Ský - 01.10.2006, Page 41
sky
,
Þ
að eru hundrað níutíu og tvær styttur
í garðinum sem er í hjarta höfuðborg-
arinnar, með sexhundruð einstaklingum
meitluðum í fullri stærð í hart grjótið. Gustav
Vigeland vann að mestu einn og óstuddur við
gerð þessa mikla listaverks allt frá 1907, þegar
Óslóborg fékk hann til að gera gosbrunn, sem
er eins konar inngangur inn í garðinn. Síðan
vann hann að garðinum, listaverkunum, allt
til dauðadags árið 1943. Síðasta verkið og það
mikilfenglegasta er súlan, sem er yfir 14 metra
há, með eitthundrað tuttugu og einum líkama
sem renna saman og snúast upp eftir súlunni.
Hann skissaði hugmyndina 1924, og það tók
síðan þrjá steinhöggvara fjórtán ár að klára
verkið. Því var lokið skömmu fyrir andlát þessa
mikla listamanns.
En það er ekki allt bara grjót og meira grjót.
Brúin sem leiðir mann inn í garðinn er með
fimmtíu og átta bronsstyttum, af fólki á öllum
aldri, frægust er grátandi drengur, eins konar
táknmynd listaverka Vigelands.
Þótt skemmtilegt sé að koma í garðinn á
fallegu sumarkvöldi er ekki síður hrífandi að
koma í hann í vondu veðri, þar sem grámi rign-
ingarinnar gefur styttunum annað andlit, eða
á kyrrum vetrardegi þegar snjóþekjan breytir
garðinum í svarthvíta undraveröld.
ský 41
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 41 28.9.2006 10:56:34