson höfðaði á
hendur Sunnu
Ben Guðrún-
ardóttur.
Ummælin sem Sunna viðhafði
voru: „Þetta er líka ekki árás á mann
fyrir að segja eitthvað rangt, heldur
fyrir að nauðga unglingsstúlku …
Það má alveg gagnrýna það að
nauðgarar prýði forsíður fjölrita
sem er dreift út um allan bæ …“
Að mati dómsins fóru ummælin út
fyrir mörk leyfilegrar tjáningar með
því að drótta Agli um refsivert at-
hæfi og voru þau dæmd dauð og
ómerk. Sunnu var ekki gert að
greiða Agli miskabætur.
Einn þriggja dómara, Ólafur
Börkur Þorvaldsson, skilaði sér-
atkvæði í málinu. Segist hann vera
samþykkur niðurstöðu meirihluta
dómenda að fyrrgreind ummæli hafi
falið í sér ærumeiðandi aðdróttun í
garð aðaláfrýjanda. „Á hinn bóginn
verður ekki tekið undir með meiri-
hluta dómsins að atvik þessa máls og
þess sem um var að ræða í dómi
Hæstaréttar 20. nóvember 2014 í
máli nr. 214/2014 séu ósambærileg í
verulegum atriðum. Líkt og í at-
kvæði mínu í því máli tel ég að um-
mæli gagnáfrýjanda varði við fyrr-
greint ákvæði almennra hegningar-
laga og verði ekki réttlætt með vísan
til 73. gr. stjórnarskrárinnar eða 10.
gr. mannréttindasáttmála Evrópu,“
segir í sératkvæðinu.
Vísar Ólafur þar til meiðyrðamáls
Egils á hendur Inga Kristjáni Sig-
urmarssyni, en Ólafur Börkur skil-
aði einnig sératkvæði í því máli þeg-
ar Hæstiréttur staðfesti sýknudóm
yfir Inga.
Egill Einarsson
Ummæl-
in dauð
og ómerk
Egill Einarsson
vinnur meiðyrðamál
Veður víða um heim 18.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 léttskýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri -6 skýjað
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 3 skúrir
Ósló -2 þoka
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 11 súld
Brussel 12 skýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 12 skýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 11 súld
Berlín 10 skýjað
Vín 11 skýjað
Moskva 1 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -12 alskýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 5 alskýjað
Chicago -3 alskýjað
Orlando 18 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:21 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:08 14:52
SIGLUFJÖRÐUR 11:53 14:33
DJÚPIVOGUR 10:59 14:50
Hágæða LED
útiseríur
www.grillbudin.is
Frá Svíþjóð
120 ljós
180 ljós
40 ljós
80 ljós
120 ljós
200 ljós
240 ljós
300 ljós
1000 ljós
LED LED
VELD
U
SEM E
NDAS
T
OG Þ
Ú
SPAR
AR
JÓLA
LJÓS
Smiðjuvegi 2, Kópavogi | S. 554 0400 | Opið 11-16 laugardag og 13-16 sunnudag
LED 50 ljós
100 ljós
120 ljós
150 ljós
200 ljós
300 ljós
1000 ljós10 og 20 ljósGamaldags
Komdu og fáðu ráðleggingar
30-6
0%
afsl
áttu
r af
jóla
ljós
um