Fréttablaðið - 22.08.2015, Síða 8
Stjórnmál Guðmundur Steingrímsson
hættir sem formaður Bjartrar fram
tíðar þann 5. september næstkomandi
þegar ársfundur flokksins verður hald
inn í Reykjavík. Róbert Marshall mun
einnig segja af sér sem þingflokksfor
maður flokksins. Er þetta sameiginleg
ákvörðun þeirra og vilja þeir með
þessu veita öðrum svigrúm til að stýra
flokknum.
Síðastliðinn fimmtudag hélt flokk
urinn fund þar sem staða flokksins var
rædd. Um sjötíu manns mættu á fund
inn og þar tilkynnti Guðmundur að
hann myndi ekki bjóða fram krafta sína
áfram sem formaður flokksins. „Þetta
var góður fundur þar sem við ræddum
saman um hvernig við vildum sjá flokk
inn okkar þróast,“ segir Guðmundur.
„Mér finnst skynsamlegt að stíga til
hliðar í forystunni og leyfa öðrum að
spreyta sig í því. Menn eiga ekki að vera
meira til í það í íslenskri pólitík, hún
á ekki að snúast um einhverja titla,“
segir Guðmundur. „Við tókum þessa
ákvörðun í sameiningu, ég og Róbert,
og ég held mér sé óhætt að gefa þá yfir
lýsingu fyrir hans hönd.“
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins var rætt um það á fundinum
hvort Brynhildur Pétursdóttir væri ekki
ákjósanlegasti einstaklingurinn til að
leiða flokkinn áfram. „Það var hent upp
fullt af nöfnum, það er mikið af góðu
fólki í flokknum sem getur tekist á við
þetta hlutverk,“ segir Brynhildur. Hún
segist ekki ganga með formann flokks
ins í maganum en geti alveg hugsað sér
að skoða það. „Ég er alveg tilbúin til að
skoða slíkt ef vilji flokksmanna er á þá
leið og að ég geti hjálpað flokknum
að ná fyrri styrk.“
Hugmynd Guðmundar
Steingrímssonar um að emb
ætti innan flokksins færist
á milli manna verður lögð
fram á aðalfundi flokksins.
„Það eru margir jákvæðir
fyrir henni, aðrir hafa efa
semdir og enn aðrir
eru mótfallnir
henni. Það er
bara eins og
gengur. En
það er vilji
af minni
h á l f u
t i l a ð
breyta forystunni hvort sem við gerum
það með formlegri róteringu eða ekki.
Þetta verður bara rætt og tekin afstaða
til hugmyndarinnar,“ segir Guðmund
ur. „Nú verður bara spennandi að vera
óbreyttur þingmaður. Við höfum ein
valalið í þingflokki og sveitarstjórnum
og nú velja bara flokksmenn nýjan for
mann.“ sveinn@frettabladid.is
Dell mælir með Windows
advania.is/skoli
Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri
Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
í skólanum
an
Heitasta
Skoðaðu úrvalið af flo um
DELL tölvum á vefnum okkar,
verð frá 69.990 kr.
Auglýsing um drög
að tillögu um aðalskipulag
Keflavíkurflugvallar 2013–2030
Skipulagsyfirvöld Keflavíkurflugvallar auglýsa hér með drög
að tillögu um aðalskipulag Keflavíkurflugvallar í samræmi við
2. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Drög aðalskipulagsins eru aðgengileg á heimasíðu Keflavíkurflugvallar:
www.kefairport.is/Flytileidir/Um-felagid/Skipulagsmal/
Megináherslur skipulags eru á breytt flugbrautarkerfi, stækkun flugþjónustusvæðis,
aðkomu að flugstöð, ný atvinnusvæði og umhverfisskýrslu.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.
Frestur til að gera athugasemdir rennur út 21. september 2015. Skila skal skriflegum
athugasemdum og/eða ábendingum til: Skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar, Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða sveinn.valdimarsson@isavia.is.
HeilbrigðiSmál Reykingar íslenskra
10. bekkinga hafa dregist saman um
75 prósent á síðustu tveimur áratug
um. Reykingar í þessum aldurshópi
eru nú jafn sjaldgæfar og kannabis
neysla. Árið 1995 sagðist fimmtungur
10. bekkinga reykja að staðaldri en sá
hópur er nú aðeins um fimm prósent
af heildinni.
„Ánægjulegar niðurstöður,“ segir
Ársæll Már Arnarsson, prófessor í
sálfræði við Háskólann á Akureyri, en
þær koma fram í könnunum á vegum
ESPAD (European school survey pro
ject on alcohol and other drugs) sem
vísindamenn við Háskólann á Akur
eyri halda utan um hér á landi. Könn
unin hefur verið lögð fyrir íslensk 15
ára ungmenni á fjögurra ára fresti frá
árinu 1995.
Einnig kemur fram að áfengis
drykkja íslenskra grunnskólabarna
hefur minnkað mjög. Fyrir 20 árum
hafði yfir helmingur skólabarna
drukkið áfengi síðustu þrjátíu dagana
áður en rannsóknin var lögð fyrir. Sá
hópur er nú innan við tíu prósent af
heildinni.
„Rannsóknir sýna að því seinna
sem byrjað er að reykja því meiri
líkur eru á að einstaklingurinn byrji
aldrei að reykja. Einnig hefur komið
fram að því fyrr á ævinni sem byrjað
er að neyta áfengis eða annarra vímu
efna því meiri skaði fyrir einstak
linginn og samfélagið,“ segja Rafn
Jónsson og Sveinbjörn Kristjánsson,
sérfræðingar hjá Embætti landlæknis.
Ársæll Már segir fjölmarga þætti
liggja að baki þróuninni, svo sem
almenn viðhorfsbreyting í samfé
laginu og aukið samstarf foreldra og
skóla. Mikilvægt sé að halda áfram
því góða forvarna og heilsueflingar
starfi sem eigi sér stað í grunn og
framhaldsskólum landsins.“
Ársæll segir sama árangur ekki
hafa náðst við að minnka kannabis
neyslu og telur að önnur meðul þurfi
þar. Kannabisnotkun íslenskra ung
linga sé með því minnsta sem gerist
í heiminum, en hafi ekki minnkað til
jafns við reykingar og áfengisneyslu.
– sa
Reykingar eru orðnar jafn sjaldgjæfar og kannabisneysla
Reykingar íslenskra 10. bekkinga hafa minnkað um 75 prósent á síðustu tveimur
áratugum. NordicPhotos/AFP
Leiðtogar láta
af störfum hjá
Bjartri framtíð
Guðmundur Steingrímsson formaður og Róbert
Marshall, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar,
ætla ekki að bjóða fram krafta sína áfram á ársfundi
flokksins eftir tvær vikur. Segja það sameiginlega
ákvörðun þeirra að veita öðrum svigrúm.
Róbert
Marshall
Ég er alveg tilbúin til
að skoða slíkt ef vilji
flokksmanna er á þá leið og
að ég geti hjálpað flokknum
að ná fyrri styrk.
Brynhildur Pétursdóttir,
þingmaður Bjartrar framtíðar
Guðmundur
Steingrímsson
2 2 . á g ú S t 2 0 1 5 l A U g A r D A g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:5
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
9
-1
7
C
C
1
5
D
9
-1
6
9
0
1
5
D
9
-1
5
5
4
1
5
D
9
-1
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K