Fréttablaðið - 22.08.2015, Qupperneq 20
Blikar með aðra hönd á Íslandsmeistaratitlinum í Pepsi-deild kvenna
Hreint mark í 1.010 mínútur Hallbera Guðný Gísladóttir og félagar hennar í vörn Breiðabliksliðsins fengu síðast á sig mark í Pepsi-deild kvenna í maí.
Hallbera sést hér í sigurleiknum mikilvæga á móti Stjörnunni í Garðabænum í gær sem færði Blikaliðinu sjö stiga forskot á toppnum . Fréttablaðið/Anton
Um helgina
Pepsi-deild karla
ÍBV 1 – 1 KR
1-0 Jose Enrique (41.), 1-1 Gunnar Þór
Gunnarsson (73.).
KR-ingar tóku bara eitt stig með sér
úr Eyjum og eru því fimm stigum á
eftir toppliði FH. Gunnar Þór bætti
fyrir mistökin í marki ÍBV með því
að skora jöfnunarmarkið.
Pepsi-deild kvenna
Stjarnan 0 – 1 Breiðablik
0-1 Fanndís Friðriksdóttir (49.).
Fanndís tryggði Blikum ellefta
sigurinn í röð og sjö stiga forskot
á Stjörnuna á toppi deildarinnar.
Blikarkonur héldu hreinu ellefta
leikinn í röð í Pepsi-deildinni og
Fanndís skoraði sitt 15. mark.
11.45 Man Utd – Newcastle Sport 2
14.00 Sunderland - Swansea Sport 2
16.00 Verona - Roma Sport
17.00 Wyndham Championship Golfstöðin
11.30 Formúla 1 - Belgía Sport
12.30 West Brom - Chelsea Sport 2
15.00 Everton - Man City Sport 2
16.30 Ath. Bilbao - Barcelona Sport
17.00 Wyndham Championship Golfstöðin
18.30 Sporting Gijón - Real Madrid Sport
18.45 Fiorentina - AC Milan Sport 3
Nýjast
Hvernig eru reglurnar hjá
KSÍ, megum við spila með
@fanndis90 í næsta leik??
Atli Sigurjónsson, @AtliSigurjons
íSlenSkur SiGur á Hollandi
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta
vann Holland, 67-65, í öðrum leik
sínum á æfingamóti í Eistlandi í
gær. Íslenska liðið
lék án Jóns Arnórs
Stefánssonar
og Hauks Helga
Pálssonar í gær
en það kom
ekki að sök. Jakob
Örn Sigurðarson var
stigahæstur í íslenska liðinu með 20
stig en Logi Gunnarsson kom næstur
með 16 stig. Pavel Ermolinskij átti
einnig góðan leik með átta stig, tíu
fráköst og fjórar stoðsendingar.
Ísland mætir Filippseyjum í lokaleik
sínum á mótinu klukkan 14:30 í dag.
Hetjan áfram á neSinu
Hin fimmtán ára gamla Lovísa
Thompson hefur skrifað undir nýjan
tveggja ára samning við Íslands- og
bikarmeistara Gróttu í handbolta.
Lovísa sló eftirminnilega í gegn
á síðasta tímabili en hún skoraði
sigurmark Gróttu í leik fjögur
gegn Stjörnunni í lokaúrslitunum
sem tryggði Gróttu sinn fyrsta
Íslandsmeistaratitil.
KR var að kaupa
veðurfræðing. Það er vel gert.
Allir léttir eða hvað. Eina.
Guðjón Guðmundsson, @gaupinn
hAndBolti „Við ferðuðumst nú ekk-
ert með verðlaunapeningana. Settum
þá bara upp er við komum hingað,"
segir brosandi Ómar Ingi Magnússon,
ein af hetjum U-19 ára landsliðsins
sem tryggði sér brons á HM í Rúss-
landi.
Strákarnir fengu höfðinglegar
móttökur er þeir komu til landsins
í gær er fjöldi vina og ættingja tók
á móti þeim í höfuðstöðvum Arion
banka.
„Þetta er mjög óvænt. Ég átti alls
ekki von á neinu svona stóru. Ég veit
eiginlega ekki hvernig ég á að haga
mér. Þetta er virkilega gaman og við
fundum vel fyrir því hvað það voru
margir að fylgjast með okkur úti.“
Árangur strákanna var frábær og
þegar liðið tapaði fyrir Slóvenum í
undanúrslitum þá hafði það leikið
20 leiki í röð án taps. Þeir lögðu líka
mikið á sig þetta, er búið að vera
mikið ævintýri í sumar.
„Alveg síðan í maí er undir-
búningur búinn að vera í gangi. Við
förum til Katar um miðjan júní í mót
og þetta var mikill pakki. Við vorum
til í að leggja mikið á okkur. Við dutt-
um út í riðlakeppninni á EM í fyrra og
það voru ákveðin vonbrigði. Við ætl-
uðum að gera betur núna og vissum
að við gætum meira. Við vissum að
ef við myndum leggja allt í þetta þá
gæti allt gerst,“ segir Ómar er hann
rifjar upp langt og strangt sumar með
strákunum.
„Við lentum í mjög erfiðum riðli og
fyrsta markmiðið var að komast upp
úr honum. Fyrst við unnum hann þá
vorum við búnir að gera framhaldið
aðeins auðveldara.“
Undanúrslitaleikurinn var að
mörgu leyti grátlegur. Ísland leiddi
Fínt að vera líkt við Óla og Aron
Ómar Ingi Magnússon
með bronspeninginn
um hálsinn í móttöku
fyrir íslensku strákana
í gær. Fréttablaðið/Ernir
HelGi fékk metið StaðfeSt
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson úr
Ármanni hefur fengið heimsmet
sitt í flokki F42 staðfest af Alþjóða
Ólympíuhreyfingu fatlaðra. Helgi
bætti heimsmet Kínverjans Fu
Yanglong þrívegis
í sumar en
Ólympíuhreyfingin
hafnaði tveimur
þessara meta áður
en hún staðfesti það
þriðja loks í gær.
Heimsmet Helga er
því 57,36 metrar en
hann setti metið á
Coca-Cola móti FH
utanhúss 26. júní
síðastliðinn.
Ómar Ingi Magnússon fór mikinn á HM 19 ára. Hann var þriðji markahæstur og lék frábærlega í sókninni.
Hann lítur á sig sem skyttu en líður líka ágætlega á miðjunni. Ómar ætlar að stimpla sig inn með Val í vetur.
Ómar Ingi
skoraði úr
26 af 28
vítaköstum
sem hann
tók á heims-
meistara-
mótinu í
Rússlandi.
93%
gegn Slóveníu í um 56 mínútur en
missti síðan Slóvenana fram úr sér
og tapaði með einu marki.
„Við spiluðum frábærlega í svona
47 mínútur. Tapið sat alveg í manni
því við hefðum vel getað farið í
úrslitaleikinn og strítt Frökkunum
svolítið,“ segir Ómar Ingi en strák-
arnir náðu samt að rífa sig upp eftir
svekkjandi tap og vinna öruggan
sigur á Spáni í bronsleiknum.
„Það var mjög vel gert og góður
karakter að rífa sig upp. Það var mikið
spennufall eftir undanúrslitaleikinn
enda áttum við ekki von á því að tapa.
Engu að síður erum við ánægðir með
árangurinn og berum höfuðið hátt.
Það sem stendur upp úr er þessi frá-
bæra liðsheild sem er hjá okkur. Við
stöndum vel saman og náðum að
halda þessum umtöluðu íslensku
gildum. Stemningin, baráttan og allt
það. Þetta er frábær hópur og við
erum allir miklir vinir.“
Ómar Ingi varð þriðji markahæsti
leikmaður mótsins og frammistaða
hans vakti verðskuldaða athygli. Þessi
18 ára Selfyssingur, sem nú spilar
með Val, er ekki bara góð skytta
heldur útsjónarsamur leikmaður
með afbrigðum sem spilar vel fyrir
félaga sína.
Hann ætlar sér að fá fleiri mínútur
í Valsbúningnum í vetur en veit ekki
hvort það verður í skyttunni eða á
miðjunni. Hann getur leyst báðar
stöður með mikilli prýði.
„Ég veit ekki hvernig Óskar þjálf-
ari hugsar þetta. Ég get gert hvort
tveggja. Ég lít á mig sem skyttu en
það er fínt að vera á miðjunni líka,“
segir Ómar Ingi brattur en hann er
ekki stærsta skyttan í deildinni. Sér-
fræðingar segja því margir að hann
verði að spila miðju í framtíðinni.
„Margir af bestu handboltamönn-
um heims hafa verið í kringum 183
sentimetrar á hæð. Einn besti miðju-
maður allra tíma, Ljubomir Vranjes,
náði ekki 170 sentimetrum. Mér
finnst ég vera skytta og spila þann-
ig. Ég læt boltann ekki fljóta nóg sem
leikstjórnandi. Ég er svolítið mikið
á honum eins og skytta gerir. Það er
alltaf hægt að læra samt. Ég hef tím-
ann með mér.“
Leikur hans þykir um margt
minna á Ólaf Stefánsson og Aron
Pálmarsson er þeir voru á hans aldri.
Hvað finnst honum þegar verið er að
líkja honum við þær kempur?
„Það er mjög fínt. Mér líkar betur
við að vera líkt við þá en að fá ekki
neitt. Mér finnst ekki vera nein pressa
í því og hugsa ekkert um það.“
henry@frettabladid.is
2 2 . á G ú S t 2 0 1 5 l A U G A R d A G U RSPORT
2
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:5
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
8
-F
A
2
C
1
5
D
8
-F
8
F
0
1
5
D
8
-F
7
B
4
1
5
D
8
-F
6
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K