Ský - 01.10.2006, Page 32
32 ský
Golf
til að hjálpa boltanum hans af grjótinu yfir á brautina. Það ásamt snilldar-
höggum Björgvins gerði það að verkum að þeir sigu aftur fram úr okkur.
Jón Steinar er með 22 í forgjöf. Eins og áður hefur komið fram þá byrjaði
hann í golfi í fyrra og hefur lækkað sig um 14 högg sem er mjög góður árangur,
sérstaklega þegar tillit er til þess tekið að hann fór í hnjáliðaaðgerð í apríl síð-
astliðnum. Hnén á honum voru nánast orðin ónýt eftir að hann hafði spilað
fótbolta með vinum og kunningjum í fjöldamörg ár, alltof lengi eins og hann
segir. Jón Steinar sagði mér að læknir sinn hefði sagt að hann skyldi reyna sem
mest á hnén í sumar og hefur hann verið iðinn við golfið, sem hefur gert það
að verkum, að hans sögn, að hann er eins og nýr maður í fótunum.
Golf er leikur
Áfram með golfið – eftir því sem holurnar urðu fleiri minnkuðu möguleikar
okkar Ólafs í keppninni, en að sama skapi jókst skemmtunin hjá okkur öllum.
Allir áttu sín góðu högg og allir sín slæmu högg. Sú setning sem margir eiga
erfitt með að kyngja: „Golf er leikur“ var í hávegum höfð. Þegar svo er hefur
vont veður lítil áhrif á leikinn og allir skemmta sér hið besta.
Hæstaréttardómarar þurfa á golfreglum að halda eins og aðrir. Hér er flett upp til að fá úrskurð um vafaatriði.
Þessi steinlá fyrir pari hjá Ólafi
Berki þrátt fyrir að boltinn væri
utan við flöt.
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 32 28.9.2006 10:55:39