Ský - 01.10.2006, Page 58
58 ský
Tónlist
hinir var bara tilvalið að bæta honum við.“ Eruð þið í annarri vinnu
eða námi en hljómsveitinni? Heimir: „Já, við vinnum flestir og erum
hættir í skóla; erum bara að vinna á fullu í þessari blessuðu hljóm-
sveit.“ Ágúst: „Ég vinn hjá afa mínum öðru hverju við að búa til
heita potta og báta. Ég er einnig eini hljómsveitarmeðlimurinn sem
fór í skóla; ég er í Flensborg á náttúrufræðibraut.“ Aðspurðir um
nafn hljómsveitarinnar og hvernig það varð til segja þeir að nafnið
hafi orðið til á svo óspennandi hátt að það sé ekkert gaman að segja
frá því. Ég píni þá samt og fæ það upp úr Heimi: Heimir: „Hann
Hallberg, gítarleikarinn okkar, samdi sögu í skólanum sínum; allir
í bekknum áttu að semja sögu; og í sögunni hans var persóna sem
bar nafnið Jakobínarína Freyr. Daginn eftir vorum við strákarnir á
æfingu og vantaði nafn og hvað heldur þú ... Jakobínarína varð fyrir
valinu og allir voru kampakátir!“
Airwaves opnaði margar dyr
Voruð þið vissir um sigur í Músíktilraunum? Heimir: „Reyndar var ég
ekki í hljómsveitinni þegar Jakobínarína vann en ég var viss um að
þeir myndu vinna þó að ég hefði ekki heyrt í hinum hljómsveitunum
en auðvitað kom það þeim á óvart, nema Gunnari kannski því að
hann er alltaf svo sigurviss!“ Sigurður: „Já, það kom mér svo sann-
arlega á óvart því það voru svo margar efnilegar hljómsveitir þarna,
vonandi fær maður bara að sjá meira af þeim.“
Hvaða dyr opnaði sigurinn í þeirri keppni?
„Sigurinn þar varð til þess að við sköpuðum okkur smánafn og
fólk fékk að kynnast okkur aðeins. Svo fengum við upptökubúnað,
sem var mjög þægilegt, hann hefur gert mikið gagn! En Airwaves
opnaði hins vegar margar dyr því að svo margir sáu okkur þar sem
höfðu upp á góðar dyr að bjóða – ef ég má orða það svona – og
Jakobínarína. Stuðhljómsveitin með erfiða nafnið.
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 58 28.9.2006 10:59:00