Ský - 01.10.2006, Page 57

Ský - 01.10.2006, Page 57
 ský 57 Tónlist Texti: Lízella Myndir: Morgunblaðið og fleiri JAKOBÍNARÍNA Hljómsveitin Jakobínarína hefur verið að gera það gott að undanförnu og nú, þegar þetta blað kemur út, eru þeir komnir til Bretlands þar sem þeir verða við hljómleikahald og upptökur. Upp- tökurnar eru m.a. efni sem verður á nýja diskinum þeirra. Gert er ráð fyrir að sá diskur komi út í ársbyrjun 2007. Hljóm- sveitina skipa Ágúst Fannar Ágústsson hljómborðsleikari, Björgvin Ingi Péturs- son bassaleikari, Gunnar Ragnarsson söngvari, Hallberg Daði Hallbergsson gítarleikari, Heimir Gestur Eggertsson gítarleikari og Sigurður Möller Sívertsen trommuleikari. Ég spyr þá fyrst hvernig hljómsveitin varð til: Hallberg: .„Við vinirnir vorum allir í sama skóla, þ.e. Áslandsskóla, og höfðum lítið að gera. Við höfðum allir áhuga á tónlist svo við enduðum bara á því að stofna okkar eigin hljómsveit! Og þegar við vorum komnir á skrið og búnir að vinna Músíktilraunir fannst okkur þó enn vanta punktinn yfir i-ið.“ Sigurður: „Við hlustuðum flestir á Lödu Sport, hljómsveitina sem Heimir var í, sem svo vildi til að var að fara að hætta, og þar sem hann átti heima í sömu götu og við Ágúst Fannar Ágústsson hljómborðsleikari, Sigurður Möller Sívertsen trommuleikari, Heimir Gestur Eggertsson gítarleikari, Hallberg Daði Hallbergsson gítarleikari, Björgvin Ingi Pétursson bassaleikari. Á myndina vantar Gunnar Ragnarsson söngvara. SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 57 28.9.2006 10:58:55

x

Ský

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.