Ský - 01.10.2006, Page 15
ský 15
Viðtal
GÍSLI ÖRN GARÐARSSON:
HVORUGUR TVÍBURINN
Sjálfur er Gísli Örn enn einn persónuleikinn, – stæltur náungi sem
ber höfuð og herðar yfir mannfjöldann, dökkur á brún og brá, snagg-
aralegur í hreyfingum og tilsýndar gæti hann verið mikið hörkutól.
Í návígi er Gísli hins vegar þægilegt ljúfmenni með viðkvæmnislegt
bros og notalega nærveru.
Það liggur mikil undirbúningsvinna í persónuleikasköpun tví-
burabræðranna, sérstaklega Garðars. Undirheimar Reykjavíkur eru
ótrúlega harður heimur og þangað þurfti Gísli Örn að leita til að
sækja persónuleika handrukkarans.
„Mér þykir óneitanlega vænna um Georg þótt ég eyddi mun
meiri tíma í að móta hörkutólið. Garðar er að reyna að þræða beinu
brautina eftir að hafa verið útskúfað úr undirheimunum, en honum
gengur það ekki sérlega vel. Það er varla von þar sem hann er ger-
samlega óhæfur í mannlegum samskiptum. Þetta er maður sem hefur
farið allt á hnefunum og hann notar þá aðferð áfram þegar hann er
að reyna að komast í samband við son sinn og snúa sjálfum sér til
betri vegar,“ segir Gísli Örn.
Sýningar á Börnum standa nú yfir í Sambíóunum og kvikmyndin
vekur verðskuldaða athygli. Áhorfandinn getur oft ekki annað en
hlegið að kostulegum tilsvörum og viðbrögðum í myndinni þótt
aðstæður séu allt annað en fyndnar. Það er þó óhætt að fullyrða að
þessi innsýn í undirheima Reykjavíkur vekur bæði óhugnað og ótta
þeirra sem ekki hafa kynnst lífi fólksins sem býr í skugga fíkniefna
og fátæktar.
Svarthvít filman setur sérstakan svip á myndina, hún undir-
strikar miskunnarleysið en ver áhorfandann þó á vissan hátt fyrir
ofbeldinu.
Nýstárleg vinnsla
„Börn er fyrsta kvikmyndin sem ég framleiði frá A til Ö. Upphaflega
átti þetta að vera ein kvikmynd, en flæðið við tökurnar var mikið og
efnisvinnslan varð þannig að út úr þessu komu tvær sjálfstæðar kvik-
myndir. Sú seinni heitir Foreldrar og við frumsýnum hana í janúar,“
segir Gísli.
„Börn er unnin á óvenjulegan hátt. Söguþráðurinn var mótaður
á löngu tímabili í miklu spunaferli milli leikaranna. Í tökunum
unnum við út frá atriðahandriti og hver leikari spinnur sinn eigin
texta á staðnum í myndinni. Það liggur því mikil rannsóknarvinna
að baki hverjum karakter hjá leikurunum og þeir þurftu að kafa
djúpt ofan í þessa einstaklinga sem við sjáum í myndinni.
Ég held að þetta sé draumaferli hvers leikara að fá að vinna svona.
Að skapa eigin persónu frá grunni og heiminn í kringum hana. Fá
svo að hitta mótleikarana sína og spinna í allar áttir. Allt í einu verða
til senur, sem ég fullyrði að ekki hefði verið hægt að skrifa.
Gísli Örn Garðarsson er einn af framleiðendum og handrits-
höfundum kvikmyndarinnar Börn sem nú er verið að sýna í
Sambíóunum í Reykjavík. Hann lætur sig ekki muna um að leika
tvíbura í myndinni, en þar leikur hann Garðar (Gæja), sem er
illskeyttur handrukkari og töffari, og Georg bróður hans sem
er gerólíkur og mun viðkunnanlegri karakter. Gísli Örn leikur á
móti sjálfum sér í þrem senum.
Texti: Jóhanna Harðardóttir Myndir: Geir Ólafsson
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 15 28.9.2006 10:54:26