Fréttablaðið - 22.08.2015, Blaðsíða 96
Menning
Litrík og stór abstraktmálverk setja sterkan svip á anddyri og kaffistofu Tjarnarbíós við Tjarnargötu 12. Þar er Hulda Hlín Magnúsdóttir mynd-
listarkona búin að koma fyrir nýjustu
verkum sínum og ætlar að opna sýn-
ingu á þeim í dag.
Stutt var fyrir Huldu Hlín að
flytja myndirnar því vinnustofan
hennar er í risi hússins við Tjarnar-
götu 40 sem tengist fjölskyldu hennar
sterkt, hún er fjórði ættliðurinn sem
þar hreiðrar um sig.
Stór olíu- eða akrýlmálverk í
sterkum litasamsetningum eru aðal-
viðfangsefni Huldu Hlínar, að eigin
sögn. Þó gerir hún alltaf portrett með,
en þau eru ekki á þessari sýningu. „Þau
eru meiri hliðargrein hjá mér,“ upp-
lýsir hún.
Hulda Hlín segir túlkunina frjáls-
ari núna en áður. „Ég er búin að færa
mig frá því hlutbundna eins og fígúr-
um, fjöllum eða öðru landslagi. Nú
er formið orðið meira abstrakt þann-
ig að fólk þarf bara að upplifa og lesa
sjálft í myndmálið.
Titill sýningarinnar er Forum / Torg
/ Square og Hulda segir það vísa til
hins rómverska torgs. Hún lærði mál-
aralist í Flórens, Feneyjum, Bologna og
Róm en ólst upp í París, Kaupmanna-
höfn og Reykjavík, svo áhrifin koma
víða að.
Hulda Hlín skrifar greinar í mynd-
listartímarit, hefur haldið námskeið
í myndlist, til dæmis í tengslum við
barnamenningarhátíð og verið með
leiðsögn á listasöfnum, meðal annars
fyrir frönsku- og ítölskumælandi gesti.
Listakonan verður með opið í
Tjarnarbíói til klukkan 23 í kvöld.
Spurð hvort hún taki niður sýning-
una strax á morgun svarar hún: „Nei,
sennilega fær hún að hanga uppi ein-
hverja daga í viðbót þar sem dans- og
leiklistarhátíðin er að hefjast og lit-
ríkar myndirnar falla ágætlega inn í
þá stemningu.“
Túlkunin er frjálsari núna en áður
Fólk þarf bara að upplifa og lesa sjálft í myndmálið, segir Hulda Hlín Magnúsdóttir myndlistarkona. Fréttablaðið/GVA
Meðal atriða á Menningarnótt Reykjavíkur
er myndlistarsýning sem Hulda Hlín
Magnús dóttir opnar í Tjarnarbíói klukkan
13 í dag og ber heitið Forum / Torg / Square.
Áhugasamir söngvarar eru velkomnir
í prufusöng næstu daga.
Nánari upplýsingar veita Gestur Svavarsson
formaður, gestur@gmail.com
Friðrik S. Kristinsson söngstjóri fsk@kkor.is
auglýsir eftir söngmönnum
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
www.kkor.is
KARLAKÓR
REYKJAVÍKUR
Grensáskirkja
Kirkjukór Grensáskirkju getur bætt við sig söngfólki í allar raddir.
Kóræfingar eru á mánudögum kl. 17:30-19:00.
Boðið verður upp á kennslu í grunnatriðum
tónlistar fyrir þá sem þess óska.
Upplýsingar gefur organisti kirkjunnar
Ásta Haraldsdóttir í síma 892 3162.
Íslenskir tónlistarunnendur minnast
Manuelu Wiesler flautuleikara
með miklum hlýhug. Manuela bjó
hér á landi um árabil og markaði
tónlistarlífið djúpum sporum.
Manuela fæddist í Brasilíu árið 1955
en átti austurríska foreldra. Hún lauk
prófi í flautuleik frá Vínarborg, þar
sem hún var alin upp, og stundaði
einnig framhaldsnám í París og víðar.
Manuela fluttist til Íslands árið
1973 og bjó hér í um áratug. Á
þeim tíma vann Manuela til fjölda
viðurkenninga og þar á meðal fyrstu
verðlaun í norrænni kammermúsík-
keppni en ekki síður vann hún
hjörtu íslenskra tónlistarunnenda.
Manuela kom á ferli sínum fram víða
um Evrópu og hélt áfram að koma
fram á Íslandi eftir að hún fluttist
af landi brott. Hún lagði sig einkum
fram um að flytja samtímaverk en
helstu tónskáld Íslendinga sömdu
fyrir hana tónverk auk margra
erlendra tónskálda. Meðan Manuela
bjó á Íslandi var hún mikil driffjöður
í tónlistarlífinu hérlendis og gætti
áhrifa hennar víða.
Árið 1982 réðst hún í það stórvirki
að leika inn á fjórar hljómplötur og
gerði það á aðeins tveimur nóttum í
Háteigskirkju í samvinnu við Bjarna
Rúnar Bjarnason tónmeistara.
Bjarni Rúnar og Þórarinn
St e f á n s s o n t ó n l i s t a r m a ð u r
standa um þessar mundir að
söfnun á Karolinafund til þess
að standa straum af kostnaði við
að endurútgefa þessar plötur en
nú á geisladisk. Þórarinn segir að
plöturnar hafi verið ófáanlegar
um áratuga skeið enda nutu þær
vinsælda á sínum tíma. „Manuela
gaf plöturnar út sjálf og seldi en hún
kom eins og ferskur stormsveipur
inn í íslenskt tónlistarlíf á sínum
tíma. Það töluðu margir um að
hún hafi komið eins og engill af
himnum og vissulega bar hún með
sér sérstaklega fallegt karma.“
Manuela lést í Vínarborg árið 2006
langt fyrir aldur fram en í tilefni af
því að hún hefði orðið sextug nú í
júlí sl. langar okkur, sem að þessari
söfnun standa, að endurútgefa
plöturnar og því leitum við til
tónlistarunnenda með stuðning inni
á Karolinafund. – mg
Eins og engill af himnum ofan
Manuela Wiesler flautuleikari vann til fjölda verðlauna á tónlistarferlinum.
2 2 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R
Manuela gaF
plöTuRnaR úT SjálF
og Seldi en Hún koM einS og
FeRSkuR SToRMSveipuR inn
í íSlenSkT TónliSTaRlíF á
SínuM TíMa.
2
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:5
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
D
8
-E
1
7
C
1
5
D
8
-E
0
4
0
1
5
D
8
-D
F
0
4
1
5
D
8
-D
D
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K