Ský - 01.10.2006, Page 21
ský 21
List
Hver var Alfreð Flóki Nielsen? Var hann misskilinn snillingur
eða efnilegur listamaður sem sóaði lífi sínu og hæfileikum
í drykkjuskap? Hann var maður sem hneykslaði heilar kyn-
slóðir Reykvíkinga með teikningum sínum en vildi ekki
verða fullorðinn og tapaði að lokum í átökum við Bakkus.
H
vað er að vera bóhem? Samkvæmt orðabókinni er það listamaður sem lifir frjáls-
legu og óhefðbundnu lífi. Bóhem kærir sig kollóttan um klafa og skyldur hvers-
dagslífsins, neitar sér ekki um lífsnautnir og hirðir lítt um siðareglur og viðmið
meirihlutans. Þeir listamenn íslenskir sem á 20. öld tileinkuðu sér lífsstíl bóhema
af hvað mestum krafti lifðu hátt og hratt og margir þeirra urðu ekki gamlir.
Einn þeirra var Alfreð Flóki Nielsen sem á sjöunda og áttunda áratugnum var ákaflega
umtalaður og áberandi listamaður á Íslandi. Hann var af mörgum talinn snillingur. Bæði
fyrir teikningar sínar, sem áttu sér enga hliðstæðu í íslenskri list þess tíma. Flóki hneykslaði
jafnframt marga með vali sínu á myndefni en ekki síður fannst mörgum að Flóki væri ímynd
snillingsins holdi klædd. Glæsilegur og hæfileikaríkur, töfrandi og skemmtilegur maður sem
var elskaður og dáður af öllum sem kynntust honum en hafði yndi af því að ögra viðteknum
gildum og ganga fram af samborgurum sínum. Flóki varð ekki langlífur. Hann fæddist 1938
og lést 1987, aðeins 48 ára gamall.
Flóki ólst upp í hjarta Reykjavíkur á Óðinsgötu og síðar á Bárugötu, í faðmi stórfjölskyldu
þar sem ríkti menningarlegt andrúmsloft og listamenn og snillingar voru tíðir gestir. Foreldrar
hans voru Guðrún Bjarnþóra Guðmundsdóttir og Carl Alfreð Nielsen. Guðrún móðir Flóka
fékkst við listsköpun og skar tröll og fígúrur út í tré og seldi. Foreldrar Flóka leyfðu honum að
vaxa og þroskast eins og hugur hans stóð til en pilturinn fékk snemma mikinn áhuga á teikningu
og var ungur með pennann í höndunum allar vökustundir og vildi helst ekkert annað gera.
FLÓKINN
SNILLINGUR
Texti: Páll Ásgeir Pálsson Mynd: Ólafur K. Magnússon
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 21 28.9.2006 10:54:46