Morgunblaðið - 19.12.2014, Síða 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
20% afsláttur af jólaköppum
Falleg og mjúk handklæði í jólapakkann
Úrval - gæði - þjónusta
Kolbeinn Óttarsson Proppé er kominn í ferðamannabransann.Hann hefur ásamt félaga sínum, Ólafi Guðmundssyni, stofn-að fyrirtæki sem mun lóðsa ferðamenn um borgina á raf-
magnsþríhjólum. „Þessar vespur eru með farþegarými fyrir sex
manns, hjólin eru flutt inn frá Hollandi og eru með gæðastimpil frá
Evrópusambandinu sem þýðir að það má keyra þau hvar sem er inn-
an ESB. Fyrirtækið heitir Tuk Tuk Tours og heimasíða okkar er ný-
komin í loftið, ttt.is, ef menn vilja kynna sér hana. Þetta er ný og
umhverfisvæn leið til að sjá Reykjavík, fara um þröng stræti sem
stærri farartæki komast ekki, en lagt verður upp frá Hörpu. Hjólin
koma til landsins með vorinu.“
Kolbeinn hefur verið í lausamennsku undanfarna mánuði en þar
áður var hann upplýsingafulltrúi hjá Strætó. „Ég missti vinnuna í
haust og það hefur verið mikil gæfa þar sem ég hef getað snúið mér
að skemmtilegum og krefjandi verkefnum. Ég hef verið að þýða og
stundað blaðamennsku fyrir ýmis félagasamtök. Svo les ég bækur
fyrir Hljóðbókasafn Íslands, sem ég hef gert reglulega í 20 ár, mis-
mikið þó eftir því hvað ég hef verið að gera. Það er mjög skemmti-
leg vinna, maður fær borgað fyrir að lesa jólabækurnar. Af nýju
bókunum sem ég hef lesið er ég hrifnastur af Kötu eftir Steinar
Braga og Öræfum eftir Ófeig Sigurðsson.“
Kolbeinn á tvö börn, Óttar 16 ára og Áróru Elí 11 ára.
Kolbeinn Óttarsson Proppé er 42 ára
Ljósmynd/Axel Sigurðarson
Á Hljóðbókasafninu Kolbeinn við innlestur á hljóðbók.
Lóðsar ferðamenn
um á þríhjólum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Jasmín Arya Tangolamos
fæddist 28. júní 2014 kl. 14.23. Hún vó
3.246 g og var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Amita Niraula og Eric T.
Baldvinsson.
Nýir borgarar
Kópavogi Logi Snær Magnússon
fæddist 27. mars 2014 kl. 9.28. Hann
vó 14 merkur og var 48 cm langur. For-
eldrar hans eru Lilja Íris Gunnars-
dóttir og Magnús Már Guðmunds-
son.
B
erglind Ósk fæddist í
Reykjavík 19.12. 1964
en flutti til Eskifjarðar
1966 og til Fáskrúðs-
fjarðar 1970.
Hún var í Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar, Alþýðuskólanum á Eiðum
1980-81, Lýðháskólanum í Skálholti
1982-83, Fjölbrautaskólanum í Ár-
múla 1983-86, stundaði nám við
Tónlistarskóla Garðabæjar 1983-89
og við Fósturskóla Íslands frá 1986
og lauk þaðan prófum 1989.
Á unglingsárunum starfaði Berg-
lind í fiski á Fáskrúðsfirði. Hún var
búsett í Reykjavík á árunum 1986-
2006, var leikskólakennari í leik-
skólanum Álftaborg í Reykjavík og
síðan leikskólstjóri við sama leik-
skóla.
Hún flutti á Fáskrúðsfjörð 2006
og er þar leikskólakennari og tón-
listarkennari auk þess að vera verk-
efnastjóri og staðarleiðsögumaður
hjá Tanna Travel.
Berglind sat í kjörstjórn Félags
leikskólakennara í nokkur ár, í
Berglind Ósk Agnarsdóttir, kennari og leiðsögumaður – 50 ára
Sagnaþulir Frá vinstri: Sigurbjörg Karlsdóttir, sagnakona úr Garðabæ, Joe Brennan, sagnamaður frá Írlandi, Ína
Dagbjörg Gísladóttir, sagnakona frá Neskaupsstað, Berglind sjálf í miðjunni, Hilde Hanssen, sagnakona frá Noregi,
Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi Austurlands, og Ragnheiður Þóra Grímsdóttir, sagnakona fá Akranesi.
Sagnaþula af lífi og sál
Efnileg börn Unnar Ari og Ellen Rós, börn Berglindar og Hans Óla.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is