Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 49
ský 49
Fólk
sky
,
Konurnar þrjár, sem eru hjúkrun-arfræðingar, eru Anna Ingigerður Arnarsdóttir, Bríet Birgisdóttir og
Soffía Eiríksdóttir. Þess má geta að þær
halda úti heimasíðu í tengslum við gönguna
og er slóðin bas.is
Búast má við þúsundum þátttakenda í
göngunni sem haldin verður 7. og 8. októ-
ber en sams konar göngur eru haldnar víða
um heim á hverju ári.
Þátttökugjald fyrir hverja þeirra er 1800
dollarar og eru helstu styrktaraðilar lyfja-
fyrirtækið Roche, sem flytur inn krabba-
meinslyf, Glitnir, World Class og Icelandair.
Þá hafa stöllurnar þrjár staðið fyrir söfnun
fyrir lágmarksgjaldinu og rennur umframfé
til Samhjálpar kvenna.
Hjúkrunarfræðingarnir vinna allir á
deildum þar sem krabbameinssjúklingar
liggja auk þess sem allar hafa misst ættingja
úr krabbameini. ,,Við völdum þennan mál-
stað vegna þess að gangan sameinar baráttuna gegn krabbameini og
von,“ segir Soffía. ,,Við erum með erfið krabbameinstilfelli á deild-
unum. Ungt fólk er að greinast og það er svo miklar hetjur. Almenn-
ingur getur ekki ímyndað sér hvað gerist hjá okkur í vinnunni. Við
erum líka að vekja athygli á því að hver og einn ber ábyrgð á eigin
heilsu.“ Þá bendir Bríet á að leiddar séu líkur að því að bein tengsl
séu á milli offitu og krabbameins og að auðveldara sé fyrir grannar
konur að finna æxli í brjósti ef það hefur myndast.
Voru í slæmu formi
Þetta byrjaði allt saman í janúar þegar Anna, Bríet og Soffía fóru
á námskeið, Líkaminn fyrir lífið fyrir konur, hjá World Class. ,,Þá
ákváðum við aðallega að koma okkur í betra form og breyta um lífs-
stíl. Við tókum lítil skref í einu,“ segir Bríet. ,,Okkur var farið að líða
illa í vinnunni,“ segir Anna, ,,og við vorum þreyttar og illa á okkur
komnar líkamlega. Ég var til dæmis orðin slæm í bakinu. Maður var
farinn að tapa úr vinnu vegna þess að maður var í svo lélegu ástandi
og þetta bara gekk ekki. Við þurftum að gera eitthvað.“ Soffía var
komin með tennisolnboga og var slæm af vöðvabólgu. ,,Fyrstu tvær
vikurnar voru hræðilegar og tók ég bólgueyðandi lyf til að komast í
gegnum þær. Ég var með verki alls staðar.“
Það var svo í apríl sem þríeykið ákvað að taka þátt í göngunni í
New York. Þá bættust við göngutúrar og í sumar voru þær í hlaupa-
hópi og var æft fimm sinnum í viku. ,,Við héldum fyrst að við
gætum ekkert hlaupið,“ segir Bríet. ,,Ég man þegar við vorum að
hæla okkur af því að við gátum hlaupið í fimm mínútur í einu án
þess að stoppa,“ segir Anna. Í dag geta þær hlaupið mörgum sinnum
lengra – án þess að stoppa. Þess má geta að þær hlupu 10 km í Reykja-
víkurmaraþoninu. Þá hafa þær breytt um mataræði – og þær sem
voru yfir kjörþyngd hafa lést.
Þær benda á að hópeflið sé mikilvægt – stundum hafi þurft að ýta
á einhverja í hópnum. Þær hafa líka oft þurft að bíta á jaxlinn.
Ferðin til New York nálgast óðfluga. Þær láta ekki íslenskt haust-
veður aftra sér þegar kemur að göngutúrum. ,,Við börðumst ofan af
Laxnesi í fyrstu haustlægðinni,“ segir Anna en þann dag rigndi eins
og hellt væri úr fötu. Þær urðu gegndrepa. ,,Fötin voru orðin þung
en andinn léttur.“
LÍTIL SKREF URÐU STÓR
Anna, Bríet og Soffía sem taka í október þátt í göngunni ,,The Avon Walk for Breast
Cancer“.
Þrjár konur taka í október þátt í tveggja daga 63 km göngu í New York, „The
Avon Walk for Breast Cancer“. Þeir fjármunir sem safnast í tengslum við hana
renna allir til rannsókna og meðferða á brjóstakrabbameini.
Texti: Svava Jónsdóttir Mynd: Geir Ólafsson
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 49 28.9.2006 10:58:01