Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 21
sk‡ 21
Á sta og Kristín Ásta hjá Eskimo stopp-uðu mig úti á götu fyrir átta árum, eða þegar ég var í 9. bekk, og spurðu
mig hvort ég hefði áhuga á fyrirsætustörfum.
Ég var mjög feimin á þessum tíma og hafði
aldrei hugsað út í að verða fyrirsæta. Ég
ákvað nokkrum vikum síðar að slá til og sé
alls ekki eftir þeirri ákvörðun. Ég hugsa að ég
hafi farið út í þetta af forvitni.“
Edda Björk fékk fljótlega gott verk-
efni fyrir danska tímaritið Eurowoman.
Sumarið eftir 9. bekk hélt Edda Björk
með móður sinni til New York þar sem
hún vann sem fyrirsæta. „Það var ógleym-
anleg ferð. Ég man að mamma fór alltaf
með mér en ég mátti aldrei vera ein og
við skemmtum okkur konunglega. Ég og
mamma erum svo góðar vinkonur og náum
svo vel saman.“„ Edda Björk vann næstu
sumur í New York.
„Mér fannst alltaf mikilvægt að fara aftur
í skólann þótt það hafi verið stundum freist-
andi að vera áfram út af skemmtilegum til-
boðum. Ég er samt mjög ánægð með það í
dag að hafa látið skólann ganga fyrir.“
Þegar Edda Björk fór að vinna í New
York í fyrsta skipti var hún á skrá hjá mód-
elskrifstofunni Metropolitan en fór fljótlega
á skrá hjá módelskrifstofunni Click. „Það
kom fyrir að ég hélt til annarra landa til þess
að fara í myndatökur og fór ég til dæmis til
Ítalíu, Englands og Þýskalands.“
Edda Björk útskrifaðist frá Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ árið 2004. Þá var hún
hætt að starfa sem fyrirsæta og ætlaði ekkert
að fara út í það aftur. „Harald, bókarinn
minn í New York, var staddur á Íslandi og
langaði til að hitta mig og foreldra mína til
þess að tilkynna að hann vildi fá mig aftur
út. Þá var ég búin að hugsa um að fara í
ljósmyndanám en ákvað að vera í New York
í eitt ár. Eftir það hóf ég nám í félagsfræði við
Háskóla Íslands.“
Edda Björk vinnur sem fyrirsæta sam-
hliða náminu. Hún var í jólafríinu í Mumbai
á Indlandi þar sem Eskimo er með útibú. Þar
vann hún aðallega í tengslum við tímarit og
sjónvarpsauglýsingar. „Mér finnst svolítið
erfitt að hætta alveg. Það er gaman að ferðast
og fá tækifæri til að vinna út um allan heim.
Ég hef eignast frábæra vini í gegnum þetta
starf og þar sem ég ætlaði alltaf að verða ljós-
myndari er gaman að hafa unnið með svona
mörgum góðum ljósmyndurum.“ sky
,
íslenskar fyrirsætur
„Mér finnst svolítið erf-
itt að hætta alveg. Það
er gaman að ferðast og
fá tækifæri til að vinna
út um allan heim.“
„Framaferill Eddu Bjarkar í
fyrirsætustarfinu fór fljótt af
stað. Hún byrjaði strax að
vinna með bestu tímaritum
og ljósmyndurum í heimi.
Námið hefur þó alltaf gengið
fyrir hjá henni enda eldklár
stelpa. Edda er algjör ljúf-
lingur og mjög jákvæð. Hún
er fyrsta ljóshærða fyrsætan
sem fer til starfa í Indlandi á
vegum Eskimo. Indverjar hafa
eingöngu notað dökkhærðar
fyrirsætur og það hefur verið
ánægjulegt að sjá hversu vel
Eddu Björk gengur.“
Andrea Brabin hjá Eskimo
Edda Björk Pétursdóttir
Lætur námið
ganga fyrir
Ed
da
B
jö
rk
P
ét
ur
sd
ót
tir
.