Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
TREFLARVERÐ FRÁ3.900 kr
LAUGAVEGUR 34
SÍMI: 551 4301
WWW.GUDSTEINN.IS
OPNUNARTÍMI FRAM AÐ JÓLUM
VIRKA DAGA 9 - 22
LAUGARDAGA 10 - 22
SKYRTURVERÐ FRÁ4.900 kr
HANSKARVERÐ FRÁ2.900 kr
HÚFUR
VERÐ FRÁ5.900 kr
PEYSURVERÐ FRÁ8.900 kr
JAKKAFÖTVERÐ FRÁ32.000 kr
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Forseti Alþingis, Einar K. Guð-
finnsson, vakti máls á fjölgun fyr-
irspurna til ráðherra í lokaorðum
sínum við frestun þingsins á þriðju-
dagskvöld. Nefndi hann sérstaklega
að á nýliðnu haustþingi hafa 215
fyrirspurnir verið lagðar fram þar
sem óskað er eftir skriflegum svör-
um ráðherra.
„Hér er um að ræða mjög mikla
breytingu. Ef þróunin verður svip-
uð á þeim tveimur starfsönnum sem
eftir eru þessa þings verða slíkar
fyrirspurnir á þessu eina þingi
orðnar mun fleiri en á öllu síðasta
kjörtímabili,“ sagði Einar.
Vaxandi álag ráðuneyta
Bætti hann við að hann teldi það
ekki æskilega þróun ef hefð-
bundnar fyrirspurnir þróuðust í þá
átt að krefjast fyrst og fremst
skriflegra svara. Gildi fyrirspurna
fælist ekki síst í því að bjóða upp á
markviss og snörp skoðanaskipti
þingmanna og ráðherra sem allir
þingmenn gætu tekið þátt í. Nefndi
hann þó að lokum að fjölgun fyr-
irspurna til skriflegs svars hefði
ekki komið niður á svarhlutfalli
þrátt fyrir vaxandi álag fyrir starfs-
fólk ráðuneyta.
Þingmenn fari eftir dagskránni
Einar ítrekaði einnig beiðni sína
til þingmanna, um að þeir þyrftu að
gæta að því að dagskrá þingfunda
færi ekki úr böndum. Því næst
beindi hann orðum sínum að ráð-
herrum og sagði að þeir yrðu að
huga tímanlega að þeim þingmálum
sem þeir hygðust leggja fyrir Al-
þingi.
Talaði í 17 klukkustundir
Fundum Alþingis hefur nú verið
frestað og mun þingið koma saman
á nýju ári, hinn 20. janúar næst-
komandi.
Steingrímur J. er ræðukóngur
haustþingsins en hann talaði lengst
allra þingmanna á haustþinginu
sem lauk á þriðjudag. Talaði hann
samtals í 1.035 mínútur úr ræðustól
þingsins eða í rúmar 17 klukku-
stundir, töluvert lengur en hinn al-
menni þingmaður, en með-
alræðutími þingmanna þetta
haustþing er rúmar 3 klukkustund-
ir. Fór Steingrímur með 107 ræður
og gerði 201 athugasemd.
Á listanum yfir þá tíu þingmenn
sem lengst töluðu er einn stjórn-
arliði, Bjarni Benediktsson Sjálf-
stæðisflokki. Hvorki Framsókn-
arflokkurinn né Björt framtíð eiga
fulltrúa á listanum.
Sex ræður og ein athugasemd
Haraldur Einarsson, Framsókn-
arflokki, er sá þingmaður sem tal-
aði styst á haustþingi eða í samtals
21 mínútu. Flutti Haraldur sex
ræður og gerði eina athugasemd.
Einungis stjórnarliðar eru á lista
yfir þá fimm sem skemmst töluðu á
haustþinginu, en auk Haralds má
þar finna tvo þingmenn úr Sjálf-
stæðisflokki og tvo úr Framsókn-
arflokki.
Alls töluðu þingmenn í rúmar 246
klukkustundir, eða sem nemur tæp-
um fjórum vikum. Þá voru 2.496
ræður fluttar auk þess sem gerðar
voru 2.959 athugasemdir.
Fyrirspurnum fjölgar til ráðherra
Forseti Alþingis vekur athygli þingmanna á mikilli fjölgun fyrirspurna um skrifleg svör ráðherra
Steingrímur J. talaði lengst allra á nýliðnu haustþingi Þingmenn Framsóknarflokks tala minnst
Morgunblaðið/Ómar
Lokað og læst Fundum Alþingis var frestað um fimm vikur á þriðjudaginn
og mun þingið koma saman á nýju ári, hinn 20. janúar næstkomandi.
Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi
1 Steingrímur J. Sigfússon 1.035mín.
2 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir 696mín.
3 Bjarni Benediktsson 665mín.
4 Árni Páll Árnason 601mín.
5 Jón Þór Ólafsson 593mín.
6 Lilja Rafney Magnúsdóttir 479mín.
7 Össur Skarphéðinsson 476mín.
8 Helgi Hjörvar 468mín.
9 Kristján L. Möller 383mín.
10 Katrín Jakobsdóttir 376mín.
Þingmenn sem skemmst töluðu
1 Haraldur Einarsson 21mín.
2 Gunnar Bragi Sveinsson 29mín.
3 Ragnheiður Ríkharðsdóttir 30mín.
4 Líneik Anna Sævarsdóttir 35mín.
5 Ásmundur Friðriksson 36mín.