Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.12.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Sófasett, svefnsófar, hvíldarstólar ofl.ofl Opið laugardag 11 - 18 sunnudag 14 - 16 Roma 3 – 1 – 1 tau sófasett. Indo hvíldarst. m/skammel Tokio rafm.liftu stóll Tungu sófar m. svefnplássi og rúmfatag. Sófab.Sandra 120 x 80 Hornb. Sandra 60 Camilla sjónv.skápur 150 cm. Torino sjónv.skápur 135 cm. Sófab. Sharon 120 x 75 x 50 Teg. Mary 3 – 1 – 1 Teg. Giulia 3 – 1 – 1 Mál Heiðars Más Guðjónssonar, eig- anda fjárfestingafélagsins Ursus, gegn Eignasafni Seðlabanka Íslands (ESÍ) og Seðlabanka Íslands var fellt niður að hans eigin kröfu í gær- morgun. Heiðar hefur þegar höfðað nýtt mál með hærri bótakröfu. Í upphaflega málinu krafðist Heiðar þess að fá greiddar bætur upp á rúmlega 1,4 milljarða króna vegna tjóns sem hann varð fyrir við söluferli Sjóvá á árinu 2010. Í samtali við mbl.is í gær sagðist Heiðar þegar hafa sent frá sér nýja stefnu þar sem krafist er tæplega tveggja milljarða króna í bætur. Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í gærmorgun þarf Heiðar þó að greiða málskostnað er nemur um 1,1 milljón króna þar sem hann felldi niður málið. Málatilbúnaðurinn er sá sami og í fyrra máli. Hann byggist á því að bindandi samkomulag hafi náðst við ESÍ 10. júlí 2010 um að hópur fjár- festa, sem Ursus fór fyrir, keypti til- tekinn fjölda hluta í Sjóvá á fyrir- fram ákveðnu gengi. Auk þess hafi fylgt réttur til að kaupa fleiri hluti í Sjóvá. Ekki hafi verið staðið við þetta samkomulag. Aðspurður hvers vegna hann sé að hækka bótakröfuna segir Heiðar að ekki hafi verið tekið tillit til heildar- tjónsins í fyrri stefnu. „Mér fannst algjör óþarfi að sleppa þeim með þennan hálfa milljarð,“ segir Heiðar. Þá segist hann hafa þurft að senda inn fyrri stefnu fyrir þinghlé þar sem málið hefði að öðrum kosti fyrnst. Seðlabankinn og ESÍ féllu frá því að staðfesta söluna á Sjóvá til fjár- festahóps sem Ursus fór fyrir haust- ið 2010 vegna þess að bankinn væri að rannsaka meint brot Ursusar á lögum og reglum um gjaldeyrismál. Bankinn gaf sig ekki og sáu fjárfest- arnir sig knúna til þess að segja sig frá viðskiptunum. Sérstakur sak- sóknari féll frá rannsókninni á hin- um meintu brotum Ursusar. Stað- festi ríkissaksóknari þá ákvörðun. Heiðar Már krefst 1,9 milljarða  Hefur höfðað nýtt mál gegn SÍ Ursus Heiðar Már Guðjónsson. Isavia hefur undirritað fimm millj- arða króna lán frá Norræna fjárfest- ingabankanum (NIB), til að fjár- magna framkvæmdir og endurbætur á Keflavíkurflugvelli sem eiga að auka afköst flugvallarins. Lánsfjárhæðina á nánar til tekið að nota til kaupa á nýjum flugvernd- arbúnaði, stækkun komu- og innrit- unarsvæða, flugvélastæða, endur- bótum flugbrauta og leiðsögukerfa auk annarra framkvæmda. Til stendur að fjárfesta fyrir alls 15 milljarða króna til ársins 2016. Að sögn Henrik Normanns, for- stjóra NIB, mun fjármagn frá bank- anum koma til móts við aukna eft- irspurn eftir þjónustu á flugvellinum vegna aukins farþegafjölda og auka möguleika á samkeppni flugfélaga í flugi til og frá Íslandi. Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segir miklar fjárfestingar nauðsynlegar á Keflavíkurflugvelli, til að mæta síauknum kröfum um aukna þjónustu og afkastagetu. Áætlað sé að gerð aðalskipulags og þróunaráætlunar fyrir flugvöllinn verði lokið á næsta ári. Þá skýrist betur hvaða leið verður farin til þess að mæta langtímaþörfum flugvallar- ins og notenda hans. Hann fagnar samstarfinu við NIB og telur það Isavia til framdráttar. brynja@mbl.is Isavia fær 5 milljarða lán  Norræni fjárfestingarbankinn fjármagn- ar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli Morgunblaðið/Sigurgeir Framkvæmdir Til stendur að fjár- festa fyrir 15 milljarða til 2016. Miðað við að áætlaður afgangur á fjárlögum ríkissjóðs á árinu 2015 er aðeins 0,2% af landsframleiðslu má ætla að markmið stjórnvalda sé fyrst og fremst að skila hallalausum rekstri, í stað þess að greiða niður skuldir eða skapa svigrúm til að lækka álögur. Þetta kemur fram í greiningu efnahagssviðs Samtaka atvinnulífs- ins (SA) – Fjárlög 2015: Hefur um- fang ríkisins aukist til frambúðar? – á nýsamþykktum fjárlögum ríkisins. Er það mat greinenda SA að lítið megi út af bregða til að ríkissjóður verði á ný rekinn með halla. Bent er á að umsvif ríkisins aukist talsvert á þessu ári og því næsta og það stefni í að ríkisútgjöld verði orðin hærra hlutfall af landsframleiðslu en nokkru sinni fyrir bankahrun. Í greiningu SA er gagnrýnt að þessi stefna sé mörkuð á sama tíma og skuldastaða ríkisins hefur sjaldan verið alvarlegri og vaxtakostnaður er einn stærsti útgjaldaliður ríkis- sjóðs. Eigi að takast að draga úr þeirri byrði er það mat greinenda SA að nauðsynlegt sé að líta til sölu á eignum ríkisins samhliða hagræð- ingu í rekstri. Í greiningunni er sett fram sviðs- mynd sem gerir ráð fyrir eignasölu ríkisins sem gæti skilað 410 millj- örðum á árunum 2015 til 2017. Þann- ig yrði 35% hlutur í Landsbankanum seldur miðað við fullt bókfært eigin- fjárvirði; endurgreiðsla á helmingi af 480 milljarða gjaldeyrisforð- alánum Seðlabankans; og sala á 35% hlut ríkisins í Landsvirkjun á geng- inu 1,3 miðað við bókfært eigið fé. Miðað við þessa sviðsmynd gæti skuldahlutfall ríkisins farið niður í ríflega 40% á árinu 2018. Uppsafn- aður vaxtasparnaður ríkissjóðs við slíka eignasölu væri um 60 millj- arðar á næstu fjórum árum. Nauðsynlegt að líta til eignasölu  Gæti þýtt 60 milljarða vaxtasparnað Morgunblaðið/Þórður Fjárlög Ásdís Kristjánsdóttir er forstöðumaður efnahagssviðs SA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.