Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 31

Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 31
 ský 31 Golf Björgvin Þorsteinsson hefur engu gleymt. Hér púttar hann fyrir fugli á 3. holu í Grafarholtinu, sem er lengsta par 4 brautin á vellinum. Eins og sjá má var boltinn ekki nema um fet frá holunni eftir annað höggið. Fjórði maðurinn Það er ekki oft sem maður kemst í tæri við hæstaréttardómara á golfvellinum og þóttist ég nú töluvert hróðugur með mig, sá að for- gjöf mín var mun lægri en þeirra, en báðir eru nýliðar miðað við að ég hef stundað golf í um það bil þrjátíu ár, Jón Steinar byrjaði í fyrra og Ólafur Börkur hafði eitthvað verið að fikta við golfið meðan hann gegndi stöðu dómstjóra á Suðurlandi, en hafði ekki tekið íþróttina alvarlega fyrr en hann gekk í GR. Fyrrnefnd forgjöf myndi þó gera það að verkum að leikurinn jafnaðist, en auðvitað leit ég á þá sem auðvelda bráð. Aldrei ætti samt að vanmenta kænsku lögfræðinga. Ég hafði að sjálfsögðu boðið þeim að velja fjórða mann með sér, sem ég hefði átt að sleppa, því þegar ég kem í Grafarholtið, þar sem við ætluðum að leika, er fyrsti maður sem ég hitti Björgvin Þorsteinsson, hæsta- réttarlögmaður og sexfaldur Íslandsmeistari í golfi. Við erum góðir kunningjar til margra ára í gegnum golfíþróttina og hann segir mér að Jón Steinar hafi boðið sér að leika með þeim. Þar fór út í veður og vind sú ætlun mín að sýna hæstaréttardómurunum hvernig ætti að leika golf! Það eru 29 ár síðan Björg- vin varð síðast Íslandsmeistari og enn í dag er hann meðal fremstu kylfinga landsins, með um það bil 2 í forgjöf og tekur þátt í landsmóti á hverju ári. Næstur mætti Jón Steinar og brosti út að eyrum, sagðist vera búinn að skipuleggja keppni fyrir okkur. Tveir gegn tveimur og hann og Björgvin yrðu saman. Sem sagt búinn að tryggja sér sigurinn fyrirfram. Hæglætismaðurinn Ólafur, sem kom síð- astur, var hinn ánægðasti með þetta fyrir- komulag og sagði að vörn væri besta sóknin. Allt var þetta úthugsað hjá Jóni Steinari. Hann var með hæstu forgjöfina og þar með átti hann að leika með þeim kylfingi sem hefði þá lægstu. En til þess að gulltryggja sigurinn var hann kominn með eina sérreglu sem var að eitt aukastig yrði gefið fyrir fugl og hver af okkur er líklegastur til að fá fugl, auðvitað Björgvin. Ég var nú orðinn frekar dapur gagnvart keppninni, en var með orð Ólafs í huga að vörn væri besta sóknin þegar leikurinn hófst. Veðrið versnar Þegar leikurinn hófst var frekar hlýtt, þurrt og hvasst. Veðrið átti eftir að versna þegar á leið. Fyrsta holan var jöfn og þóttumst við Ólafur góðir. Fljótlega fóru Jón Steinar og Björgvin að síga fram úr okkur jafnvel þótt Ólafur sýndi allar sínar bestu hliðar á fyrstu holunum. Keppnismaðurinn Jón Steinar sýndi styrk þegar á þurfti og Björgvin sýndi sitt besta og fékk strax fyrsta fuglinn á þriðju holu. Við Ólafur unnum þá fjórðu og á þeirri fimmtu jafnaðist leikurinn, eitthvað sem Jón Steinar hafði ekki reiknað með, enda tók hann sig til og sýndi mikla keppnishörku á næstu holum, auk þess sem vinveittir álfar í Grafarholtinu áttu það SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 31 28.9.2006 10:55:32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.