Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 26

Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 26
 26 ský List teiknaði alla sína ævi og vildi helst sýna myndir sínar í Bogasalnum og hélt því áfram fram undir 1980. Framan af listferlinum fékk Flóki mjög góða dóma og gagn- rýnendur dáðust að pennateikningum hans sem sýndu myrka og hrollvekjandi veröld. Færni hans á þessu sviði var og verður ekki dregin í efa. Þegar fór að líða á ferilinn fengu sýningar hans ekki eins góðar umsagnir og mátti skilja það svo að mönnum fyndist hann staðn- aður og teikningar hans ekki eins vandaðar og áður var. Flóki var að jafnaði ekki umtalsillur en til eru sögur um það hvernig hann náði sér niður á gagnrýnendum með því að teikna þá í vægast sagt afkára- legum aðstæðum og stilla myndunum síðan upp á næstu sýningu. Flóki var mikill samræðusnillingur og leikari af Guðs náð og skemmti oft vinum sínum með spunaleikjum og leikþáttum sem hann lék af fingrum fram. Hann kunni best við sig í hópi listamanna og meðal bestu vina hans má nefna Dag Sigurðarson, Nínu Björk Árnadóttur, Bríeti Héðinsdóttur, Vilhjálm Bergsson, Ingu Bjarnason, Úlf og Helgu Hjörvar, Ástu Sigurðardóttur, Þorstein frá Hamri, Ólaf Gunnarsson, Jökul Jakobsson, Braga Kristjónsson og eflaust marga fleiri af hans kynslóð. Í áður áminnstri bók Nínu Bjarkar um Flóka segja margir listamenn af yngri kynslóð frá kynnum sínum af Flóka og þeim áhrifum sem hann hafði á þau með list sinni og persónu- legum kynnum. Í þeim hópi er að finna fólk eins og Jónas Sen, Sjón, Björk Guðmundsdóttir, Megas, Hilmar Örn Hilmarsson og fleiri sem tengjast þeim og kölluðu sig Medúsuhópinn. Eitt af hinum stóru áhugamálum Flóka um langa hríð voru galdrar, dulspeki og hið yfirskilvitlega og hann þekkti öðrum betur verk og kenningar Alisteirs Crowley sem oft er kallaður æðstiprestur galdratrúar í samtíma okkar. Þessi áhugi var eitt af því sem tengdi hann við unga listamenn á níunda áratugnum en Hilmar Örn Hilmarsson og Jónas Sen og fleiri voru miklir áhugamenn á þessu sviði. Það er ekki hægt að fjalla um Alfreð Flóka án þess að minnast á Bakkus konung og samskipti þeirra, sem entust meðan Flóki lifði. Margir þeirra listamanna sem nefndir hafa verið í vinahópi Flóka á hans yngri árum voru dyggir liðsmenn Bakkusar og féllu sumir í valinn fyrir aldur fram eftir að hafa gefið eftir öll völd í hendur konungsins. Fyrsta fylliríið á segulbandi Það hefur áður verið sagt hér að Flóki hafi verið viðkvæmur, dulur og mjög feiminn unglingur. Þetta breyttist þegar hann fór að neyta áfengis því þá losnaði um hömlurnar og sjálfstraustið jókst. Áfengið auðveldaði samskiptin við hitt kynið og var samofið fyrstu skemmt- unum unglingsáranna. Það var eðlilegur hluti af lífsstíl bóhema og listamanna að sitja að drykkju meðan smáborgarar streða við hversdaginn og þegar gleðin stóð hvað hæst á Laugavegi 11 meðal efnilegra snillinga leiddu menn ekki hugann að því hve Bakkus getur verið harður húsbóndi. Þegar litið er yfir hópinn af þeim snjöllu listamönnum sem mynduðu kynslóðina sem kenna má við Laugaveg 11 sjást nöfn eins og Jökull Jakobsson, Ásta Sigurðardóttir og Dagur Sigurðarson sem Bakkus kallaði til sín fyrir aldur fram. Aðrir úr vina- hópnum háðu harða baráttu við konunginn, tókst að slíta sig lausa og eru því enn á meðal okkar. Elías Kristjánsson bílstjóri og æskuvinur Flóka var með honum á fyrsta fylliríinu þegar þeir voru báðir um 16 ára gamlir. Þetta varð sérkennileg stund og manndómsvígsla sem þeir félagar tókust á við af æskuþrótti og einurð. Sviðið er Ránargata 4 þar sem foreldrar Elíasar bjuggu en þau höfðu brugðið sér í ferðalag og þá skapast tækifæri. Elías og Flóki buðu tveimur ungum stúlkum til hófsins en þær voru Þóra Elfa Björnsson, sem þá var talin meðal efnilegra ungra skáldkvenna, og svo Guðríður Helga Magnúsdóttir sem varð síðar fyrsta eiginkona Dags Sigurðarsonar. Veitingarnar voru ákavíti blandað með appelsíni en ákavítið var tekið ófrjálsri hendi úr vínskáp föður Elíasar. Þegar vínið fór að svífa á viðstadda brutust fram hæfileikar sem lágu í dvala til hversdags og Flóki stökk fljótlega upp á stól og hóf að halda þrumandi ræðu um snilligáfu. Hans eigin snilligáfa var þar til umræðu en fljótlega rann ræðan yfir í langan kafla úr Vefaranum mikla frá Kasmír eftir Halldór Laxness en höfuðpersónu þeirrar bókar dáði Flóki mjög og tók sér til fyrirmyndar. Flóki kunni utan bókar langan kafla, nánar tiltekið þann áttunda sem hefst á orðunum: „Fyrsti spóinn vall í útsuðri eins og úngur drykkjumaður sem ekki verður svefnsamt. Annars voru fuglar ekki komnir á stjá. Tvær sauðkindur, ráðsettar og heiðarlegar eins og aldraðar húsmæður, fetuðu í hægðum sínum eftir mjórri fjárgötu skamt burtu, gaungulagið settlegt og merkilegt; þær voru að hugsa. Golan var dottin í dúnalogn; alt tekur að vökna af dögg. Kjarrvaxið hraunbrjóstið ilmar.“ SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 26 28.9.2006 10:54:55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.