Ský - 01.04.2007, Qupperneq 29
„Ég hef myndað mikinn fjölda heimsþekktra manna en
enginn þeirra hefur haft jafnsterka útgeislun og áru eins
og Bill Clinton,“ segir Gunnar V. Andrésson blaðaljós-
myndari, sem var á vettvangi þegar Bandaríkjaforsetinn
fyrrverandi kom hingað í einkaheimsókn með Hillary
eiginkonu sinni í ágúst 2004. Hér áttu þau fundi með
íslenskum ráðamönnum, en hvað mesta athygli vakti þó
þegar Clinton gekk um götur miðborgarinnar í gallabuxum
og peysu, leit við í verslunum, spjallaði við fólk og áritaði
ævisögu sína.
„Clinton gekk eftir Tryggvagötunni miðri, svo stór
persónuleiki er hann, fyrir utan að vera vörpulegur á velli.
Hersingin var komin á móts við Bæjarins bestu þegar ég
kallaði á konuna sem þar stóð vaktina, hvers vegna hún
gæfi ekki manninum pylsu. „Come on, I can give you the
best hot dogs in the worlds,“ kallaði hún og þetta hreif.
„Why not,“ svaraði Bandaríkjaforsetinn fyrrverandi – og
horfði beint í augun á mér. Ég er ekki frá því að hann
hafi séð að hér gæti hann brugðið á leik með okkur ljós-
myndurum. Svo fór Clinton beint í lúguna og bað um eina
pylsu með sinnepi. Þarna var komið frábært myndefni
og forsíðu Fréttablaðsins næsta dag var borgið. Raunar
birtust myndir mínar af Clinton með pylsuna í fjölmörgum
erlendum blöðum og eins voru þær notaðar í íslenskar
auglýsingar. Af Clinton, sem er þekktur skyndibitaunn-
andi, er hins vegar það að segja að fljótlega eftir að hann
kom aftur til síns heima fékk hann hjartaáfall, sem mig
minnir að læknar hafi sagt að mætti rekja til óhollrar
fæðu,“ segir Gunnar V. Andrésson. sky
,
Bill Clinton – 2004
Vörpulegur á velli
Clinton með bæjarins bestu pylsu.
Heimsóknir heimsleiðtoga