Fréttablaðið - 22.08.2015, Blaðsíða 82
M
eð aðstoð rússnesks auðkýfings
verður veldisaukning í umsvifum
útvarpsstjörnufræðinga sem hlusta
eftir framandi lífi. Þar sem boðleiðir
eru mörg ljósár er ljóst að leit á milli
stjarnanna og samskipti við geim-
verur kalla einnig á sjálfsskoðun
mannskepnunnar.
Við vitum hvað átti sér stað sek-
úndubrotum eftir að alheimurinn
varð til, hvernig fyrstu stjörnurnar
mynduðust og hvernig þær þeyttu
flóknum frumefnum um alheiminn –
sem síðar mynduðu líkama okkar – í
dauðastríði sínu. Það er þó margt sem
við vitum ekki. Til dæmis hvernig líf
myndaðist á Jörðinni. Við vitum að
það gerðist snemma í jarðsögunni og
að súpan sem forfeður okkar urðu til
í var samsett úr afar einföldum hrá-
efnum.
Hér er stiklað á stóru en þegar
við horfum yfir það sem við vitum í
heimsfræðinni er einfaldlega óhugs-
andi að líf á Jörðinni sé einstakt.
Aðeins eru nokkur ár síðan við héld-
um að reikistjörnur eins og Jörðin
væru gríðarlega sjaldgæfar í Vetrar-
brautinni. Svo er ekki, flest bendir
til að ein af hverjum fimm stjörnum
stígi sporöskjulaga dans við eina eða
fleiri reikistjörnur. Í vetrarbrautinni
okkar skipta þessar reikistjörnur
milljörðum.
Utan þjónustusvæðis
Fámennur en afar ástríðufullur hópur
vísindamanna leitar nú að lífi milli
stjarnanna. Þessi leit hefur staðið í
vel yfir hálfa öld. Hún er í senn mikil-
vægasta leit sögunnar og sú tíðin-
daminnsta.
Freistum við þess að komast í tæri
við líf á fjarlægri reikistjörnu er það
vandamál sem verkfræði mann-
skepnunnar á ekki og mun ekki eiga
svar við. Við förum aldrei þangað.
En við getum hlustað og það er það
sem vísindamenn stungu upp á árið
1959, og það höfum við gert allar
götur síðar. Við stillum á vinsæl-
ustu útvarpsrásina, þar sem tungu-
mál alheimsins er talað. Tungumál
vetnisins. Róteindir vetnisatóma
snúast í sífellu og gefa um leið frá sér
rafsegulgeislun sem hægt er að hlusta
á á tíðninni 1.420MHz (þar sem allir
smellirnir eru!). Aðeins verur með
sæmilega þekkingu á alheiminum
þekkja þessa tíðni og hver veit nema
þær útvarpi á henni líka.
Flestir eru sammála um ágæti þess-
arar aðferðar. Aftur á móti eru ekki
allir sammála um mikilvægi leitar-
innar. Þannig hefur aðgengi útvarps-
stjörnufræðinga að sjónaukum verið
afar takmarkað. Það eru einfaldlega
mikilvægari rannsóknir sem þarf að
sinna. Hingað til hafa þessir þolin-
móðu vísindamenn fengið í kringum
24 klukkustundir á ári til að leita að
framandi fjarskiptum. Það mun nú
breytast.
Mannvinur milli stjarnanna
Rússneski frumkvöðullinn Yuri
Milner, ásamt nokkrum af virtustu
vísindamönnum og hugsuðum
veraldar, þar á meðal Stephen
Hawking, Ann Druyan og Frank
Drake, svipti hulunni af Breakthrough
Listen-verkefninu á dögunum.
Milner mun styrkja þessa fjársveltu
leit um rúmlega 13 milljarða króna
á næstu 10 árum. Þetta þýðir að
útvarpsstjörnufræðingar í leit að lífi
munu fá 20-25% af skoðunartíma
tveggja gríðarlega öflugra útvarps-
sjónauka. Saman munu þessir
sjónaukar rýna í 10 sinnum stærra
svæði en hingað til hefur verið
hægt og hlusta eftir útsendingum
Næsti hlustandi
Fámennur en afar ástríðufullur hópur vísindamanna leitar nú að lífi milli stjarnanna. Mynd/ESO
tækni
Þessi stuðningur frá Yuri Milner þýðir að við
getum leitað meira á örfáum dögum en við
höfum gert samanlagt frá upphafi.
Frank Drake
Það er ekki til stærri
spurning, sama hvernig
þetta fer á endanum.
Stephen Hawking
á tíðnisviðinu 1 til 10GHz, þar sem
andrúmsloft Jarðar truflar ekki
og kór alheimsaflanna er lágvær.
Sameinaður kraftur sjónaukanna er
slíkur að þeir geta greint venjulegt
radarmerki frá farþegaþotu á
sveimi í kringum þúsund nálægustu
stjörnurnar.
Dyggur hlustandi
Guðfaðir SETI er Frank Drake.
Hann hefur setið við hlustir í 55 ár
og þekkir þögnina betur en flestir.
„Við höfum verið að betla tíma á
sjónaukum,“ segir Drake. „Við erum
ekki nálægt því að hafa skimað allan
himininn. Núna getum við leitað á
miklu stærra svæði. Það sem meira
er þá getum við leitað á margfalt víð-
ara sviði tíðna. Milljarða rása á sama
tíma. Þessi stuðningur frá Yuri Mil-
ner þýðir að við getum leitað meira
á örfáum dögum en við höfum gert
samanlagt frá upphafi.“
Drake segir að hér sé um að
ræða sögulega stund fyrir þá sem
leita að framandi lífi. Í raun krafta-
verk. Heimsfræðingurinn Stephen
Hawking, sem sjálfur hefur varað við
nánum kynnum við geimverur hafði
þetta að segja þegar verkefni Milners
var kynnt í Lundúnum: „Í alheimi án
enda hlýtur líf að koma fyrir oftar en
einu sinni. Svo gæti verið að einhvers
staðar í alheiminum séu greindar
verur sem eru að fylgjast með okkur.
Það er ekki til stærri spurning, sama
hvernig þetta fer á endanum.“
Allt og ekkert
Hvað gerist þegar við heyrum loks í
framandi lífi er allt önnur umræða.
Vafalaust verður það frétt aldarinnar
og stórkostlegasta uppgötvun fyrr
og síðar. En hvað gerist daginn eftir?
Strætó mun ganga áfram, átökin halda
áfram um víða veröld og það verður
messa á sunndaginn. Raunsæi tekur
vonandi völdin. Við vitum á þessum
tímapunkti að einhvers staðar þarna
uppi eru verur sem skilja tungumál
alheimsins eins og við. Þessar verur
eru í milljóna ljósára fjarlægð og sam-
skipti okkar munu fara fram á hundr-
að, jafnvel árþúsunda, fresti. Svörin
við vandamálum okkar, hvernig við
tryggjum samhug meðal Jarðarbúa,
verða á endanum að koma frá okkur
sjálfum. Það jákvæða er að við vitum
loks að hægt er að yfirstíga þessi
vandamál, enda hafa skyldmenni
okkar meðal stjarnanna gert einmitt
það.
Jafna Drakes | frank Drake setti fram jöfnu sína sem áætlar fjölda
tæknivæddra samfélaga í Vetrarbrautinni. Hérna er áætlað, gróflega,
út frá nýjustu upplýsingum og grunsemdum vísindamanna.
N=tæknivædd
samfélög sem gætu
haft samband
=36,4 milljón
N = R* fp Ne
R*=stjörnur svipaðar
sólinni sem myndast í
Vetrarbrautinni árlega
= 7
fp=stjörnur
svipaðar sólinni sem
hafa sólkerfi
= 1
fl fi fc L
ne=lífvænlegar
reikistjörnur í
sólkerfinu
= 0,2
fl=lífvænlegar
reikistjörnur þar
sem líf verður til
=0,13
fi=reikistjörnur
með lífi þar sem
vitsmunalíf þróast
= 1
fc=reikistjörnur
með vitsmunalífi
sem vilja hafa
samband
= 0,2
L=meðalævi
slíks
tæknivædds
samfélags
= 109 ár
Með aðstoð rússnesks auðkýfings verður veldis aukning
í umsvifum útvarpsstjörnufræðinga sem hlusta eftir
framandi lífi. Þar sem boðleiðir eru mörg ljósár er ljóst
að leit á milli stjarnanna og sam skipti við geimverur
kalla einnig á sjálfsskoðun mannskepnunnar.
á línunni er …
Kjartan Hreinn Njálsson
kjartanh@365.is
2 2 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R4 2 h e L g i N ∙ F R É t t A B L A ð i ð
2
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:5
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
D
8
-E
6
6
C
1
5
D
8
-E
5
3
0
1
5
D
8
-E
3
F
4
1
5
D
8
-E
2
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K