Ský - 01.10.2006, Side 23
ský 23
List
Staður þessi hafði á sér fremur vafasamt orð en þar sátu löngum
stundum listamenn, verðandi listamenn, óreglumenn og verðandi
óreglumenn, meintir kynvillingar, útigangsmenn og lauslátar konur.
Þetta hefur áreiðanlega verið skemmtilegur staður.
Jóhann segir:
„Toulouse Lautrec sat öllum stundum á Rauðu myllunni í París
og teiknaði frumdrög mynda sinna, gleðifólk og dansmeyjar. Alfreð
Flóka er stundum hægt að hitta innan um misheppnaða snillinga
á Skinnbuxunum og í félagsskap kulnaðra drykkjumanna á Café
Nick sem einu sinni var fræg listamannakrá, báðir þessir staðir í
kóngsins Kaupmannahöfn. Í Reykjavík vandi hann komur sínar
á Laugaveg 11, þennan mótsagnakennda veitingastað þar sem
samankomnir voru togaramenn, bílstjórar, fyllibyttur, menntask-
ólanemar, kennarar, prestar, skáld og málarar ásamt peysufatakonum
og skrifstofumönnum sem skruppu þangað yfir miðjan daginn til
að kíkja á skrýtið fólk og hneykslast dálítið yfir kaffibollanum og
rjómavöfflunni, því mörgum finnst það þægilegt og vissulega er það
nauðsynlegt fyrir andlega heilsu fólks. Af einhverjum skringilegum
ástæðum var þessi sakleysislega, smekklausa stofa álitin samastaður
kynvillinga og eiturlyfjaneytenda umfram önnur hús og öllum gefin
þessi dáindisheiti sem sátu þar að jafnaði. Einn dag árið 1958 var ég
kynntur þar fyrir viðkvæmnislegum og feimnum ungum spjátrungi
klæddum grænum flauelisfötum, heljarstórri slaufu sem minnti á
fiðrildi úr ævintýrum, utanyfir í gráum rykfrakka og með hanska á
höndum. Augnaráðið var flóttalegt, bak við gleraugu flöktu augun
eins og bláir fuglar í búri, munnurinn eins og framandi jurt sem
ýmist lokar krónu sinni eða opnar, kinnbeinin slafnesk, hárið mikið
og féll í dökkum liðum, andlitið fölt eins og sumartungl, handtakið
það kraftlausasta sem ég hafði þá nokkurn tíma kynnst. Hann talaði
með höndunum og þau fáu tilviljunarkenndu orð sem hann sagði
eins og send til að dylja það sem honum bjó raunverulega í hug. Í
fari þessa unga manns var eitthvað sem stakk í stúf við allt umhverfið
og það sem venjulegur Íslendingur á að venjast.“
Skáksnillingur og teiknari skrópar í leikfimi
Við gerð þessarar greinar var einkum stuðst við tvær ritaðar heim-
ildir. Annars vegar formála Jóhanns en hins vegar bók sem Nína
Björk Árnadóttir skrifaði og heitir Ævintýrabókin um Alfreð Flóka
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 23 29.9.2006 9:07:54