Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 55

Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 55
 ský 55 „Ég veit ekki hvort hægt sé að nefna einhverja eina tegund söguefnis sem höfðar til mín fremur en aðra. Þetta er kannski meira spurning um hvernig unnið er úr hlutunum,“ segir rithöfundurinn Björgúlfur Ólafs- son. Verk hans eru skáldsögurnar Hversdagsskór og skýjaborgir, Síðasta sakamálasagan og Kvennagaldur, en þrettán ár eru liðin frá því sú síðast- nefnda kom út. Björgúlfur segir þessa löngu bið lesenda eftir næstu bók hans ekki endilega til marks um hve erfitt það sé fyrir höfunda að vinna sér sess á skáldaþingi. Alltaf sé erfitt að byrja og oftast taki nokkurn tíma að hasla sér völl. Það sé hins vegar ekki séríslenskt fyrirbæri. Björgúlfur kveðst sjálfur lesa bækur af ýmsum toga. „Einu sinni las ég tvö hundruð blaðsíðna bók um mann sem fór upp rúllustiga. Þetta var kannski 25 sekúndna „ferðalag“ og mesta furða hvað hægt var að gera úr því. En ég vil gjarnan lesa bækur sem sameina kosti afþreyingar og svokallaðra fagur- bókmennta, eru skemmtilegar og spennandi en gefa um leið óvenjulega sýn á tilveruna,“ segir hann. Þrjár brúðkaupsveislur Björgúlfur Ólafsson heitir eftir afa sínum og alnafna; sem var læknir, rithöf- undur og seinna bóndi á Bessastöðum á Álftanesi á fyrri hluta 20. aldarinnar, það er áður en jörðin var gefin íslenska ríkinu svo þar mætti vera bústaður ríkisstjóra og síðar forseta Íslands. „Björgúlfur afi minn var af alþýðufólki á Snæfellsnesi en gekk menntaveginn og útskrifaðist sem læknir skömmu fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Þá bauðst honum starf hjá hollenska nýlenduhernum í Austur-Indíum eða Indónesíu eins og landið heitir núna. Hann sigldi þang að en amma mín, sem hann hafði þá trúlofast, ætlaði að koma skömmu síðar,“ segir Björgúlfur þegar hann reifar sögu afa síns. „Í millitíðinni skall styrjöldin á og þá komst hún ekki austur nema vera gift. Skiljanlega var ekki verið að flytja fólk að óþörfu heimshorna á milli. Nú voru góð ráð dýr. Það varð úr að þau giftu sig í gegnum síma og voru haldnar þrjár veislur á jafnmörgum stöðum. Ein á Jövu þar sem afi var, önnur í Hollandi þar sem amma var stödd og sú þriðja í Reykjavík hjá ættingjum. Þau bjuggu síðan þarna fyrir austan í vel rúman áratug, á Jövu, Borneó og í Singapúr. Skömmu eftir að þau fluttust heim keyptu þau Bessa- staði og bjuggu þar í um tólf ár eða til 1940. Afi skrifaði nokkrar bækur um lífið í Austurlöndum sem voru þó nokkuð lesnar á sínum tíma enda höfðu þá fáir Íslendingar komið á svo fjarlægar slóðir.“ „Vil gjarnan lesa bækur sem sameina kosti afþreyingar og svokallaðra fagurbókmennta,“ segir rithöfundurinn Björgúlfur Ólafsson. ÓVENJULEG SÝN Á TILVERUNA Björgólfarnir og boðskortin Um síðustu áramót þegar Björgúlfur hélt ásamt fleirum boð í Iðnó. Samkvæmið þótti í frásögur færandi, en fréttamaður taldi að boðið væri haldið af Björgólfsfeðgum – mönnunum sem sumir segja að eigi Ísland. „Menn ruglast skiljanlega oft á þessum tveimur nöfnum og það kemur fyrir að ég er kallaður Björgólfur,“ segir Björgúlfur. „Þegar Hafskipsmálið var í hámæli var ég alltaf fljótur að leiðrétta þennan misskilning en nú eftir að þeir feðgar urðu helstu peningafurstar landsins er ég seinni til. En nei, ég hef aldrei verið beðinn um lán vegna þessa né heldur notið sér- stakrar fyrirgreiðslu. Varðandi áramótaballið í Iðnó þá hef ég verið skrifaður fyrir salnum og fyrir síðustu áramót komst blaðamaður hjá DV að þessu. Hvort sem hann ruglaðist vilj- andi eða ekki þá birtist baksíðufrétt um það að annar Björg- ólfsfeðga ætlaði að halda stórball í Iðnó. Að minnsta kosti tvö tímarit átu þetta upp úr DV og voru um leið með vanga- veltur um væntanlegan íburð á ballinu og tilgreindu hvaða gestir væru líklegir til að mæta. Eflaust hafa sumir hákarlar í viðskiptalífinu beðið spenntir eftir boðskorti og orðið fyrir miklum vonbrigðum með að þurfa að sitja heima.“ sky, Texti: Sigurður Bogi Sævarsson Mynd: Geir Ólafsson Fólk SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 55 28.9.2006 10:58:50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.