Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 27

Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 27
 ský 27 Fljótlega tóku þeir félagar eftir því að fyrir utan gluggann á Rán- argötunni hafði safnast saman nokkur hópur manna sem fylgdist með sjónarspilinu í hlýrri sumarnóttinni og færðist þá Flóki heldur í aukana. „Þetta samkvæmi endaði svo með því að við lágum öll á fjórum fótum kringum klósettskálina,“ segir Elías. Svo sannfærður var Flóki fyrirfram um að þetta yrði ógleymanleg stund og áfengið myndi leysa úr læðingi snilligáfu hans að segul- band sem faðir Elíasar átti var látið ganga allan tímann sem veislan varði svo ekkert glataðist. Elías segir að upptakan sé því miður löngu glötuð en þeir félagar hafi hlustað á hana nokkrum sinnum. Það er deginum ljósara að þar hafa glatast sérstæð menningarverðmæti þótt þau væru ekki skrifuð á skinn. Snöggur endir erfiðs lífs Alfreð Flóki átti frekar erfið ár undir lok níunda áratugarins. Drykkjuskapur hans var farinn að há honum meira en hann hafði gert fyrr um ævina og setti mark sitt á andlega líðan hans. Flóki gerði ítrekaðar tilraunir til þess að losna úr klóm Bakkusar og fór í áfengismeðferðir og átti í kjölfar þeirra á köflum þurr tímabil en sótti jafnan í sama farið aftur. Hann varð bráðkvaddur 18. júní 1987, aðeins 48 ára gamall. Það er ekki auðvelt að lýsa í stuttri tímaritsgrein þeim sérstæða og ögrandi persónuleika sem Alfreð Flóki var eða segja til hlítar frá baráttu hans við lífið og listina. Ljóst er að þarna bíður áhugavert efni áhugasamra kvikmyndagerðarmanna. Í viðtali við Ara Jósefsson skáld og blaðamann árið 1959 lýsti hinn ungi Flóki sjálfsmynd sinni sem listamanns. Ari spurði hann hvort hann hefði eitthvað lært af íslenskum meisturum og Flóki svarar: „Íslenskir meistarar. Hvað er nú það? Mér vitanlega eru ekki til neinir íslenskir meistarar þótt Muggur og Kjarval hafi sosum teiknað ágætlega. Á hinn bóginn finn ég til skyldleika með Bosch, Brueghel, Goya, Kubin, Dix, Grosz og El Greco. Ég er húmoristinn, myst- íkerinn og satírikerinn í íslenskri myndlist.“ Seinna í viðtalinu segir hann: „Ég er sjáandinn, maðurinn sem skilur samtíð sína til fullnustu. Þess vegna geta myndir mínar aldrei orðið notalegar sólarlagsstemn- ingar. List mín á að vera svipa á borgarann, ógeðslegustu skepnuna sem skríður á jarðarkúlunni.“ Þegar Alfreð Flóki lést skrifaði Jóhann Hjálmarsson skáld minn- ingargrein um hann og kemst að vanda vel að orði: „Lát Alfreðs Flóka er punktur aftan við langa æsku. Með honum hverfur að mestu æska þeirrar kynslóðar sem var hans. Flóki var dæmigerður æskumaður og naut þess að vera það uns ýmis vand- kvæði miðaldra fólks fóru að sækja á hann og þóttust geta krafið hann um toll. Flóki neitaði að trúa, en gat ekki frekar en aðrir flúið þá staðreynd að gráir sinuhagar taka við draumunum sem áður lit- uðu ókomna tíma, svo vitnað sé til Jóhanns Sigurjónssonar.“ sky, List SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 27 28.9.2006 10:54:56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.