Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
Fæst í Hagkaup, Elko, Spilavinum og www.heimkaup.is
NÝTT
www.nordicgames.is
FJÖLSKYLDU- OG PARTÍSPILIÐ
2000 nýjar þrautir og spurningar
Jeppadekk
Jeppinn stendur ekki undir nafni nema hann sé vel dekkjaður.
Ef þú vilt nýta til fullnustu orku, aksturseiginleika og öryggi
jeppans, skiptir sköpum að velja dekk við hæfi.
Þjónustusími: 561 4200
Reykjavík • Fiskislóð 30
Reykjavík • Grjóthálsi 10
Reykjanesbæ • Njarðarbraut 9
Tangarhöfða 8 • Sími: 590 2045
Þjónustuborð: 590 2000
Bílabúð Benna dekkjaþjónusta
Benedikta Br. Alexandersdóttir
benedikta@mbl.is
„Þetta hefur alltaf verið gert, þannig
að þetta er ekkert nýtt af nálinni hjá
okkur né öðrum verslunum í þessum
geira,“ segir Guðrún Sigþórsdóttir,
útlitshönnuður hjá versluninni Pier,
um afslátt á jólavörum. Fjölmargar
verslanir bjóða upp á afslátt af jóla-
vörum núna stuttu fyrir jólin og eru
dæmi um að nú sé hægt að kaupa
jólavöru á allt að 65% afslætti.
Rúmfatalagerinn er engin undan-
tekning frá þessu og hefur verslunin
boðið upp á mikið úrval jólavara í
gegnum árin og oft verið með þeim
fyrstu til þess að setja upp jólavörur
í verslunum sínum. Ívar Ívarsson,
verslunarstjóri Rúmfatalagersins á
Korputorgi, segir það borga sig að
selja jólavörur á afslætti enda geti
lagerpláss verið dýrt. „Það er dýrara
að sitja uppi með vöruna og geyma
hana til næstu jóla en að selja hana á
afslætti. Allar verslanir gera þetta til
þess að hreinsa út svo það sé hægt að
skipta jóladótinu út fyrir aðrar vörur
eftir áramót og kaupa nýjar jólavör-
ur fyrir næstu jól.“
Borgar sig ekki að bíða
Rúmfatalagerinn gefur, líkt og
margar aðrar verslanir, afslátt af
jólavörunum næstu daga og er þar til
dæmis hægt að kaupa jólatré á 60%
afslætti. Það getur því munað miklu
hvort verslað er í byrjun desember
eða í síðustu vikunni fyrir jólin.
Þrátt fyrir þetta vilja flestir Ís-
lendingar ekki bíða lengi með að
kaupa skraut og annan jólavarning
fyrir jólin. „Það er bara fyrstur kem-
ur fyrstur fær. Búðirnar í dag eru
farnar að kaupa inn öðruvísi en þær
gerðu og kaupa þar af leiðandi minna
magn af hverri vöru. Ef þú bíður
með að kaupa vissa vöru þá færðu
hana ekki,“ segir Guðrún. Þá segir
Ívar fastakúnna Rúmfatalagersins
löngu búna að átta sig á því að það
borgi sig ekki að bíða með að festa
kaup á ákveðnum vörum.
Aldrei eins mikið að gera
Sala á jólavarningi hefur gengið
einstaklega vel í ár að sögn Ívars
sem hefur að eigin sögn aldrei séð
annað eins. „Þú myndir ekki trúa því
hvað það selst hratt úr hillunum. Ég
er búinn að vinna hjá Rúmfatalag-
ernum í tíu ár og það hefur aldrei
verið svona gaman. Það er búið að
vera svo mikið að gera og salan meiri
í ár en hefur tíðkast.“
Hið sama hefur verið upp á ten-
ingnum í verslunum Pier en Guðrún
segir starfsfólk verslunarinnar finna
fyrir talsverðari aukningu á sölu
þessi jólin. „Við höfum boðið upp á
breiðara úrval af jólavörum en und-
anfarin ár og það hefur gengið rosa-
lega vel að selja þær vörur. Þannig
að við höfum ekki yfir neinu að
kvarta,“ segir Guðrún.
Aldrei meiri sala á jólavörum
Verslanir lækka verð á jólavörum stuttu fyrir jól Hægt er að gera góð kaup Dýrara fyrir versl-
anir að geyma árstíðabundnar vörur Kaupa minna magn af hverri vöru Fyrstur kemur fyrstur fær
Morgunblaðið/Kristinn
Jólin Það getur borgað sig að bíða með að kaupa jólaskraut og aðrar jóla-
vörur því margar verslanir lækka verðið á því umtalsvert stuttu fyrir jólin.
Samkvæmt reglum Reykjavíkur og
nágrannasveitarfélaga mega fatlaðir
nýta sér ferðaþjónustu fatlaðra 60
sinnum á einum mánuði. Andri Val-
geirsson, varaformaður Sjálfs-
bjargar, gagnrýnir þær takmarkanir
sem reglunum fylgja. Þjónustu-
miðstöðvum velferðarsviðs er heim-
ilt að veita fleiri ferðir til þeirra not-
enda sem eru virkir í íþróttum eða
skipulögðu félagsstarfi. Umfram-
ferðir geta að hámarki verið 20 og er
þá hámarksfjöldi ferða 80 á mánuði.
Ferðaþjónustunni hefur verið sinnt
af Strætó sem keyrir fatlaða á sér-
útbúnum bílum. Gjaldskrá miðast
við hálft almennt fargjald í strætó.
„Þetta er í raun bara ein ferð á dag,
fram og til baka. Meirihluti öryrkja
er virkt fólk sem
er í vinnu, skóla
eða stundar fé-
lagsstörf. Sér-
staklega er þetta
fáránlegt í ljósi
þess að þetta er
rekið af Strætó
og ég sé engar
takmarkanir á
ferðum ófatlaðra
með strætó,“ segir Andri. Reglurnar
hafa verið á þennan veg um hríð en
nú hefur verið tilkynnt að fylgja eigi
þeim eftir með ákafari hætti. „Sjálfs-
björg hefur gagnrýnt þessar tak-
markanir, en það hefur ekki verið
hlustað á það,“ segir Andri. vid-
ar@mbl.is
„Engar takmarkanir
á ferðum ófatlaðra“
Fatlaðir fá 60 ferðir á mánuði
Andri Valgeirsson
Undanþága frá því að stimpla inn
pinnnúmer við notkun greiðslu-
korta verður afnumin hinn 19. jan-
úar næstkomandi. Eftir þann tíma
munu korthafar alltaf þurfa að
staðfesta greiðslur með pinnnúmeri
sínu. Notendur örgjörvalausra
korta munu þó áfram skrifa undir
greiðslukvittun eins og verið hefur.
Í tilkynningu kemur fram að til
þess að forðast óþægindi sé mik-
ilvægt að kortanotendur leggi núm-
erið á minnið.
Hægt er að nálgast pinnnúmer í
netbönkum, öppum eða í því banka-
útibúi sem kortið er gefið út í.
Engar undanþágur með pinnið frá 19.1.