Ský - 01.10.2006, Side 66
Ár hvert koma fram á sjónarsviðið ódýrar gæðamyndir sem fá mikla
aðsókn. Í fyrra var það Sideways. Í ár er það Little Miss Sunshine,
sem fær mjög jafna og góða aðsókn vestan hafs. Myndin kostaði 8
milljónir dollara og með markaðskynningu, sem var lítil, má reikna
með að heildarkostnaður hafi verið 10 milljónir dollara. Þegar þessar
línur eru skrifaðar eru heildartekjur af myndinni í Bandaríkjunum
orðnar um 45 milljónir dollara og sú upphæð á eftir að hækka þar
sem aðsókn er enn góð.
Hvað er það svo sem heillar í Little Miss Sunshine? Í Sideways, sem
eins og Little Miss Sunshine er gamanmynd, voru það tveir félagar sem
fóru í kostulegan vínleiðangur um vínhéruð í Kaliforníu. Í Little Miss
Sunshine er það annar leiðangur um bandaríska þjóðvegi sem heillar.
Nú er það fjölskylda á ferð í Volkswagen rúgbrauði með yngsta fjöl-
skyldumeðliminn (Abigail Breslin) á leið í fegurðarsamkeppni fyrir
litlar stúlkur. Og þetta er engin venjuleg fjölskylda. Faðirinn (Greg
Kinnear) er vonlaus sölumaður sem reynir árangurslaust að selja
„Níu þrepa prógrammið til árangurs í lífinu“, án árangurs. Móðirin
(Toni Collette) er orðin taugabiluð á að passa upp á bróður sinn
(Steve Carrell), sem í tíma og ótíma reynir að fremja sjálfsmorð eftir
að sambýlismaður hans henti honum út á götu. Svo er það bróðirinn
(Paul Dano) sem er reiður ungur maður sem les Nietzsche og hefur
heitið því að segja ekki orð fyrr en hann kemst í skóla flughersins. Til
að kóróna fjölskylduna er það svo afinn (Alan Arkin), sem nýlega var
hent út af elliheimili fyrir að sniffa heróín. Myndin er síðan kostuleg
lýsing á þriggja daga ferð fjölskyldunnar í fegurðarsamkeppnina þar
sem ekkert annað kemur til greina en sigur.
Leikstjórar eru hjónin Jonathan Dayton og Valerie Faris og er
þetta fyrsta kvikmynd þeirra, en þau hafa verið mjög eftirsótt í tón-
listarbransanum og stjórnað myndbandakynningum fyrir marga
fræga söngvara og hljómsveitir.
LITLA UNGFRÚ SÓLSKIN
Fjölskyldan kostulega
með „rúgbrauðið“ í
bakgrunninum.
Kvikmyndir
C M Y CM MY CY CMY K
28 VIKUM SÍÐAR
Þann 1. september síðastliðinn hófust tökur á 28 Weeks Later, sem
er framhald af hinni mögnuðu framtíðarmynd, 28 Days Later, sem
Danny Boyle leikstýrði fyrir fjórum árum og vakti mikla athygli.
Sú mynd fjallaði um ungan mann sem vaknar upp á sjúkrahúsi í
London og kemst að því að óþekktur vírus hefur drepið nær alla
þjóðina. Framhaldsmyndin hefst 28 vikum eftir atburðina í fyrri
myndinni. Þeir fáu sem eftirlifandi eru lifa í voninni um að hægt sé
að eyða vírusnum. Tilkynning um það kemur frá hernum og fólk
beðið að reyna að byggja upp líf sitt. Þegar ein fjölskylda sameinast
veit einn meðlimurinn ekki að í líkama hans er að þróast enn hættu-
legri veira. Danny Boyle er að þessu sinni í hlutverki framleiðanda
og lætur spánska leikstjórann Juan Carlos Fresnadillo um að leik-
stýra myndinni. Í aðalhlutverkum eru Rose Byrne, Robert Carlyle,
Catherine McCormack, Jeremy Renner og Harold Perrineau.
BRANNAGH ENDURGERIR SLEUTH
Þeir mörgu sem sáu hina frábæru sakamálamynd Sleuth (1972) og
hafa ef til vill séð leikritið eftir Anthony Shaffer, sem myndin er gerð
eftir, líður seint úr minni sú magnþrungna spenna sem myndast
á milli rithöfundarins og hárgreiðslumannsins sem stal eiginkonu
hans. Í hlutverkunum voru Laurence Olivier og Michael Caine.
Kenneth Brannagh er farinn að undirbúa endurgerð Sleuth og Harold
Pinter skrifar handritið. Brannagh mun eingöngu leikstýra að þessu
sinni og hefur fengið Michael Caine til að hafa hlutverkaskipti og
leika rithöfundinn. Í hlutverki unga mannsins verður Jude Law.
Áætlað er að tökur hefjist í janúar á næsta ári.
sky
,
66 ský
Texti: Hilmar Karlsson
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 66 28.9.2006 11:01:21