Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Bering 31.150 Bering 19.900Tissot jólatilboð 39.500 kr.. Tissot jólatilboð 36.990 kr. Úr skart & skrín Sign hringur 17.900 Sign hringur 29.900 Sign hálsmen 29.900 Vera hálsmen 19.500 Vera armband 59.900 Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | Sími 551 4007 fallegar gjafir í jólapakkann Vínrautt skrín 19.900 Svart skrín 17.800 skartgripirogur.is Ballerína skrín 4.200 Dagur B. Egg- ertsson, borg- arstjóri Reykja- víkur, skrifaði í gær undir samn- ing um áfram- haldandi aðkomu borgarinnar að markaðs- verkefninu Ís- land allt árið út árið 2016. Farið var fyrst af stað með verkefnið árið 2011 með það að markmiði að efla heilsárs- ferðaþjónustu á Íslandi. Samningurinn gildir til ársloka. Í tilkynningu frá Höfuðborg- arstofu segir að ríkið leggi til allt að 200 milljónir króna á ári gegn jafn háu mótframlagi frá öðrum að- standendum verkefnisins. Þeir eru, ásamt Reykjavíkurborg, Ice- landair, Landsbankinn og Samtök ferðaþjónustunnar. „Ein af meg- instoðum ferðamálastefnu Reykja- víkurborgar er að kynna Reykjavík sem vetraráfangastað sem er í al- gjörum samhljómi með áherslum Íslands – allt árið,“ segir í tilkynn- ingunni. Þá segir að gistinóttum ut- an háannatíma á höfuðborgarsvæð- inu hafi fjölgað um 81,4% á þremur árum, frá 2010 til 2013. ash@mbl.is Efla ferða- þjónustu allt árið  Reykjavík kemur áfram að verkefninu Gisting Aukningin er mikil utan háannatíma. Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli við Dalvík var opnað formlega í gær, fimmtudag. Til stóð að hafa opið frá kl. 17-20. Má segja að með opnun svæðisins í Böggviss- taðafjalli hafi skíðavertíðin á Norðurlandi hafist formlega. Dagana 20.-21. desember verður opið frá kl. 11-15 og dagana 26.-29. frá kl. 11-16. Fjallið verður opnað að nýju 2. janúar. Skíðabrekkurnar í Hlíðarfjalli fyrir ofan Akureyri verða svo opn- aðar kl. 16 í dag, föstudag. Snjó hefur kyngt niður í Eyjafirði síð- ustu vikuna eftir snjólaust haust, sem stóð raunar fram í desember. Fýkur jafnóðum niður í bæ „Já, það má segja að þetta sé ýmist of eða van. Það hefur þó ekki fest mikinn snjó hér í fjall- inu. Þetta fýkur allt jafnóðum nið- ur í bæ en það hefur verið kalt og við höfum því getað látið snjó- byssurnar ganga viðstöðulaust til að búa til gott skíðafæri,“ er haft eftir Guðmundi Karli Jónssyni, forstöðumanni skíðasvæðisins, í tilkynningu frá Akureyrarbæ. „Hér er því fönn, fönn, fönn, ekta íslensk fönn, eins og Stuðmenn sungu um árið,“ segir Guð- mundur. Opið verður í Hlíðarfjalli frá kl. 16-19 á föstudaginn og frá 10-16 á laugardag og sunnudag. Á mánu- dag verður opið frá 12-19 en lokað á Þorláksmessu. Skíðasvæði opnuð nyrðra Ljósmynd/Auðunn Níelsson Hlíðarfjall Búast má við mikilli aðsókn strax fyrsta daginn sem opið verður.  Snjóbyssurnar hafa gengið viðstöðulaust í Hlíðarfjalli Guðmundur Magnússon, for- seti bæjarstjórnar Seltjarnarness, baðst lausnar frá störfum bæj- arfulltrúa á bæj- arstjórnarfundi á mánudaginn. Á fundinum var tekið fyrir bréf frá Guðmundi þar sem hann óskar eftir lausn úr sveit- arstjórn samkvæmt 30. gr. sveit- arstjórnarlaga, þar sem hann sé að flytja úr bæjarfélaginu og missi því kjörgengi samkvæmt hefðbundnum reglum. Guðmundur og fjölskylda hans hyggst flytja til Reykjavíkur. Guðmundur hefur verið bæj- arfulltrúi í fimm ár og skipaði hann 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar. Í fundarlok færðu bæjarfulltrúar Guðmundi þakkir fyr- ir samstarfið og óskuðu honum vel- farnaðar. Bjarni Torfi Álfþórsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar í stað Guð- mundar. Sæti Guðmundar Magn- ússonar í bæjarstjórn tekur Magnús Örn Guðmundsson og varabæjar- fulltrúar verða Karl Pétur Jónsson og Katrín Pálsdóttir. Baðst lausnar frá störfum bæjarfulltrúa Guðmundur Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.