Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 26

Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 26
Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Julius K-9 hafa verið kosin bestu beislin frá 2010 af leiðandi hundatímaritum í Evrópu Fæst í öllum betri gæludýraverslunum Finndu okkur á facebook Julius K-9 Ísland Lýsa ímyrkri! NÝTT • Julius K-9 beislin eru notuð af lögreglu- og björgunarsveitum víðsvegar um heiminn. • Julius K-9 hefur skapað nýjar stefnur í heimi hunda og tísku. • Þekktasta vörumerkið, K-9 Power harness, hefur sett mark sitt á hundaheiminn. • Julius K-9 hefur í meira en 10 ár verið í fremstu röð fyrirtækja í Evrópu á sviði íþrótta hunda, þjónustu hunda, fjölskyldu hunda, búnaði og öðrum aukabúnaði. • Á þessum tíma hefur félagið náð leiðandi stöðu meðal framleiðenda. • Vörur Julius K-9 eru framleiddar í löndum ESB. • Julius K-9 notar hluta af tekjum sínum til ýmissa hjálpar- og líknarstarfa, tengt hundum.– FULLT HÚS ÆVINTÝRA REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 ellingsen.is Munið gjafabréfi n! DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR Blátt og rautt, stærðir 10–16 7.990 KR. Jólagjöfin fæst í Ellingsen DEVOLD DUO ACTIVE JUNIOR Blátt og rautt, stærðir 10–16 7.990 KR. DEVOLD POLAR BABY Blátt og bleikt, stærðir 74–98 13.990 KR. Hlýjar jólagjafir PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 4 4 1 5 9 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Vladímír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi á blaðamannafundi í gær að landið stæði frammi fyrir erfiðum efnahagsvanda en kvaðst vera viss um að Rússum tækist að rétta efna- haginn við áður en langt um liði. Hann gaf til kynna að hann hygðist ekki breyta stefnu sinni í Úkraínu- deilunni og sagði að enginn fótur væri fyrir vangaveltum um að hann væri að missa stuðning yfirstéttar- innar. „Jú, þetta eru ekki auðveldir tímar,“ sagði Pútín á þriggja og hálfr- ar klukkstundar löngum blaða- mannafundi í Moskvu. Hann bætti við að Rússar myndu laga sig að lágu olíuverði sem hefur orðið til þess að gengi rúblunnar hefur fallið og tekjur ríkisins minnkað til mikilla muna. „Þetta ástand gæti staðið í tvö ár. Það gæti þó batnað fyrr,“ sagði forsetinn. Engin hallarbylting í nánd Pútín hló þegar hann var spurður hvort hann óttaðist að honum yrði steypt af stóli. „Hvað spurninguna um hallarbyltingu varðar, þá skulum við róa okkur niður,“ sagði hann. „Við erum ekki í höllum og þess vegna verður engin hallarbylting. Við erum með opinberan bústað í Kreml og hann nýtur öruggrar verndar.“ Pútín lagði áherslu á að hann nyti enn mikils stuðnings meðal almenn- ings. „Fólkið veit að við höfum hags- muni þorra íbúa landsins að leiðar- ljósi.“ Sakar Bandaríkin um hræsni Forsetinn sagði að „25 til 30 pró- sent“ af efnahagsvanda Rússlands stöfuðu af refsiaðgerðum vestrænna ríkja vegna stuðnings Rússa við upp- reisnarmenn í austanverðri Úkraínu. Hann neitaði því að rekja mætti gengisfall rúblunnar til innlimunar Krímskaga í Rússland í mars. „Þetta snýst á engan hátt um Krím,“ sagði forsetinn og líkti Rúss- landi við björn í baráttunni við vesturveldin sem vildu grafa undan sjálfstæði landsins. „Þegar þau hafa rifið út klærnar og tennurnar er eng- in þörf fyrir björninn lengur – þau stoppa hann bara upp,“ sagði hann. „Markmið okkar er að vernda sjálf- stæði okkar, fullveldi og tilverurétt.“ Pútín kvaðst vona að samkomulag næðist um frið í Úkraínu og hvatti stjórn landsins og uppreisnarmenn- ina í austurhéruðunum til að semja um fangaskipti fyrir jól. Hann sakaði ennfremur stjórnvöld í Bandaríkjunum um hræsni, sagði að Rússar væru aðeins með tvær her- stöðvar utan landamæra sinna en bandarískar herstöðvar væru „úti um allan heim“. Kveðst viss um að Rússar geti rétt efnahaginn við  Pútín neitar því að pólitísk staða sín sé orðin veik AFP Upp með hendur Vladímír Pútín, forseti Rússlands, horfir á blaðamenn sem rétta upp hönd í von um að fá að leggja spurningu fyrir hann á árlegum blaðamannafundi forsetans í Moskvu í gær. Hann ræddi m.a. efnahagsvanda Rússa. Heimild : Yahoo Finance Gagnvart Bandaríkjadollar 70 Gengi rúblunnar 60 50 40 30 Jan. Mars Júní Sept. Des. 67,88 16. des. 32,70 rúblur 2. janúar 47,28 17. nóv. 54,63 12. des. 60,73 17. des. Rússar of háðir olíu- og gasútflutningi » Vladimír Pútín forseti viður- kenndi á blaðamannafundinum að efnahagur Rússlands væri of háður útflutningi á olíu og jarðgasi og stjórninni hefði ekki tekist að skjóta fleiri stoð- um undir hann. » Um 50% af tekjum rúss- neska ríkisins koma frá olíu- og gasvinnslu. » Um 68% af útflutnings- tekjum Rússa koma frá sölu á olíu og gasi, þar af 33% frá út- flutningi á hráolíu, einkum til Evrópu. Breska konungs- fjölskyldan íhug- ar nú að láta fjar- lægja nokkra veiðigripi af heimili Elísabet- ar II. Bretlands- drottningar í Sandringham- höll. Á meðal gripanna eru fíla- tennur og uppstoppaðir nashyrn- ingar og er óttast að tilvist þeirra geti leitt til deilna við Evrópusam- bandið um lögmæti þeirra. Talsmenn Buckingham-hallar sögðu í gær að konungsfjölskyldan væri tilbúin til þess að fjarlægja hvaða hluti úr safninu sem gætu brotið í bága við reglur sambandsins um dýr í útrýmingarhættu, en safnið er opið almenningi um sumartímann. Dýrin í safninu voru öll skotin af meðlimum konungsfjölskyldunnar á árunum frá 1870 til 1941, og er þar meðal annars að finna uppstoppuð ljón, tígrisdýr og skinn af hlébörð- um. Tilvist safnsins er þó talin koma sér sérstaklega illa fyrir Vilhjálm prins, sem hefur verið talsmaður herferðar gegn ólöglegum veiðum og smygli á tegundum í útrýmingar- hættu. Íhuga að fjarlægja veiðigripi Vilhjálmur prins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.