Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 ✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist á Auðkúlu í Arn- arfirði 9. ágúst 1906, fjórða í röð átta systkina. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði 12. des- ember 2014. Foreldrar henn- ar voru Jón Bjarni Matthíasson bóndi og skipstjóri á Auð- kúlu og Guðmunda María Gísla- dóttir ljósmóðir á Auðkúlu. Guðrún giftist Gunnari And- rew Sigurðssyni sjómanni og síð- ar yfirfiskmatsmanni. Gunnar lést árið 1967. Þau byrjuðu bú- skap á Þingeyri en fluttu síðan í Hafnarfjörð þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Guðrún starf- aði um tíma á saumastofu Vogue á Skólavörðustíg en tók einnig að sér saumaverkefni heim. Guðrún og Gunn- ar eignuðust fimm börn. María, f. 1937, maki Anton Jóns- son. Sigurður Garð- ar, f. 1938, maki Magnea Gunn- arsdóttir. Gunnar Örn, f. 1940, maki Guðný Ragnarsdóttir, þau skildu. Gísli Einar, f. 1942, maki Guðmunda Þ. Gísladóttir, þau skildu, og Jón Bjarni, f. 1945, maki Ingibjörg Kristinsdóttir. Afkomendur hennar eru um 80. Útför Guðrúnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19. desember 2014, kl. 13. Mig langar að skrifa hér nokkur orð til að minnast ömmu minnar. Þegar ég var fjögurra ára flutti fjölskyldan á Skúlaskeiðið í Hafnarfirði og varð þá amma mikill hluti af lífi mínu. Ég var svo heppin að alast upp í sömu götu og amma, aðeins tvö hús á milli okkar. Snemma var maður búinn að finna út að gott var að banka upp á hjá henni, því allt- af átti hún eitthvað gott að borða eða heitt súkkulaði. Einn- ig fannst henni gott að fá hjálp við að fægja silfrið eða að klippa út snið. Seinna fékk maður svo að leggja sniðin á og kríta í kring. Amma mín var einstök kona, ótrúlega nútímaleg og langt á undan sinni kynslóð. Mikil dama sem fór ekki út með rusl- ið nema með varalit. Alltaf á hælaskóm þó ekki væru þeir endilega mjög háir. Hún saum- aði mikið af fatnaði, bæði á sig og aðra. Sem dæmi þá eignaðist ég fyrsta „búðar“kjólinn 18 ára. Amma var smart kona, vel klædd og tilhöfð. Mjög glaðlynd og jákvæð kona sem ávallt tal- aði vel um náungann. Hún hafði mikinn áhuga á að ferðast bæði innanlands og utan. Síðasta ferðalagið sem ég deildi með henni var á Vestfjörðum árið 2009 þegar við vorum saman á Þingeyri. Áður fyrr gekk hún á fjöll og í fjörur til að safna steinum og átti töluvert safn af fallegum steinum sem við barnabörnin ólumst upp við að handleika. Einnig átti hún alltaf fallegan garð sem hún hafði mikinn áhuga á að hirða á Skúlaskeiðinu. Og jólaboðin á jóladag eru eitthvað sem við barnabörnin berum örugglega öll frábærar minningar frá. Hvernig við rúmuðumst öll í þessari litlu íbúð hennar ömmu veit ég ekki en ekki minnist ég neinna þrengsla, aðeins gleði, glaums og svo matarins, þar var hún snillingur ! En það sem situr sterkast í barnaminningunni er bókalest- urinn því það var áhugamál sem við amma deildum saman. Hún var snemma farin að gauka að mér bókum sem kannski ekki var hefðbundið að grunnskólabarn væri að lesa. Guðrúnu frá Lundi afgreiddi ég kannski 10 ára, Egilssaga var líka snemma á lestrarlistanum, síðan tóku við skáldsögur og ævisögur. Seinna fór hún að taka mig með á bókasafnið og þar urðum við nöfnurnar þekkt- ar fyrir að vera á undanþágu með fjölda bóka í úttekt. Seinna snérist dæmið við og ég fór að sækja ömmu í bókasafnsferðir og þá aðallega á fimmtudags- kvöldum þegar safnið var opið til kl. 21. Amma á Skúló eins og mín fjölskylda talar um hana hefur ætíð reynst mér og mínum mik- ill klettur í gegnum árin. Rúm- lega sjötug tók hún að sér yngri systur mína við fráfall móður okkar og bar hitann og þungan af uppeldi hennar. Einnig skaut hún skjólshúsi yfir mig og dótt- ur mína þá 1 árs í nokkrar vik- ur þá komin hátt í áttrætt. En aldur var alltaf bara tala þegar amma var annars vegar! Ég kveð ömmu með gleði í hjarta því ég veit að nú eru amma og afi loks saman eftir langa bið hjá afa. Hún hefur margoft sagt mér að afa væri farið að lengja eftir henni. Fal- leg kona, bæði að utan og innan sem reyndist mér og mínum mikil stoð. Farðu í friði, elsku amma mín, njóttu nú samverunnar með afa í Sumarlandinu. Þín elskandi sonardóttir Guðrún María Gísladóttir. Elsku fallega amma mín, loksins kom kallið þitt sem þú varst búin að bíða eftir. Þú nefndir það nokkrum sinnum hvort Guð hefði gleymt þér en auðvitað var það ekki þannig, ég held að hann hafi bara verið svo góður við okkur sem áttum þig að, að leyfa okkur að hafa þig svona lengi hjá okkur. Það á eftir að vera svolítið skrítið að hafa þig ekki lengur hjá okkur, þú varst límið sem tengdir okk- ur saman, ég hitti frænkur og frænda þegar ég kom í heim- sókn til þín og auðvitað líka í afmælum hjá þér því þú áttir svo mörg stórafmæli. Takk, elsku amma mín, fyrir öll góðu gildin sem ég lærði af þér, alla ástina og kærleikann sem ég fékk frá þér. Þú varst alltaf svo ljúf og góð og mér leið alltaf eins og ég væri fal- legust, best og merkilegust eft- ir að hafa verið hjá þér. Nú ert þú búin að hitta afa og alla þá sem voru búnir að kveðja for- eldra, systkini og vini, ég veit að þú saknaðir þeirra. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að í lífinu og fengið að njóta þín svona lengi. Með söknuði og þakklæti kveð ég þig að sinni, elsku ynd- islega amma mín, ég veit að þú átt eftir að fylgjast með okkur og halda verndarhendi yfir okk- ur öllum sem þú unnir svo heitt. Ragnheiður Gunnarsdóttir. Guðrún Jónsdóttir ✝ Marý ValdísJónsdóttir fæddist í Byrgi í Glerárþorpi 29. október 1927. Hún lést á Hrafnistu, Boðaþingi í Kópa- vogi 7. desember 2014. Foreldrar henn- ar voru Jón Guð- mann Sig- urjónsson, f. 20. júní 1892, d. 12. apríl 1987, og Anna Steinunn Árnadóttir, f. 9. nóvember 1894, d. 15. febrúar 1955. Látin systkini Valdísar eru Árni Jónsson, f. 1912, d. 1987, Sigurjón Jónsson, f. 1913, d. 1914, Snorri Jónsson, f. 1915, d. 1984, og Sigríður G. Jóns- dóttir, f. 8. september, d. 12. júní 2009. Valdís eignaðist eina dóttur með Jóni Ingimund- arsyni vélstjóra, f. 26. janúar 1925, d. 28. október 2003. Dóttir þeirra, Anna Steinunn Jónsdóttir, eign- aðist þrjú börn með fyrri manni sínum, Gylfa Sæmunds- syni. Þau eru Gylfi Steinar, f. 1975, Einar Örn, f. 1982, og Marý Valdís, f. 1988. Langömmubörnin eru orðin níu. Valdís starfaði lengst af sem sjúkraliði og aðallega á geðdeild Borgarspítala Útför Valdísar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 19. des- ember 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Í dag kveðjum við hana Val- dísi frænku mína. Margar minn- ingar leita á hugann, þú varst alltaf svo góð við mig og við töl- uðum oft og mikið saman í sím- ann. Í lokin sagðirðu alltaf: „Takk fyrir að nenna að tala við svona gamalmenni.“ Valdís var mikill fagurkeri. Núna ertu komin til ömmu Rúnu og núna getið þið aldeilis spjallað eins og forðum. Minningin um góða og hlýja konu lifir. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Þín frænka, Guðrún Þráinsdóttir. Kynni okkar Valdísar hófust fyrir u.þ.b. átta árum. Þá var hún að nálgast áttrætt. Ég skynjaði fljótt að þarna fór merkileg kona með mikla lífs- reynslu að baki þó ekki verði hún tíunduð hér. Hún hafði sjálfstæðar skoðanir á mönnum og málefnum líðandi stundar og hvikaði hvergi. Það var mér verulegt ánægju- efni að ræða við hana og kynn- ast með því fortíð vinnandi fólks sem naut þess að þjóna öðrum og gerði litlar kröfur til sjálfs sín. Valdís var skemmtileg í allri viðkynningu, rökföst og afar stéttvís. Henni varð tíðrætt um hluti sem við sem yngri erum teljum sjálfsagða eins og hreint loft, vatn og rafmagn sem hún taldi réttilega „mikil gæði“ eins og hún orðaði það jafnan. Valdís var mikill unnandi skáldskapar Davíðs Stefánsson- ar. Ég kveð hana með ljóðinu Við dánarbeð eftir hann. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festing færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. Ég votta ástvinum hennar samúð mína. Hún hvíli í friði. Einar Magnússon. Elsku Valdís mín. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Við kynntumst fyrir rúmum 30 árum og hafa tengsl okkar verið afar sterk öll árin. Þú hafðir miklar skoðanir á bæði mönnum og málefnum og stóðst ávallt með sjálfri þér. Stuðn- ingur þinn og væntumþykja gagnvart mér og mínu fólki hef- ur verið ómetanlegur. Ég þakka þér samfylgdina. Sofðu rótt, elsku Valdís. Þín Guðbjörg. Marý Valdís Jónsdóttir ✝ Eysteinn LeóJónsson fædd- ist í Vest- mannaeyjum 9. júlí 1936. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 11. des- ember 2014. Foreldrar hans voru hjónin Jón Árni Benedikt Þor- steinsson, f. 31. október 1909 á Djúpalæk í Bakkafirði, d. 6. febrúar 1989, og Jóhanna Ey- steinsdóttir, f. 18. febrúar 1906 í Tjarnarkoti í Landeyjum, d. 5. júní 1993. Systkini Eysteins eru Birgir Jónsson, f. 1. ágúst 1938, og Elínborg Nanna Jónsdóttir, f. 10. ágúst 1944. Eysteinn kvæntist 3. október Jón Björn múrarameistari, f. 1961, maki Margrét Káradóttir, f. 1964, sonur Ágúst Björn, f. 2003. 3) Sigrún viðskiptafræð- ingur, f. 1964, maki Hlynur Geir Guðmundsson, f. 1962, dætur Hrefna Rós, f. 1994, maki Karl Kristjánsson, og Hildur Edda, f. 2004. 4) Sigríð- ur næringarfræðingur, f. 1965, maki Sigurður Gunnar Mark- ússon, f. 1966, synir Markús Andri, f. 1992, og Brynjar Ingi, f. 1998. Eysteinn ólst upp í Reykjavík og gekk í Miðbæjarskólann. Hann lærði bifreiðasmíði í Iðn- skólanum í Reykjavík og starf- aði við þá iðn í níu ár hjá Bíla- smiðjunni. Árið 1963 hóf hann störf hjá Ottó Michelsen hjá Skrifstofuvélum hf. sem síðar varð Nýherji hf. Eysteinn starf- aði hjá Nýherja sem raf- eindavirki þar til hann lét af störfum árið 2001. Útför Eysteins fer fram frá Lindakirkju í dag, 19. desember 2014, og hefst athöfnin kl. 13. 1959 Sigríði Guð- mundu Jónsdóttur sjúkraliða, f. á Ísa- firði 29. febrúar 1940. Börn þeirra eru: 1) Jóhanna, bókari, f. 1960, maki Pétur Steinn Sigurðsson, f. 1961, börn þeirra eru a) Margrét, f. 1979, maki Arnar Bjarkl- ind, börn þeirra eru Aron og Sara, b) Kristinn, f. 1985, maki Halldóra Guð- laugsdóttir, barn þeirra Guð- laugur Benjamín, c) Ægir Freyr, f. 1986, maki Anna Jak- obína Guðjónsdóttir, d) Vilborg, f. 1989, maki Sigurður Gunnar Þorsteinsson, e) Linda, f. 1993, maki Matthías Grétarsson. 2) Elsku Eysteinn afi. Við hefð- um ekki getað hugsað okkur betri afa en þig. Þú varst okkur svo miklu meira en bara afi. Fyrirmynd, vinur, stoð og stytta, það var alltaf hægt að leita til þín með spurningar og alltaf var nóg um svör og gott betur en það. Já afi, þú vissir allt og gast alltaf aðstoðað okkur. Við eigum endalaust af góðum minningum um þig. Þegar þú settir þig í hlutverk jólasveinsins Gauragangs og tókst okkur litlu jólasveinana með að heimsækja alla ættingjana á aðfangadag. Þú gafst frá þér svo mikla ást og kærleik og minntist oft á það hversu stoltur þú værir af okkur og ánægður með fjölskylduna. Þú kenndir okkur margt, að fjöl- skyldan væri það mikilvægasta sem við ættum og að við ættum að vera stolt af sjálfum okkur og ófeimin. Þú verður alltaf ofarlega í huga okkar og allar minningarn- ar sem við eigum um þig sjá til þess að við munum aldrei gleyma þér. Við kveðjum þig með kossi á báðar kinnar eins og þú varst vanur að kveðja okkur. Hvíldu í friði elsku afi okkar, við vitum að þú ert á góðum stað núna og getur gert alla þá hluti sem þig langar til, þar til við hittumst aftur. Þín barnabörn Markús Andri, Linda, Hrefna Rós og Brynjar Ingi. Eysteinn var mikill bókaorm- ur og var nánast alæta á þeim vettvangi. Hann hafði gott minni og var því hafsjór af fróðleik, enda naut hann sín í góðum fé- lagsskap þar sem frásagnargleði hans fékk að njóta sín. Við urðum samstarfsfélagar vorið 1975, er ég réð mig til Skrifstofuvéla hf. en þar starfaði Eysteinn sem rafeindavirki. Með okkur tókst strax góð vinátta. Báðir höfðum við mikinn áhuga á steinasöfnun og strax fyrsta sumarið fórum við að leita fanga í Hvalfirði, reyndar með afar takmarkaða þekkingu á við- fangsefninu. Þekkinguna öðluð- umst við ekki fyrr en okkur var boðið að gerast stofnfélagar að Félagi áhugamanna í steinda- fræði. 1983. Félagið hafði aðset- ur í húsakynnum Náttúrufræði- stofnunar Íslands og naut leiðsagnar forstöðumanns jarð- fræðideildarinnar. Ég tel að dr. Sveini P. Jakobssyni hafi tekist allsæmilega með að troða vissum þáttum steindafræðinnar í haus- inn á okkur Eysteini. Engin steinaferð var annarri lík. Haustferð í Hoffellsdal þar sem stjörnuhrap lýsti upp allt umhverfið. Ferð að Stóru-Borg undir Eyjafjöllum þar sem við söfnuðum steind (vivianít) mynd- aðri úr lífrænum efnum. Kletta- klifur í Esjunni sem endaði með handarbroti og legu á Borgar- spítalanum. Eysteini þótti ég eitthvað slakur í klettaklifrinu og vildi sýna mér hvernig maður skyldi bera sig að, strunsaði upp fyrir mig en kom að vörmu spori til baka, fljúgandi, lenti í urðinni fyrir neðan, spratt upp eins og gorkúla og kallaði „slapp með skrekkinn“ hneig síðan niður, sárkvalinn. Keyrður í bæinn í grjóthastri jeppabifreið, það var erfið ferð. Okkar sameiginlegu steina- ferðum lauk um 1985, þegar Ey- steinn varð fyrir öðru líkamlegu áfalli. „Ertu lagari?“ spurði þriggja ára dóttir mín Eystein, fyrir nokkrum áratugum, og ekki að ástæðulausu, þegar hann birtist með verkfæratöskuna sína, einu sinni sem oftar. Hann var ein- staklega bóngóður, mættur á staðinn ef ég, með alla mína þumalputta, þurfti á einhverri aðstoð að halda, Hann smíðaði fyrir mig millivegg í stofu og vinnuborð í bílskúr, setti upp fyrir mig loftljóst, og skipti um ótal perur í bifreiðum mínum svo lítið eitt sé upptalið, með öðrum orðum, algjör bjargvættur. Það mætti segja mér að hann væri þegar búinn að opna töskuna og farinn að smyrja Gullna hliðið hjá honum Pétri. Um árabil stunduðum við lax- veiði saman ásamt Benedikt, fyrrverandi samstarfsfélaga okkar, í Hvítá við ósa Brúarár. Framan af var veiðin mjög við- unandi, meðalþyngdin um 12 pund, en þegar á leið fór hún dvínandi vegna breyttra að- stæðna. Eysteinn sá um elda- mennskuna, því að hann gaf sér meiri tíma á bakkanum en ég og Benedikt. Jú, jú, pulsur, dósa- matur, pakkamatur og stundum öllu blandað saman. Á kvöldin þurfti ég að hlusta á frásagn- arlist þeirra félaga, sem gat ver- ið ansi fjörug og fræðandi, en stundum eilítið lýjandi, sat sjálf- ur hljóður hjá, enda afar van- máttugur í þessari listgrein. Þetta voru ánægjulegar ferðir, sem við Eysteinn rifjuðum oft upp. Við hjónin vottum Sigríði, börnum og öllum afkomendum þeirra dýpstu okkar samúð. Hermann Tönsberg. Eftir nokkuð milda vetrartíð hafa síðustu vikur minnt okkur á gang árstíðanna. Og það var ein- mitt á vetrarlegum desem- berdegi, nú stuttu fyrir sólstöð- ur, að heilsu Eysteins fór ört hrakandi í kjölfar erfiðra veik- inda. Eysteinn Jónsson var traust- ur maður, vinmargur og velvilj- aður. Hann var ræðinn og áhugasamur um nánast allan þann fróðleik sem yfir mátti komast. Reyndar er það svo að Eystein má telja til þeirra víð- lesnustu manna sem nokkur get- ur á ævinni hitt. Hann hafði til- einkað sér þekkingu á ótal fræðasviðum og gat munað öll þau smáatriði sem þeim tengd- ust. Minni Eysteins var enda einstakt og margur hefði feginn viljað búa yfir slíkri náðargáfu. Þrátt fyrir hrakandi heilsu virtist sem áhugi Eysteins á fróðleik og atburðum líðandi stundar færi síst minnkandi. Það gerði það að verkum að erfiðara en ella reyndist að gera sér grein fyrir bágri heilsu hans og að erfið tíð væri í vændum. En hinn kaldi dagur kom og Ey- steinn kvaddi farinn að kröftum þótt hugurinn væri skýr. Sé litið til baka þá voru sam- tölin mörg og heimsóknirnar ófáar. Flestar tengdust þær heimili dóttur hans Sigrúnar og Hlyns bróður míns í gegnum ár- in, boðum hjá þeim hjónum Ey- steini og Sigríði í Hnjúkaseli og svo Látraseli, og veislum á heim- ili foreldra minna í Fossvogin- um. Fjölskyldan að Lálandi 6 sendir innilegar samúðarkveðjur til barna og barnabarna Ey- steins. Sérstakar samúðarkveðj- ur sendum við Sigríði, sem stað- ið hefur þétt við hlið manns síns í erfiðum veikindum og verið lífsförunautur hans í meira en 50 ár. Ólafur Reynir Guðmundsson. Eysteinn Leó Jónsson HINSTA KVEÐJA Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Ágúst Björn Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.