Ský - 01.10.2006, Qupperneq 12
12 ský
Tónleikar
tónleikanna, fólkið í salnum til að koma með óskir í lagavali og því mátti heyra mikil hróp
og köll á milli laga. Náði hljómsveitin að verða við nokkrum óskum en greinilegt var þó að
hún fór eftir ákveðnu prógrammi.
Eftir nærri tveggja tíma tónlistarveislu voru Cave og félagar klappaðir tvisvar sinnum upp
og ekki dró úr kraftinum þegar á leið. Warren Ellis setur óneitanlega ávallt mikinn svip á
tónleika Cave, enda um mjög dýnamíska sviðsframkomu að ræða, svo ekki sé fastar að orði
kveðið. Hljómsveitin var þétt og hröð og aðalmaðurinn, Cave, fór á kostum hvort sem hann
hamraði á píanóið af öllu afli eða tók gítarinn í hönd og þeystist um sviðið. Hann sannaði
þarna, eins og svo oft áður, að það er engin tilviljun að hann er í dag einn af virtustu tónlist-
armönnum samtímans.
Kórdrengur frá Ástralíu
Það er ekki furða að Nick Cave eigi sér marga áheyrendur hér á landi því tónlistarferill
hans hófst fyrir rúmum 30 árum. Marka mátti það á tónleikunum í Höllinni því flestir
tónleikagestanna voru 25 ára og eldri. Ungur að árum söng Cave í skólakórum og var svo
lánsamur að til var píanó á heimili hans sem hann æfði sig á í öllum frítímum. Þegar að
menntaskólaárunum kom prófaði Cave myndlistarnám en sneri sér svo aftur að tónlistinni.
Um tvítugt stofnaði hann sína fyrstu hljómsveit þegar hann kynntist gítarleikaranum Mick
Harvey, bassaleikaranum Tracy Pew og trommuleikaranum Phill Calvert. Hljómsveitin hlaut
nafnið The Boys Next Door og gítarleikarinn og textasmiðurinn Rowland S. Howard gekk
til liðs við sveitina árið 1978.
Í lok áttunda áratugar síðustu aldar voru The Boys Next Door ein af vinsælustu pönk-
hljómsveitunum í Ástralíu og úr varð að meðlimir hennar ákváðu að flytja sig til Lundúna
árið 1980 og síðar til Vestur-Berlínar en breyttu þá nafni sveitarinnar í Birthday Party.
Fjórum árum síðar leystist sveitin upp þar sem Howard og Cave áttu erfitt með að starfa
lengur saman og voru andlega og líkamlega uppgefnir eftir mikla áfengis- og eiturlyfjaneyslu.
Í framhaldinu hélt samstarf Caves og Harveys áfram og varð það fyrsti vísirinn að hljóm-
sveitinni Nick Cave & The Bad Seeds.
Hljómsveitarforinginn Nick Cave
Með stofnun The Bad Seeds breyttist hlutverk Cave úr því að vera hljómsveitarmeðlimur
í að verða hljómsveitarforingi. Gítarleikarinn Blixa Bargeld, bassaleikarinn Barry Adamson
og gítarleikarinn Hugo Race gengu til liðs við sveitina sem gaf út sína fyrstu breiðskífu árið
1984, From Her to Eternity. Cave, sem búsettur var í Berlín á þessum árum, var atorkusamur
og samdi þar mörg af sínum bestu lögum sem heyra má á breiðskífunum The Firstborn Is
Dead, Kicking Against the Pricks, Your Funeral, My Trial og Tender Prey.
Eftir þessa frækilegu tónlistarsköpunarlotu með hljómsveitinni fór Cave í bókarskrif og
fluttist til Brasilíu um tíma þar sem hann kynntist Viviane Carneiro og eignaðist með henni
soninn Luke árið 1991. Sama ár eignaðist hann einnig soninn Jethro með hinni áströlsku
Beau Lazenby. Tveimur árum síðar fluttist hann aftur til Lundúna og árið 1996, eftir að hafa
komið hljómsveitinni aftur saman, kom hljómplatan Murder Ballads út, sem fjallaði í heild
sinni um morð. Ári seinna kom The Boatman’s Call sem markaði tímamót á tónlistarferli
Caves því þetta var fyrsta hljómplatan þar sem píanóflutningur hans var í fyrirrúmi og þar
sem hann varpaði fram persónulegum tilfinningum og ástarsamböndum í textum sínum.
Snilligáfa í textasmíðum
Eftir mikla endurskoðun á lífi sínu í kjölfar The Boatman’s Call fór Cave í meðferð til að
læknast á áfengis- og heróínnotkun undanfarinna 20 ára. Um það leyti kynntist hann eigin-
konu sinni, bresku fyrirsætunni Susie Bick, en þau giftu sig árið 1999 og eignuðust það sama
ár tvíburana Arthur og Earl.
Mikið hafði breyst á þessum tíma, frá því Nick Cave hóf ferilinn í pönkbandinu The
Boys Next Door og hafði hann gengið í gegnum ófáa öldudali sökum fíknar sinnar. Þetta
kom einnig fram í tónlistinni sem var orðin rólegri og yfirvegaðri líkt og hann sjálfur. Ein
af betri hljómplötum kappans, No More Shall We Part, var gefin út árið 2001 og tveimur
árum síðar kom Nocturama sem féll sums
staðar hjá gagnrýnendum í grýttan jarðveg.
Í kjölfar hennar hætti Blixa Bargeld í hljóm-
sveitinni og þá voru aðeins Cave og Harvey
einir eftir af upphaflegum hljómsveitarmeð-
limum. Cave lét þó ekki deigan síga og fyrir
tveimur árum kom fyrsta tvöfalda breiðskífa
hans út sem ber nafnið Abattoir Blues/The
Lyre of Orpheus. Í fyrra gaf hljómsveitin út
B-Sides & Rarities sem innihélt þrjá diska en
sjálfur hefur Cave sagt hana vera uppáhalds-
plötu sína með sveitinni. Nú í ár gaf Cave
út, ásamt fiðluleikaranum Warren Ellis, The
Proposition, eftir samnefndri kvikmynd en
til gamans má geta þess að á föstudags-
kvöldinu fyrir tónleikana í Höllinni var
tónlistarmaðurinn viðstaddur frumsýningu
myndarinnar hérlendis. Cave gerði hand-
ritið að myndinni og mæltist hún vel fyrir
hjá áhorfendum.
Af öllu þessu má sjá að Cave hefur verið
mjög svo atorkusamur undanfarin ár því
ásamt tónlistarsköpun með hljómsveit sinni
hefur hann gefið út skáldsögur og samið
tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús. Auk þess
hefur hann unnið til fjölda verðlauna fyrir
tónlistarsköpun sína og ekki er ofsögum sagt
að hann sé einn af merkilegustu textahöf-
undum samtímans. Það sem hann hefur haft
fram að færa á ferli sínum telja margir bera
vott um hreina og klára snilligáfu. sky,
IMG VERÐUR CAPACENT
ÁRANGUR Á ÖLLUM SVIÐUM
„Við höfum átt gott samstarf við IMG á
undanförnum árum og meðal annars nýtt okkur þekkingu
þeirra á sviði vinnustaðagreininga, markaðsrannsókna og
áætlanagerðar. Þetta samstarf hefur verið okkur mikilvægt
í krefjandi alþjóðlegu umhverfi og auðveldað Össuri að ná
þeim góða árangri sem félagið hefur náð. Við óskum
Capacent til hamingju með nýja nafnið.“
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar
CAPACENT
IMG hefur víkkað út starfsemi sína á Norður-
löndunum og stefnir að því að byggja upp
norður-evrópskt fyrirtæki á sviði ráðgjafar,
rannsókna og ráðningarþjónustu. Í kjölfar
þess hefur nafni fyrirtækisins verið breytt í
Capacent til aðlögunar að alþjóðlegum markaði.
Nýja nafnið er dregið af ensku orðunum
Capability og Center og nær vel að fanga
starfsemi fyrirtækis sem hefur það að megin-
markmiði að nýta þekkingu með markvissum
hætti til að bæta árangur viðskiptavina sinna.
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 12 28.9.2006 10:54:16