Fréttablaðið - 22.08.2015, Qupperneq 10
Íslendingar elska Skoda enda eru vandfundnari bílar sem henta íslenskum fjölskyldum betur. Þeir eru einstaklega rúmgóðir,
sparneytnir, endingargóðir og frábærir í endursölu. Komdu við hjá okkur í Heklu og prófaðu skemmtilega Skoda.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Eyðsla frá
3,8 l/100 km
2CO frá
99g/km 5 stjörnur í árekstrarprófi EuroNcap
SKEMMTILEGUR
Á ALLA VEGU
Nýr SKODA Octavia frá 3.420.000 kr.
LögregLumáL Bretinn sem handtekinn
var þann 6. ágúst síðastliðinn í verslun
iSímans í Skipholti hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald. Maðurinn sem er
breskur ríkisborgari heitir Reece Scobie
og er grunaður um að hafa stundað fjár-
svik hér á landi með fölsuðum kredit-
kortum. Lögreglan á Suðurnesjum fer
með rannsókn málsins.
Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum, segir manninn
vera grunaðan um umtalsverð svik með
kreditkortum hér á landi. „Rannsókn
málsins er nú í fullum gangi og mun
málið skýrast fljótlega. Á þessu stigi
er ekki mikið sem ég get sagt nema að
hann er grunaður um umtalsverð svik
með kreditkortum hverra númer eru illa
fengin,“ segir Ólafur.
Scobie kom til landsins þann 17. júní
síðastliðinn og var úrskurðaður í farbann
skömmu síðar vegna gruns um kredit-
kortasvik við farmiðakaup hjá Icelandair.
Hann var því í farbanni þegar hann var
handtekinn í ágúst. „Hann framdi einn-
ig brot á meðan hann var í farbanni, það
er alveg ljóst. Mál hans kom upp fljótlega
eftir að hann kom hingað til lands. Við
báðum um gæsluvarðhald yfir honum en
Hæstiréttur taldi farbann nægja. Seinna
kom í ljós að hann hélt áfram að brjóta af
sér,“ segir Ólafur.
Scobie er fæddur árið 1993 og hefur
áður komið við sögu lögreglu fyrir efna-
hagsbrot í Bretlandi.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að
maðurinn hefði verið handtekinn í versl-
un iSímans fyrir rúmum tveimur vikum.
Hann hafði þá pantað tvo iPhone-far-
síma og eina fartölvu að andvirði 516.000
krónur á vefverslun iSímans með þremur
mismunandi kreditkortum. Tómas Krist-
jánsson, eiganda iSímans, grunaði að
ekki væri allt með felldu þegar þrjár pant-
anir fyrir háar upphæðir komu í gegnum
netverslun, allt á sama nafni, en greitt var
með mismunandi kreditkortum. Tómas
fékk þær upplýsingar frá Valitor að kortin
væru öll hvert frá sínu landinu og hafði
hann þá samband við lögreglu.
Scobie stakk einnig af frá reikningi
á Hótel Sögu í Reykjavík og er það mál
einnig til rannsóknar.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Fréttablaðsins notaði Scobie
fölsuð kort í fleiri verslunum á landinu
og lét senda vörur til sín á hótel. Upp-
hæðir svikanna hlaupa á milljónum.
Árið 2013 fékk Scobie 16 mánaða dóm í
Bretlandi fyrir að svíkja út sjötíu þúsund
pund eða rúmlega fjórtán milljónir
íslenskra króna af ferðaþjónustuaðilum.
Hann hafði bókað flug og hótelgistingar
á lúxushótelum úti um allan heim með
fölsuðum kreditkortum. Í frétt breska
fjölmiðilsins The Telegraph um málið
segir að í dómi sé Scobie lýst sem tækni-
sérfræðingi sem nýti sér tölvukunnáttu
sína til að svíkja út fé. Þá er talað um
Scobie sem „Catch me if you can-glæpa-
manninn“ í breskum miðlum og honum
líkt við Frank Abagnale Jr. sem Leonardo
DiCaprio lék í bíómyndinni Catch Me If
You Can. Abagnale Jr. tókst með ein-
tómum blekkingum að starfa sem læknir
og flugmaður án þess að hafa nokkurn
tímann farið í nám.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum
Fréttablaðsins hefur breska lögreglan
sýnt málinu áhuga og beðið um upp-
lýsingar frá lögregluyfirvöldum.
„Þetta mál vekur athygli og þurfa
fyrirtæki og einstaklingar í viðskiptum
að varast hugsanlegt misferli með
kreditkort. Í þessum málum er það
gjarnan svo að númer á kreditkortum
ganga raunverulega kaupum og sölum á
netinu, ef þú þekkir hvert þú átt að snúa
þér,“ segir Ólafur. nadine@frettabladid.is
Alþjóðlegi
svikarinn í
gæsluvarðhaldi
Breti sem grunaður er um fjársvik hér á landi með
kreditkortum hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Hefur áður komið við sögu lögreglu í
Bretlandi. Var dæmdur þar fyrir að svíkja út 70
þúsund pund eða fjórtán milljónir íslenskra króna.
Hér sést Scobie í
öryggismyndavél
verslunarinnar iSímans þar
sem hann reyndi að kaupa
vörur fyrir rúma hálfa
milljón. Þá stakk hann af frá
reikningi á Hótel Sögu.
2 2 . á g ú s t 2 0 1 5 L A u g A r D A g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð
2
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:5
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
9
-1
2
D
C
1
5
D
9
-1
1
A
0
1
5
D
9
-1
0
6
4
1
5
D
9
-0
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K